Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 18

Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 18
Ég tel því að það sé mjög erfitt að reka lítið lággjaldaflugfélag frá Íslandi svo ekki sé minnst á svokölluð últra-lággjalda- flugfélög. MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Gangi áform forsvars­manna og ráðg jafa WOW air um endur­sk ipulag ning u f lug­félagsins eftir er gert ráð fyrir að lausafjárstaða félagsins verði orðin jákvæð um meira en níu milljónir dala, jafnvirði 1,1 millj­ arðs króna, um mitt næsta ár. Til samanburðar er hún sem stendur neikvæð um 11 milljónir dala og er búist við að hún versni enn frekar og verði, að öðru óbreyttu, tæpar 45 milljónir dala í lok annars fjórðungs ársins. Þetta kemur fram í drögum að kynningu á endurskipulagningu WOW air sem Markaðurinn hefur undir höndum. Áætlanir félagsins hafa verið kynntar fjárfestum, inn­ lendum sem erlendum, á undan­ förnum dögum af Arctica Finance, ráðgjafa f lugfélagsins, og starfs­ mönnum fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Áform stjórnenda WOW air miða að því að breyta skuldum þess við skuldabréfaeigendur og aðra lánar­ drottna upp á samanlagt 120,4 milljónir dala, jafnvirði um 14,6 milljarða króna, í hlutafé og gefa í kjölfarið út ný forgangshlutabréf fyrir 40 milljónir dala, sem jafngild­ ir 4,8 milljörðum króna, til þess að fullfjármagna rekstur flugfélagsins. Í tilkynningu sem WOW air sendi frá sér í gær kom fram að formlegar viðræður væru hafnar við fjárfesta um að leggja því til nýtt hlutafé. Þær viðræður beinast meðal ann­ ars að Indigo Partners, samkvæmt heimildum Markaðarins, en fyrir tæpri viku var greint frá því að bandaríska félagið væri hætt við að fjárfesta í WOW air fyrir allt að 90 milljónir dala, jafnvirði 10,5 millj­ arða króna. Í kjölfar umræddrar niðurskriftar á skuldum WOW air verða vaxta­ berandi skuldir félagsins 6,6 millj­ ónir dala og verður eiginfjárhlut­ fall þess 20 prósent, að því er fram kemur í kynningunni. Fjárfestirinn sem mun leggja f lugfélaginu til 40 milljónir dala í nýtt hlutafé mun eignast 51 pró­ sents hlut í félaginu sem og for­ gangsrétt að arðgreiðslum og öðrum útgreiðslum félagsins. Á móti munu skuldabréfaeigendur og lánardrottnar félagsins fara með 49 prósenta hlut í því. Í áðurnefndri kynningu er tekið fram að umrædd fjárhæð, 40 millj­ ónir dala, byggi á endurskoðaðri viðskiptaáætlun f lugfélagsins og sé enn fremur háð því að skuldir félagsins verði endurskipulagðar og að lausafjárstaðan fari ekki undir níu milljónir dala. Eigendur skuldabréfa WOW air, sem samþykktu í gær að breyta kröfum sínum á hendur félaginu í hlutafé, munu eignast 23 prósenta hlut í félaginu og aðrir lánardrottn­ ar 26 prósenta hlut en í áætlun flug­ félagsins er gert ráð fyrir að allir lánardrottnarnir, þar á meðal Arion banki og Isavia, samþykki að breyta kröfum sínum í hlutafé. Óvíst er hvort Isavia – en WOW air skuldar ríkisfyrirtækinu um 1,8 milljarða króna – muni fallast á slíka ráðstöfun, að sögn þeirra sem þekkja vel til mála, en það er sem stendur til skoðunar hjá fyrir­ tækinu. Ekki hafði fengist formlegt samþykki frá öllum lánardrottn­ unum í gær, eftir því sem Markaður­ inn kemst næst, en fastlega er búist við því að f lestir þeirra muni sam­ þykkja tillögur flugfélagsins. Auk Arion banka og Isavia eru stærstu lánveitendur WOW air flug­ vélaleigurnar Avolon, sem á 16 millj­ óna dala kröfur á hendur félaginu, og Air Lease Corporation en kröfur þess gagnvart félaginu standa í um 13,6 milljónum dala, samkvæmt upp­ lýsingum sem Markaðurinn hefur undir höndum. Þá hefur Airport Associates, sem þjónustar WOW air á Keflavíkur­ flugvelli, þegar samþykkt að fella niður 1,6 milljóna dala kröfur sínar á hendur flugfélaginu og leggja félag­ inu til nýtt hlutafé að samsvarandi fjárhæð. Samkvæmt áætlunum forsvars­ manna WOW air verður víkjandi láni sem Títan fjárfestingafélag, móðurfélag WOW air, hefur veitt flugfélaginu auk þess breytt í hluta­ bréf sem verða án atkvæðisréttar. Lánið stendur í um 6,3 milljónum dala, jafnvirði 760 milljóna króna. Sextán vélar árið 2021 Áætlanirnar gera ráð fyrir veruleg­ um bata í rekstri WOW air á næstu árum og sérstaklega á árinu 2021. Þannig kemur fram í áðurnefndri kynningu að lausafjárstaða félags­ ins geti verið orðin jákvæð um 79,5 milljónir dala, 9,6 milljarða króna, í lok árs 2021 og að á sama ári verði rekstrarhagnaður þess 72,3 milljónir dala eða 8,7 milljarðar króna. Til samanburðar miðar viðskipta­ áætlun WOW air að því að 7,8 millj­ óna dala tap verði á rekstri f lug­ félagsins í ár en að rekstrarhagnaður næsta árs verði 20,6 milljónir dala. Gert er ráð fyrir því að floti flug­ félagsins í ár muni samanstanda af níu Airbus A321 farþegavélum og einni Airbus A320 vél, að því er fram kemur í kynningunni, en að vélarnar verði orðnar sextán árið 2021. Til upprifjunar var floti félags­ ins skorinn niður úr tuttugu vélum í ellefu í lok síðasta árs. Um leið var stöðugildum fækkað um 350. Jafnframt gera áætlanirnar ráð fyrir að WOW air fækki áfanga­ stöðum og flytji 2,1 milljón farþega í ár borið saman við 3,5 milljónir í fyrra. Er búist við að farþegar félags­ ins verði 2,3 milljónir á næsta ári og 3,2 milljónir árið 2021. Á sama tíma er gert ráð fyrir að starfsmönnum WOW air fækki úr 1.400, eins og fjöldi þeirra var í fyrra, í 915 á þessu ári en að þeim fjölgi í 975 á næsta ári og verði orðnir 1.261 talsins árið 2021. Af kynningunni má ráða að flug­ félagið hafi í hyggju að reka harða lággjaldastefnu þar sem mikil áhersla verði lögð á að lækka ein­ ingakostnað og hækka viðbótar­ tekjur „sem gerir okkur kleift að lækka frekar farþegatekjur án þess fórna heildartekjunum“, eins og segir í kynningunni. Samkvæmt forsendum áætlana félagsins verða viðbótartekjur á hvern farþega 71 dalur árið 2021 en þær voru 55 dalir í fyrra. Slíkar tekjur eru sem kunnugt er allar tekjur flug­ félags af farþegum umfram tekjur af sölu farmiða. Er auk þess gert ráð fyrir að far­ þegatekjur félagsins fari úr 114 dölum á hvern farþega, eins og þær voru í fyrra, í 117 dali árið 2021. Þá stendur til að auka beina sölu á vef WOW air þannig að hlutfall slíkrar sölu af heildarsölu félagsins fari úr 67 prósentum, eins og það var á síðasta ári, í allt að 89 prósent 2021. hordur@frettabladid.is, kristinningi@frettabladid.is Gera ráð fyrir miklum rekstrarbata WOW air Viðskiptaáætlun til 2021 gerir ráð fyrir miklum viðsnúningi í rekstri félags- ins. Lausafjárstaðan verði jákvæð um meira en milljarð í júní. Eigandi 51 pró- sents hlutar með forgang að arðgreiðslum. Indigo aftur fengið að borðinu. Bjartsýn sviðsmynd Lánardrottnar og eigendur skuldabréfa WOW air, sem munu eignast 49 prósenta hlut í flugfélaginu, gætu fengið 17 til 29 prósenta árlega ávöxtun af fjárfestingu sinni ef áform forsvarsmanna félagsins ganga að öllu leyti eftir og hluthafarnir selja hlut sinn í apríl árið 2021. Þetta kemur fram í kynningu stjórnenda og ráðgjafa WOW air um endurskipulagningu fé- lagsins. Árleg ávöxtun þess fjárfestis sem eignast 51 prósents hlut í félaginu gæti á sama tíma, í apríl 2021, numið 102 til 124 prósentum, samkvæmt þeirri sviðsmynd sem dregin er upp í kynningunni. Er þá gert ráð fyrir að við- skiptaáætlun félagsins til næstu ára heppnist og að EBITDAR – afkoma þess fyrir afskriftir, fjármagnsliði, leigu og skatta – verði 75 milljónir dala árið 2020. 3,2 milljónir er áætlað að farþegar félagsins verði árið 2021. Stjórn WOW air, ásamt fulltrúa skuldabréfaeigenda félagsins, kemur út úr fjármálaráðuneytinu að loknum fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice­ landair Group, segir það fásinnu að tala um ríkisábyrgð í samhengi við lán sem Landsbankinn veitti f lugfélaginu nýverið. Bæði erlendir og innlendir fjármögnunaraðilar hafi sóst eftir viðskiptum við félag­ ið enda séu góðar tryggingar fyrir hendi og fjárhagsstaða félagsins sé sterk. Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, vakti athygli á því í viðtölum við fjölmiðla í gær að í sögulegu samhengi hefði Icelandair fengið „miklar ívilnanir og fyrirgreiðslur með margvíslegum hætti“ frá rík­ inu, nú síðast fyrr í mánuðinum þegar Landsbankinn hefði lánað félaginu hátt í tíu milljarða króna „á kostakjörum“. Þó svo að ríkið teldi ekki rétt að fjárfesta með beinum hætti í f lug­ rekstri væri öllum ljóst að ríkið kæmi að slíkum rekstri á ýmsan máta. Bogi Nils bendir á að Landsbank­ inn og Icelandair Group hafi átt í áratuga viðskiptasambandi og að bankinn hafi um árabil leitað eftir því að auka þau viðskipti, ekki síst á sviði langtímalána. „Um nokkurra mánaða skeið hefur Icelandair Group unnið að endurfjármögnun á hluta af skuld­ um félagsins og hafði félagið marga kosti í þeim efnum enda efnahags­ reikningur félagsins mjög sterkur og svo til allar f lugvélar félagsins óveðsettar,“ nefnir hann. Margir hafi sóst eftir viðskipt­ unum og niðurstaðan hafi verið sú að ganga til samninga við Lands­ bankann. „Það er því fásinna að tala um ríkisábyrgð eða r í k is aðstoð í þessu samhengi,“ segir hann. Bogi Nils segist von­ ast til þess að endur­ skipulagning WOW air gangi eftir og að f l u g f é l a g i ð bjargi sér í gegnum þá e r f i ð l e i k a s e m þ a ð glími við. Hins vegar hljómi þau v ið sk ipt i sem um sé rætt óneitanlega ein­ kennilega. „Af fréttum að dæma er fyrir­ tækið ekki gjaldfært og eigið fé verulega neikvætt. Það segir sig því sjálft að ótryggðar kröfur á félagið eru verðlausar. Að þeir sem leggja nýtt áhættufjármagn til félagsins á þessum tímapunkti eignist það ekki að fullu er erfitt að skilja,“ nefnir hann. Það sé jafnframt mun ódýrara að stofna nýtt flugfélag frá grunni með þennan fjölda leiguvéla sem talað sé um en nemur þeirri fjárhæð sem fréttir segja að félagið vanti. „Að mínu mati væri því mun skynsamlegra að stofna nýtt félag fyrir mun lægri fjárhæð og eiga það að fullu,“ segir Bogi Nils. Hann segist auk þess hafa áhyggj­ ur af viðskiptalíkani WOW air. Ísland sé mjög dýrt land fyrir fyrir­ tækjarekstur. Keflavíkurflugvöllur sé auk þess einn dýrasti f lugvöllur Evrópu og eðli málsins samkvæmt sé helmingur lendinga og flugtaka héðan. Jafnframt sé mikil stærðarhag­ kvæmni í f lugrekstri. Alþjóðlegu lággjaldaf lugfélögin sem séu í góðum rekstri séu flest með nokkur hundruð flugvéla. „Ég tel því að það sé mjög erfitt að reka lítið lággjaldaflugfélag frá Íslandi svo ekki sé minnst á svo­ kölluð últra­lággjaldaf lugfélög sem einhvers staðar hefur verið talað um í þessu samhengi. Þetta er frekar einfalt: Til lengri tíma verða tekjurnar að vera hærri en kostnaðurinn. En ég ítreka að ég vona að WOW air takist að leysa sín vandamál og verði í rekstri áfram,“ segir forstjóri Ice­ landair Group. – kij Forstjóri Icelandair Group segir fásinnu að tala um ríkisábyrgð Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 7 -1 B 2 0 2 2 A 7 -1 9 E 4 2 2 A 7 -1 8 A 8 2 2 A 7 -1 7 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.