Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 34
Álagið getur skaðað
mannleg félagsleg
tengsl og heilsu starfs-
manna.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
ÍSvíþjóð hefur verið unnið mark-visst að því að fá fólk aftur út í atvinnulífið sem orðið hefur
fyrir kulnun í starfi vegna streitu
og álags. Sænska verkefnið kallast
Hugsandi vinnustaðir (Reflective
workplaces) og er stutt af heil-
brigðisráðuneytinu til að skapa
heilbrigðara atvinnulíf í Svíþjóð.
Verkefnið varð fyrst til í Karlstad
árið 1990.
Stefnt er að því að draga úr
veikindum á vinnumarkaði auk
þess að fá f leiri útbrunna starfs-
menn aftur til vinnu. Verkefnið
hefur einnig verið kynnt í Noregi á
ráðstefnu sem fram fór í Tromsø.
Starfsmenn fá sinn tíma á einum
vinnudegi í viku til að vinna
með sjálfa sig, fá hvatningu og
hugleiðslu til að læra að slaka á.
Fagfólk hefur tekið þátt í að byggja
fólkið upp, jafnt félagsfræðingar,
kennarar og stjórnendur fyrir-
tækja. Verkefnið stendur yfir í
fjórar vikur. Margir starfsmenn
hafa lýst yfir ánægju með þetta
fyrirkomulag sem hefur mikla
þýðingu til að koma í veg fyrir
streitu á vinnustað. Í ljós kom að
veikindadögum fækkaði umtals-
vert hjá þeim fyrirtækjum sem
tóku þátt í verkefninu. Í hraða
nútímans og álagi á vinnustöðum,
þar sem atvinnuöryggi er lítið og
erfitt að taka sér hlé yfir daginn,
er streita mikil hjá starfsmönnum.
Álagið getur skaðað mannleg
félagsleg tengsl og heilsu starfs-
manna. Með sænska verkefninu
er farið í gegnum hugsanaferlið á
vinnustaðnum og ástæður streitu
og álags fundnar út. Það stuðlar
að betri frammistöðu hjá starfs-
mönnum auk þess sem lífsgæði
þeirra aukast og líðanin verður
betri.
Kristian Tilander sem stendur
á bak við verkefnið segir að allir
vinnustaðir ættu að hafa efni á
að láta starfsfólki sínu líða vel í
vinnunni. „Það þarf að hindra að
fólk brenni út og veikist vegna
álags.“
Í rannsókn sem gerð var í fjór-
tán Evrópulöndum árið 2012 kom
fram að fólk sem vinnur í streitu-
miklu umhverfi hefur síður orku
til að stunda líkamsrækt í frítíma. Í
ljós komu sterk tengsl milli streitu
í vinnu og líkamlegrar virkni í
frítíma. Því meira álag í vinnunni,
þeim mun minni líkamleg virkni í
frítíma. Í rauninni er það áhyggju-
efni því hreyfing er besta lausnin
við streitu. Þótt rannsóknin sé
ekki alveg ný er hún í fullu gildi.
Aldurinn í þessari rannsókn var að
meðaltali 43,5 ár en hún birtist á
sínum tíma í American Journal of
Epidemiology.
Á Íslandi hefur orðið vitundar-
vakning um þessi mál og margs
konar námskeið í boði fyrir þá sem
vilja ná tökum á streitu í sínu dag-
lega lífi. Það er allra hagur, jafnt
vinnuveitenda sem starfsmanna,
að öllum líði vel í vinnunni.
Nauðsynlegt að ráðast gegn streitu
Allir þurfa að hjálpast að við að koma í veg fyrir streitu og kulnun á vinnustað. NORDICPHOTOS/PHOTOS
Streita og kulnun
er eitt af stóru
vandamálunum
í íslensku sam-
félagi. Margir
upplifa að þeir
séu að missa
stjórn á lífi sínu
vegna álags í
starfi. Nauðsyn-
legt er að fyrir-
byggja streitu en
hún hefur slæm
áhrif á heilsuna.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Komdu við hjá sérfræðingum
okkar að Laugavegi 174 og kynntu þér úrval Volkswagen atvinnubíla í einni fjölhæfustu
fjölskyldu landsins.
FJÖLHÆFASTA
FJÖLSKYLDA
LANDSINS?
Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með
3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél,
580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að
framan og aftan, regn- og birtuskynjara,
Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum.
Volkswagen Amarok
verð frá 8.290.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 6.220.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá 2.870.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fulkomin
stöðugleikastýring, spólvörn og
sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.590.000 kr.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-1
B
2
0
2
2
A
7
-1
9
E
4
2
2
A
7
-1
8
A
8
2
2
A
7
-1
7
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K