Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 37
Hjá Múlalundi tökum við að okkur mjög fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki og
stofnanir víðs vegar um sam-
félagið til lengri eða skemmri
tíma. Öll þessi verkefni skapa
störf fyrir fólk með skerta starfs-
orku auk þess að skila hágæða-
verki til viðskiptavina. Mörg
fyrirtæki ná með viðskiptum
sínum við Múlalund að f létta
saman daglega starfsemi og
samfélagsverkefni sem er frábær
blanda. Þetta eru ýmist sér-
framleiðsluverkefni eða fjöl-
breytt verk sem þarf að vinna í
höndunum. Verkefni til lengri
tíma eru sérstaklega mikilvæg,“
segir Sigurður Viktor Úlfars-
son, framkvæmdastjóri Múla-
lundar vinnustofu SÍBS. Þar
vinna dugmiklir einstaklingar
sem hafa þurft að takast á við
Daglegt starf fléttað saman
við samfélagsverkefni
Starfsfólk
Múlalundar sér
um að pakka
ávöxtum og
grænmeti
fyrir Ávaxta
bílinn. Haukur
Magnússon,
eigandi Ávaxta
bílsins, mælir
með samstarfi
við Múlalund.
Flestir kætast þegar þeim berst fersk sending frá Ávaxta-bílnum sem dreifir ávöxtum
og grænmeti til fyrirtækja. Það sem
fáir vita er að starfsfólk Múlalundar
sér um að pakka þessu góðgæti svo
það skili sér rétt í hendur kaupenda
en Múlalundur tekur að sér verkefni
fyrir fyrirtæki í öllum atvinnu-
greinum.
Haukur Magnússon, eigandi
Ávaxtabílsins, er mjög ánægður
með samstarfið við Múlalund
og segir því sinnt af alúð og trú-
mennsku. „Ég hef rekið Ávaxta-
bílinn í fjórtán ár og fyrir rúmum
tveimur árum varð að ráði að Múla-
lundur tæki að sér pökkun fyrir
fyrirtækið. Þetta var nýtt verkefni
fyrir Múlalund og ég hef heyrt að
starfsfólkinu finnist það skemmti-
legt og öðruvísi,“ segir Haukur og
tekur sérstaklega fram að sam-
starfið hafi gengið einstaklega vel.
Haukur tekur sjálfur á móti
pöntunum viðskiptavina og setur
pöntunarseðla í þar til gerða poka
sem síðan eru sendir á Múlalund.
„Ég fæ ávextina frá mínum birgi, 2-3
tonn í hvert sinn, senda á Múla-
lund. Vænn hópur starfsmanna
Múlalundar sér um að pökkunin
gangi hratt og örugglega fyrir sig og
að henni lokinni koma sendibílar
Ávaxtabílsins, sækja pantanir og
keyra þær út til viðskiptavina. Þetta
ferli gengur allt hratt og vel fyrir
sig,“ segir Haukur ánægður.
„Ég hef verið með þessa pökkun
á nokkrum stöðum en hún hefur
aldrei gengið jafn vel og nú. Starfs-
fólk Múlalundar er það besta sem
hefur sinnt þessu verkefni fyrir mig.
Starfsfólkið vandar sig, fylgist vel
með hvað það er að gera og er í góðu
sambandi við mig. Ég fæ skýrslu
eftir hverja pökkun þar sem kemur
fram hvernig allt hafi gengið. Bæði
almennir starfsmenn og yfirmenn
hafa tekið þetta verkefni mjög
alvarlega,“ segir Haukur sem fer
reglulega í heimsókn á Múlalund.
„Það er ávallt mikil stemning í
ávaxtapökkuninni. Ég mæli hik-
laust með samstarfi á borð við þetta
við Múlalund,“ segir Haukur.
Múlalundur vinnur vel
fyrir Ávaxtabílinn
Þorbjörg
Jensdóttir,
stofnandi og
framkvæmda
stjóri IceMed
ico, er mjög
ánægð með
samstarfið við
Múlalund.
Múlalundur hefur verið í góðu samstarfi við fyrir-tækið IceMedico sem
stýrt er af Þorbjörgu Jensdóttur.
„Múlalundur pakkar fyrir
IceMedico 200 g og 500 g magn-
umbúðum af tannvænu HAp+
molunum sem Tannlæknafélag
Íslands mælir með. IceMedico er
einnig með 39,8 g umbúðir sem
fást í apótekum og verslunum um
land allt. Magnumbúðirnar sem
Múlalundur pakkar eru fyrst og
fremst fyrir fyrirtækjamarkað og
má nálgast á www.happlus.com,“
segir Þorbjörg.
Hvar og hvernig fer vinnslan
fram?
„Vinnslan fer fram á Múlalundi.
Varan er framleidd erlendis og er
send á Múlalund í stórum eining-
um sem Múlalundur síðan vigtar
og pakkar í minni einingar. Með
þessu drögum við úr kolefnis-
sporinu sem verður við flutning
vara á milli landa og búum til
störf í íslensku samfélagi.“
Hvernig kom það til að þið
völduð Múlalund til að þjónusta
ykkur?
„Það hefur alltaf verið vilji og
áhugi hjá IceMedico á að styðja
við samfélagsgildi og skapa störf
eftir því sem félagið stækkaði
og hafði bolmagn til. Þegar það
myndaðist þörf fyrir að pakka á
Íslandi í umbúðir sem hentuðu
ekki í hefðbundnar pökkunar-
vélar, þá kom Múlalundur strax til
greina.“
Hvernig hefur samstarfið
gengið?
„Reynslan af samstarfinu er
mjög góð. Múlalundur hefur tök
á að hugsa í lausnum og mæta
mögulegum sérþörfum viðskipta-
manna sinna, sem er ekki alls
staðar hægt, og mikill virðisauki
meðal annars fyrir okkur.“
Mælir þú með því að fyrirtæki
nýti sér þjónustu Múlalundar?
„Já, hiklaust, ef það eru verkefni
sem henta ekki hefðbundnum
lausnum þá er Múlalundur frábær
samstarfsfélagi, sveigjanlegur og
lausnamiðaður.“
Sveigjanleg og
lausnamiðuð þjónusta
fötlun og veikindi, bæði andleg
og líkamleg, í kjölfar slyss eða
heilsubrests.
Vörur sérframleiddar
fyrir viðskiptavini
Múlalundur sérframleiðir vörur
sem hannaðar eru sérstaklega
fyrir tiltekna viðskiptavini með
þeirra útliti, áletrunum eða
hönnun. Dæmi um þetta eru sér-
hæfðir plastvasar, möppur eða
fundabækur með áletrun við-
skiptavinar. Stór hluti landakorta
á Íslandi er seldur í plastvasa frá
Múlalundi til að auka endingu,
Andrésar Andarmöppurnar eru
þekktar og matseðlar og hótel-
möppur Múlalundar eru notuð
víða um land.
Alúð í hverju handtaki
„Auk sérframleiðslunnar tökum við
að okkur ýmiss konar handavinnu-
verkefni. Mörg fyrirtæki kjósa að
nýta sitt starfsfólk í annað og fá
okkur í handavinnuna. Ef þú þarft
að raða, klippa, pakka, líma eða
hvað sem er þá erum við til í tuskið.
Innflutningsfyrirtæki fá okkur til
að líma íslenskar leiðbeiningar og
strikamerki á vörur, við brjótum
öskjur fyrir Valitor sem fylgja
með greiðslukortum í bönkum,
brjótum öskjur, vigtum og göngum
frá holla HAp+ brjóstsykrinum
fyrir IceMedico, höfum pakkað
fatnaði og merkt fyrir hönnuði og
fataframleiðendur, framleitt ýmiss
konar markpóst fyrir fyrirtæki
þegar nauðsynlegt er að gera eitt-
hvað alveg sérstakt sem þarfnast
alúðar og mannskaps, og margt
fleira. Tvisvar í viku pökkum
við fyrir Ávaxtabílinn og sjáum
algjörlega um þann þátt í þeirra
starfsemi. Þá tökum við að okkur
að plasta vörur, t.d. bækur, og erum
með góðan búnað í það.
Margir tengja Múlalund fyrst og
fremst við möppur og plastvasa
en fjölbreytni verkefna er miklu
meiri,“ segir Sigurður.
Einfaldasta samfélags
verkefnið og gott verð
„Hjá Múlalundi fást svo allar
almennar skrifstofuvörur, pappír
og ritföng á einum stað. Við segjum
að þetta sé einfaldasta samfélags-
verkefnið, bara að panta og fá
vörurnar sendar um
allt land daginn eftir,“
segir Sigurður.
Hann segir ánægju-
legt að byggja upp
sjálfstraust og þrótt
fólks með þátttöku á
vinnumarkaði. „Fólki er
mikilvægt að fá að mæta
til vinnu, eiga vinnufé-
laga og vera virkt í sam-
félaginu.“
Allar upplýsingar
má finna á heimasíðu
Múlalundar og úrvalið í
vefversluninni kemur svo
sannarlega á óvart. „Eru ekki ein-
hver verkefni sem taka óþarfa tíma
á vinnustaðnum? Þá er um að gera
að láta Múlalund sjá um þau,“ segir
Sigurður að lokum.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðunni www.mulalundur.is.
Múlalundur
vinnustofa SÍBS
hefur í 60 ár
boðið einstakl-
ingum og fyrir-
tækjum allt fyrir
skrifstofuna en
sinnir auk þess
fjölbreyttum sér-
verkefnum fyrir
viðskiptavini.
Hér má sjá fallega matseðla sem
Múlalundur hefur framleitt.
Verkefnin hjá Múlalundi eru afar fjölbreytt. MYND/ERLING ÁRNASON
KYNNINGARBLAÐ 11 M I ÐV I KU DAG U R 2 7 . M A R S 2 0 1 9 FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
7
-3
D
B
0
2
2
A
7
-3
C
7
4
2
2
A
7
-3
B
3
8
2
2
A
7
-3
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K