Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 41
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynntar skipulagslýsingar fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:
1. Breyting á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022, Miðmundarholt 1-6.
Kynnt er skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022.
Tillagan gerir ráð fyrir breyttri landnotkun í Miðmundarholti, úr Í3 sem er íbúðarbyggð, í verslunar- og þjónustusvæði, þar sem gert er ráð
fyrir gistingu í rekstrarflokki II.
2. Breyting á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, Bitra, þjónustumiðstöð.
Kynnt er skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Flóahrepps
2017-2029. Breytingartillagan gerir ráð fyrir að byggingarmagn á lóðinni fyrir verslunar- og þjónustureit Bitru (VÞ8) verði aukið úr 5.000
m2 í 8.500 m2 og gististarfsemi verði heimiluð á lóðinni.
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynntar tillögur fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:
3. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, Launrétt, Laugarási
Tillagan felur í sér að lóðinni er breytt úr samfélagsreit, í verslunar- og þjónustureit, þannig að heimilt verði að gefa út rekstraleyfi í fl. II á
lóðinni til sölu gistingar í atvinnuskyni.
4. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, Leynir Rimatjörn
Tillagan felur í sér að hluti frístundasvæðis, merkt F42 í aðalskipulagi, minnkar um 9 ha og þessum hluta svæðisins breytt í land-
búnaðarsvæði.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar lýsingar fyrir eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
5. Deiliskipulag, Þingvellir, Bratti í Botnsúlum, Bláskógabyggð
Kynnt er lýsing vegna nýs deiliskipulags sem tekur til Bratta í Súlnadal í Botnssúlum. Á staðnum var lítill skáli sem hefur verið fjarlægður.
Til stendur að reisa nýjan skála allt að 80m2 að stærð fyrir allt að 30 manns í gistingu. Ekki er vegur að staðnum og ekki heimilt að aka að
skálanum. Svæðið er í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem fjallasel.
6. Deiliskipulag, Svartárbotnar (Gíslaskáli), Afréttur norðan vatna, Bláskógabyggð
Kynnt er lýsing vegna nýs deiliskipulags sem tekur til Svartárbotna (Gíslaskála) á Kili í Bláskógabyggð. Á staðnum er gangnamannahús og
aðstaða til að taka á móti hestahópum. Þar er einnig rekin þjónusta við ferðamenn. Í Gíslaskála er gistipláss fyrir 45-50 manns. Til sten-
dur að stækka skálann fyrir allt að 70 manns í gistingu. Einnig stendur til að bæta aðstöðu fyrir hesta. Aðkoma er af Kjalvegi. Á svæðinu
er núverandi 270 m2 svefnskáli, 96 m2 hesthús og 20 m2 starfsmannahús. Svæðið er í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint
sem fjallasel.
7. Deiliskipulag, Geldingafell, FramafrétturBláskógabyggð
Kynnt er lýsing vegna nýs deiliskipulags sem tekur til skálasvæðis í Geldingafelli á Kili vestan við Bláfell. Á svæðinu eru alls 7 byggingar,
ýmist fyrir starfsfólk og búnað vegna þjónustu vélsleðaferða á Langjökul. Aðkoma er af Kjalvegi á um Skálpanesveg. Til stendur að auka
gisti- og veitingaaðstöðu fyrir allt að 50 gesti. Einnig er gert ráð fyrir byggingum fyrir búnað vegna ferða á Langjökul. Stærð svæðisins er
um 2 ha. Geldingafell er í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem skálasvæði.
8. Deiliskipulag, Árbúðir, Afréttur norðan vatna, Bláskógabyggð
Kynnt er lýsing vegna nýs deiliskipulags sem tekur til Árbúða sem eru við Svartá, skammt norðan við Hvítá á Kili og er aðkoma af Kjalvegi.
Á svæðinu eru alls 4 byggingar, ýmist fyrir gisti- og þjónustu, starfsfólk, salernisaðstöðu og hesthús. Til stendur að auka gisti- og
veitingaaðstöðu fyrir allt að 70 gesti. Stærð svæðis er um 2 ha. Árbúðir eru í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem
hálendismiðstöð.
9. Deiliskipulag, Skálpanes, Framafréttur, Bláskógabyggð
Kynnt er lýsing vegna nýs deiliskipulags sem tekur til Skálpaness sem er við Langjökul, nokkuð vestan Geldingafells. Aðkoma er af Kjalve-
gi á um Skálpanesveg. Á svæðinu eru alls 2 byggingar, ýmist fyrir ferðaþjónustu og starfsfólk. Ekki er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu,
einungis viðhaldi á núverandi mannvirkjum. Stærð svæðis er um 2ha. Skálpanes er í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint
sem fjallasel.
10. Deiliskipulag, Fremstaver, Framafréttur, Bláskógabyggð
Kynnt er lýsing vegna nýs deiliskipulags sem tekur til Fremstavers sem er sunnan við Bláfell, vestan Hvítár. Aðkoma er af Kjalvegi. Nokkur
gróður er umhverfis húsið og einnig hafa verið útbúin áningarhólf fyrir hesta. Á svæðinu eru alls 3 byggingar, ýmist fyrir ferðaþjónustu,
salernishús og hesthús. Gistipláss er fyrir 30 manns. Til stendur að auka gisti- og veitingaaðstöðu fyrir allt að 50 gesti og bæta aðstöðu
reiðhópa. Stærð svæðis er um 2 ha. Fremstaver er í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem fjallasel.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
11. Deiliskipulagsbreyting, Kálfholt 2 K2, L165296 í Ásahreppi.
Breytingin fellst í að í stað 5 smáhýsa á reit F1, verður heimilt að byggja allt að 120m2 hús ætlað ferðaþjónustu. Svæðið er í samræmi við
aðalskipulag Ásahrepps 2010-2022 , skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.
12. Deiliskipulag, Húsar 1 land, L165337 í Ásahreppi.
Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar íbúðarhúss, hesthúss, skemmu og gestahúsa. Landeigandi hyggst byggja jörðina upp og hafa
þar fasta búsetu. Aðkoma að jörðinni er af Kálfholtsvegi nr. 288 og um núverandi aðkomuveg. Í aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 eru
Húsar 1, skilgreindir sem landbúnaðarland en einnig sem frístundasvæði F4 og er gert ráð fyrir þeim þremur frístundahúsum sem eru á
Húsa-jörðunum.
13. Deiliskipulagsbreyting, Dalbraut 6 og 8 á Laugarvatni, Bláskógabyggð.
Tillagan gerir ráð fyrir að sameina lóðir nr. 6 og 8 við Dalbraut og að byggingarreitur á Dalbraut 8 stækki til suðurs, austurs og vesturs.
Einnig er óskað eftir að skilmálabreyting verði vegna þakforms þ.e. 10-30 gráður eða einhallandi þak. Ofangreindar breytingar eru skil-
greindar í gildandi deiliskipulagi frá 2012 fyrir lóðirnar Dalbraut 6-12. Markmið breytingarinnar er að gera mögulega stækkun á núverandi
verslunarhúsnæði ásamt öðrum smærri verslunar- og eða þjónusturekstri til viðbótar.
14. Deiliskipulagsbreyting, Freyjustígur 13, Ásgarði, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breyting á gildandi deiliskipulagi gerir ráð fyrir
breytingu á lið 3. í greinargerð/skilmálum undir grein um “Húsagerðir og byggingarlag”, að í stað kröfu um að byggingarefni húsa sé
timburhús, verði byggingarefni húsa gefin frjáls.
15. Deiliskipulag, Hellnaholt, Fossnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar íbúðarhúss, hesthúss, átta frístundalóða og einnar landbúnaðarlóðar. Aðkoma að jörðinni er af
Gnúpverjavegi nr. 325 og um núverandi aðkomuveg að frístundahúsum norðan hans.
16. Endurskoðun deiliskipulags, Árnes, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi þéttbýliskjarna í Árnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Markmiðið með breytingunni er að
laga skipulagsgrunninn til samræmis við raunveruleg lóðamörk skv. nýrri mælingu lóða og gatna innan þéttbýlisins í Árnesi ásamt fleiri
breytingum s.s. skilmálabreytingum, breytingum á heitum ofl.
17. Deiliskipulag, Götumelur úr landi Birkikinnar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Deiliskipulagið tekur til lóðarinnar Götumels úr landi Birkikinnar sem er 8.829 m2 að stærð. Gert er ráð fyrir að byggt verði allt að 160 m2
frístundahús, auk gestahúss og geymslu. Nýtingarhlutfall lóðar fari þó ekki yfir 0,03. Aðkoma að lóðinni er um Hælisveg (326)
18. Deiliskipulag, Vorsabær 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Deiliskipulagstillagan tekur til afmörkunar tveggja lóða, annarsvegar fyrir hesthús ásamt reiðskemmu og hinsvegar fyrir frístundahús.
Aðkoma að lóðunum er af Vorsbæjarvegi (312). Deiliskipulagstillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps
2004-2016.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16.
Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.utu.is.
Skipulagstillögur nr. 1 - 10 eru í kynningu frá 27. mars 2019 til 17. apríl 2019, en tillögur nr. 11 - 18 frá
27. mars til 8. maí 2019. Athugasemdir og ábendingar við tillögu nr. 1 - 10 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 17. apríl 2019, en
8. maí 2019 fyrir tillögur nr. 11 - 18. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Rúnar Guðmundsson
Skipulagsfulltrúi
runar@utu.is
Seljahlíð, heimili aldraðra.
Seljahlíð er með aðstöðu til leigu fyrir fótaað-
gerðafræðing í húsnæði Seljahlíðar, Hjallaseli
55, 109 Reykjavík.
Áhugasamir skulu senda inn ferilskrá fyrir
12. apríl 2019, aðstaðan er tilbúin til leigu frá
1. júní 2019, eða fyrr eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Árdís Ósvalds-
dóttir, forstöðumaður Seljahlíðar, sími: 540 2400
netfang: margret.ardis.osvaldsdottir@reykjavik.is
eftir 1. apríl 2019
Velferðarsvið
Aðstaða fyrir fótaaðgerðafræðing
- með þér alla leið -
569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Glæsilegar íbúðir með
lokuðum svölum
Sýnum samdægurs
Bókið skoðun
Afhending: Apríl 2019
Verð frá : 43,9 millj.
Jason Ólafsson
lögg. fasteignasali
Sími: 775 1515
jko@miklaborg.is
Svan G. Guðlaugsson
lögg. fasteignasali
Sími:697 9300
svan@miklaborg.is
Höfðatorg
Bríetartún 9- 11
105 Reykjavík
OPIÐ HÚS
miðvikudaginn 27. mars kl. 17:30 – 18:00
Tilkynningar
Fasteignir
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
SMÁAUGLÝSINGAR 7M I ÐV I KU DAG U R 2 7 . M A R S 2 0 1 9
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
7
-5
6
6
0
2
2
A
7
-5
5
2
4
2
2
A
7
-5
3
E
8
2
2
A
7
-5
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K