Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 53
Sérfræðingur
á fjármálasviði
Óskum eftir að ráða sérfræðing á fjármálasviði fyrir Eignaumsjón hf.
Helstu verkefni eru:
» Stýring fjármuna viðskiptavina Eignaumsjónar í samvinnu við fjármálastjóra
» Stýring greiðslu reikninga fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
» Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi reikninga, innheimtu og áætlanir
» Vinna við gerð rekstraráætlana fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
» Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
» VSK endurgreiðslur fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
» Samskipti við fjármálastofnanir fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar í samvinnu við fjármálastjóra
» Önnur fjölbreytt dagleg störf
Hæfniskröfur: Menntun á sviði fjármála-/viðskiptafræði eða sambærileg menntun. Marktæk starfsreynsla af sambærilegum
störfum er skilyrði. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Viðkomandi þarf einnig að vera lipur í
mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2019. Um framtíðarstarf er að ræða og verður gengið frá ráðningu sem fyrst.
Vinsamlega sendið umsóknir og meðfylgjandi gögn til stra@stra.is.
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ veitir frekari upplýsingar um starfið í síma: 588 3031. Símaviðtalstími er frá kl.13-15 alla virka daga
meðan á umsóknarferlinu stendur. Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi hjá STRÁ geta hringt eða sent rafpóst og tilkynnt þátttöku.
Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög húseigna og býður heildarlausnir í rekstri
fjöleignarhúsa, bæði íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Félagið hefur umsjón með daglegum rekstri um 450 hús- og
rekstrarfélaga. Áhersla okkar til framtíðar er að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með góðri þjónustu, sérþekkingu á
viðfangsefnum og skilvirkum lausnum sem byggja á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum.
Eignaumsjón hf. – Suðurlandsbraut 30 – sími 585 4800 – www.eignaumsjon.is
Við leitum að metnaðarfullum, snjöllum og skilvirkum einstaklingi til að leiða fjármál Þjóðskrár Íslands. Fjármálastjóri heyrir
undir sviðsstjóra skrifstofu forstjóra. Starfið byggir á miklum samskiptum við stjórnendur stofnunarinnar og felst meðal annars í
fjárhagslegum rekstri, áætlunargerð og eftirfylgni með áætlunum og þátttöku í nýsköpun á sviði fjármála. Um er að ræða spennandi
starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri til að þróa og innleiða nýja ferla og bæta vinnulag. Fjármálastjóri er staðgengill sviðsstjóra
skrifstofu forstjóra.
Fjármálastjóri
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í viðskiptafræði, rekstrarhagfræði eða sambærileg menntun
er skilyrði
• Marktæk reynsla af fjármálastjórnun og bókhaldi
• Þekking og reynsla af opinberum rekstri og lögum um opinber fjármál er kostur
• Þekking og reynsla af Oracle bókhaldskerfi ríkisins er kostur
• Góð tölvufærni og þekking, s.s. í Excel er skilyrði
• Góð færni til að greina gögn og finna lausnir
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í hóp
• Metnaður, skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón með reikningsskilum og fjárstýringu
• Umsjón með áætlanagerð og skýrslugerð um
fjárhagsstöðu
• Gerð greiðsluáætlana og eftirlit með kostnaði
• Fjárhagslegar greiningar og gerð kostnaðarmata
• Úrvinnsla tölulegra upplýsinga fyrir stjórnendur
• Innleiðing nýrra verkefna og verklags
• Eftirlit með framkvæmd samninga
• Yfirumsjón með verkbókhaldi
Þjóðskrá Íslands hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík. Starfið getur verið staðsett á báðum stöðum.
www.skra.is
www.island.is
Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks
og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga
um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með
því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um
fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfssviðs
Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og
þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat,
rekstur island.is og umsjón með útgáfu vegabréfa.
Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti
og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar
þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs
við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um
virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika.
ÁREIÐANLEIKIVIRÐING
SKÖPUNARGLEÐI
Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2019.
Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar á netfangið starfsumsoknir@skra.is.
Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir sviðsstjóri,
netfang iss@skra.is eða Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir, netfang ghh@skra.is
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum.
Við nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að verða betri í dag en í gær.
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
2
-4
E
3
C
2
2
C
2
-4
D
0
0
2
2
C
2
-4
B
C
4
2
2
C
2
-4
A
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K