Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 92
Í ÞESSUM MÁLVERK-
UM RAÐA ÉG SAMAN
EGGJUM, EINS OG ÉG SÉ AÐ
SKAPA LANDSLAG OG SET
JAFNVEL GOÐSÖGULEGAR
VERUR INN Í ÞAU.
IÐNAÐARHÚSNÆÐI
TIL LEIGU
Vagnhöfði 17
s. 776 8484 – siggahrund@gmail.com
Eitt
bil laust115-120 m² með millilofti,
allt nýuppgert
s. 618 8418 • vinnupallarehf@gmail.com
FRÁB
ÆR Þ
JÓNU
STA -
GÓÐ
VERÐ
SALA
OG L
EIGA
Plettac vinnupallar
- Protekt fallvarnarbúnaður
Láttu öryggi og lausnir ráða ferðinni
Í Galleríi Fold verður í dag, laugardaginn 6. apríl, opnuð sýning á verkum eftir fær-eyska listamanninn Edward Fuglø og er fyrsta einkasýn-ing hans hér á landi. Sýningin
nefnist Eggcentrics en langvíuegg
eru áberandi á akrýlmyndum lista-
mannsins. „Ég kalla sýninguna Egg-
centrics því þar eru egg í forgrunni
og í myndunum blandast saman
súrrealismi, popplist og teikni-
myndir,“ segir listamaðurinn.
Hann hefur unnið með langvíu-
egg árum saman með hléum. „Ég
heillast af langvíueggjum vegna
þess að þau eru einstök og sérstakt
mynstur er á hverju og einu þeirra,
þau eru eins og fingraför,“ segir
listamaðurinn. „Það eru þúsundir
langvíueggja í Færeyjum. Þegar
fuglarnir f ljúga frá hreiðrinu koma
þúsundir eggja í ljós á björgunum
og þegar fuglinn snýr aftur finnur
hann sín egg samstundis aftur.
Ástæðan er mjög líklega sterkt
lyktarskyn og útlit eggjanna, hvert
og eitt hefur sitt sérkenni.
Það sem hrífur mig einnig í sam-
bandi við egg er að þau geyma líf.
Mér finnst ég geta sagt endalausar
sögur með því að nota þetta form,
því f lest getur komið út úr eggi. Í
þessum málverkum raða ég saman
eggjum, eins og ég sé að skapa lands-
lag og set jafnvel goðsögulegar verur
inn í þau.“
Fuglø er vel þekktur í Danmörku
og Færeyjum en hann býr í Klaks-
vík. Hann útskrifaðist úr Konung-
lega danska listaháskólanum og
verk eftir hann eru í eigu Listasafns
Færeyja, Listasafns Þrándheims og
Margrét Danadrottning á þrjú mál-
verk eftir hann. Eitt þeirra færðu
Færeyingar henni að gjöf í tilefni
fjörutíu ára valdatíðar hennar. Hún
hreifst svo af því málverki, sem var
mynd af henni og fuglum, að hún lét
gera póstkort eftir því.
Fuglø hefur unnið mikið við leik-
hús í Færeyjum við sviðs- og bún-
ingahönnun og hefur unnið með
íslenskum leikstjórum við upp-
setningu á íslenskum og erlendum
leikverkum í Færeyjum og á Akur-
eyri. Hann hefur myndskreytt fjöl-
margar bækur og hlaut árið 2001
Norrænu barnabókaverðlaunin
fyrir myndskreytingar sínar. Hann
hefur sjálfur skrifað sex barnabæk-
ur, fyrir börn á aldrinum 5-10 ára.
Ein þeirra, Apollonia, var tilnefnd
til barna-og unglingabókaverð-
launa Vestnorræna ráðsins.
Hann hef u r sk rey tt f jölda
bygginga, bæði í Færeyjum og
Danmörku, meðal annars Krist-
jánskirkjuna í Klaksvík með tíu
lágmyndum. Hann vinnur nú að
skreytingum úr gleri sem eiga að
prýða gamla kirkju. Spurður hvort
hann trúi á Guð segir hann: „Ég trúi
meira á hann en sjálfan mig.“ Hann
bætir við: „Það væri vanvirðing að
vinna að kirkjuskreytingum og hafa
enga trú. Ég er samt ekki trúboði!“
Finnst ég geta sagt
endalausar sögur
Færeyski listamaðurinn Edward Fuglø sýnir verk sín í Galleríi
Fold. Heillast mjög af langvíueggjum. Margrét Danadrottning
hreifst af verki eftir hann og lét gera eftir því póstkort.
Í myndunum blandast saman súrrealismi, popplist og teiknimyndir.
Edward Fuglø sýnir verk sín í Gallerí Fold. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
1
-F
A
4
C
2
2
C
1
-F
9
1
0
2
2
C
1
-F
7
D
4
2
2
C
1
-F
6
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K