Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 68
senalive.is/divur
14. SEPTEMBER Í ELDBORG HÖRPU
MIÐASALA Á HARPA.IS/DIVUR
SVALA & JÓHANNA GUÐRÚN
DÍSELLA · FR IÐRIK ÓMAR · KATRÍN HALLDÓRA
RAGGA GRÖNDAL · S IGGA BEINTEINS
Ég hef trú á að þetta breyti pitsuleiknum,“ segir Jón Gunnar Geirdal, einn af
eigendum Blackbox, en staðurinn
býður nú upp á ketó botna. Það eru
innan við 10 grömm af kolvetnum
í hverjum botni sem gerir hann að
einum heilsusamlegasta pitsu-
botni landsins.
Það að botninn sé „ketó“ þýðir
ekki að hann innihaldi 0 grömm
kolvetni heldur að hann passi inn
í þennan ramma sem fólk hefur
til þess að halda sér í ketónísku
ástandi, þ.e. að halda sér undir 20 g
af kolvetnum á dag.
„Ketó eru trúarbrögð þannig að
þetta verður að vera alveg 100% og
akkúrat þess vegna liggur öll þessi
vinna að baki hjá okkur í að full-
komna botninn. Innihaldslýsingin
er líka ketó fólki mjög mikilvæg
og þeir sem kjósa að fá sér svona
botn geta séð alveg nákvæmlega
hvað er í honum þegar þeir mæta
til okkar.“
Jón Gunnar og Karl Viggó, bak-
ari og einn af eigendum Blackbox,
eyddu ómældum tíma í að búa til
botninn. „Áferðin varð að vera
eins og á pitsubotni og tilfinningin
þannig að það sé verið að borða
pitsu, það var okkur gríðarlega
mikilvægt. Það er nefnilega rík
Breytir pitsuleiknum
Svo virðist sem allir séu á ketó mataræðinu. Það eru margir í það minnsta að prófa sig áfram í því.
Ketó er frekar einhæft en nú er hægt að prófa sig áfram með ketó pitsu á Blackbox.
Stoltir eigendur. Tveir af eigendum Blackbox, Jón Gunnar og Karl Viggó bak
ari, eyddu ómældum tíma í að búa til botninn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
„Áferðin varð
að vera eins og
á pitsubotni
og tilfinningin
þannig að það
sé verið að
borða pitsu,
það var okkur
gríðarlega
mikil vægt,“ seg
ir Jón Gunnar
meðal annars.
Fyrir utan pits
urnar er komin
dásamleg
salatskál sem
hressir, bætir og
kætir.
Gott taco-salat með kjúklingi er frábær kvöldverður og ef það verður afgangur þá er
vel hægt að hafa það í nesti daginn
eftir. Ef það er gott veður er auð-
vitað best að grilla kjúklinginn
á útigrilli. Þá fær hann góða húð
og verður safaríkur. Þá er sömu-
leiðis alltaf mjög gott að marinera
kjúklinginn í nokkra tíma áður en
hann er eldaður.
Þetta salat er ekki bara bragð-
gott heldur einnig fallegt á
litinn. Það er hægt að nota eitt og
annað í salatið eftir því hvað til
er í ísskápnum. Í þessu salati eru
meðal annars kirsuberjatómatar,
lárpera og maísbaunir en gott er að
strá smá tortilla-nasli yfir.
Látið kjúklinginn hvíla í stutta
stund eftir eldun áður en hann er
skorinn í sneiðar svo hann verði
safaríkur.
Salatið
300 g blandað salat eftir smekk
1 græn paprika
150 g kirsuberjatómatar, skornir
til helminga
34 vorlaukar, í sneiðum
Ein lúka steinlausar ólífur,
skornar í tvennt
1 lítil dós maísbaunir
1 lárpera, skorin í bita
Tortillanasl
Kjúklingurinn
2 stórar kjúklingabringur
50 ml ólífuolía
1 msk. ferskt kóríander, smátt
skorið
2 hvítlauksrif
1 msk. chilliduft
Safi úr einni límónu
Gerið marineringu með því að
hræra saman allt það sem upp
er talið. Geymið ⅓ af henni en
hellið hinu yfir kjúklinginn. Snúið
kjúklingabringunum þannig að
marineringin þeki hann allan.
Setjið plast yfir og geymið í ísskáp
þar til eldun hefst.
Salatdressingin
4 msk. sýrður rjómi
2 msk. majónes
⅓ af marineringunni
½ límóna
Salt
Allt hrært saman.
Steikið kjúklinginn í ofni við
200°C í 20 mínútur eða grillið á
útigrilli í um það bil sex mínútur á
hvorri hlið.
Setjið salatið á fat ásamt papriku,
tómötum, lárperu, vorlauk
og ólífum. Takið vökvann frá
maísbaununum og setjið saman
við. Það má líka nota svartar
niðursoðnar baunir, þá þær eru
skolaðar og settar saman við
salatið. Blandið öllu saman, skerið
kjúklinginn í sneiðar og raðið ofan
á salatið. Stráið tortilla-nasli yfir.
Berið fram með salatdressingunni
og límónubitum. Það má gjarnan
hafa gott brauð með þessum rétti.
Frábært kjúklingasalat
Frábært salat
sem hægt er að
henda í hvenær
sem er.
Ketó
Í mjög einfölduðu máli snýst ketó um að borða þannig að líkaminn
skipti úr því að nota kolvetni sem orkugjafa yfir í að nota fitu sem
orkugjafa, samkvæmt vef heilsu.is. Allar kornvörur, brauð, kex, pasta,
sterkjuríkt grænmeti og flestir ávextir eru t.d. útilokaðir. Flestir eru
líklega að nota ketó til að léttast, brenna fitu af líkamanum. Það
virkar oft mjög vel og hratt en fólk lendir oft í vandræðum með þetta
mataræði til lengri tíma litið.
Ástæðurnar geta t.d. verið að fólk fái leiða á mataræðinu sem
verður of einhæft.
ástæða fyrir öllu á matseðlinum á
Blackbox og á bak við hvert atriði
eða hráefni liggja miklar pælingar
og botnlaust smakk.
Tilfinningin á að vera að þú sért
að borða pitsu, holla pitsu og það
hefur loksins tekist. Nú er hægt að
fá sér pitsu með kolvetnasnauðu
samviskubiti,“ segir Jón.
Krúnudjásnið er alltaf ofninn
sem bakar pitsurnar á aðeins
tveimur mínútum. Ofninn fer í
rúmar 400 gráður og það er erfitt
að sjá hann ekki þegar maður
gengur inn á Blackbox staðinn.
„Hann er rokkstjarnan á þessum
stað og líka uppi í Mosfellsbæ, þar
sem við opnum núna í apríl enn
stærri stað sem gaman verður að
frumsýna.“
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
2
-5
8
1
C
2
2
C
2
-5
6
E
0
2
2
C
2
-5
5
A
4
2
2
C
2
-5
4
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K