Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 18
KR - Þór Þorlákshöfn 99-91
KR: Michele DiNunno 26, Julian Boyd 17/11
fráköst, Kristófer Acox 17/11 fráköst, Jón
Arnór Stefánsson 14, Pavel Ermolinskij 9,
Emil Barja 7, Helgi Már Magnússon 6, Finnur
Atli Magnússon 3.
Þór Þorlákshöfn: Kinu Rochford 26, Nikolas
Tomsick 18, Emil Karel Einarsson 17, Halldór
Garðar Hermannsson 13, Jaka Brodnik 13,
Davíð Arnar Ágústsson 4.
KR er komið 1-0 yfir í einvígi liðanna. Vinna
þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslita-
einvígið um Íslandsmeistaratitilinn.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Southampton - Liverpool 1-3
1-0 Shane Long (9.), 1-1 Naby Keita (36.),
1-2 Mohamed Salah (80.), 1-3 Jordan
Henderson (86.).
Enska úrvalsdeildin
Ég er hrædd um að
einvígi Hauka og
Vals verði ójafnt og endi 3-0
fyrir Val. Hinum megin mun
Fram hafa betur að lokum
3-1 í jafnari viðureign.
Kristín Guðmundsdóttir
HANDBOLTI Lokaumferð Olís-deild-
ar karla í handbolta fer fram í kvöld.
Ljóst er hvaða átta lið munu komast í
úrslitakeppni deildarinnar, Haukar
hafa nú þegar tryggt sér deildar-
meistaratitilinn og Grótta er fallin.
Mesta spennan fyrir leiki kvölds-
ins er svo hvort Akureyri eða Fram
fylgi Gróttu niður í næstefstu deild.
Akureyri er fyrir umferðina í fall-
sæti með 12 stig en Fram sæti ofar
með 13 stig. Norðanmenn þurfa því
að hafa betur í leik sínum gegn ÍR og
treysta á að ÍBV vinni Fram.
Akureyri er nýliði í deildinni
á yfirstandandi leiktíð en Fram
væri að falla í fyrsta skipti síðan
liðið tryggði sér sæti í efstu deild
árið 1996 eftir þriggja ára veru
í næstefstu deild.
Akureyri vann sinn fyrsta leik
eftir áramót, þegar liðið strengdi
líflínu í baráttu sinni við að forðast
fallið úr deildinni, á móti Stjörnunni
í þarsíðustu umferð deildarinnar.
Fram mistókst hins vegar að
tryggja sér sæti í efstu deild á næstu
leiktíð þegar liðið kastaði frá sér
Akureyri eða
Fram mun falla
HANDBOLTI Undanúrslit í Olísdeild
kvenna í handbolta hefjast í dag en
þá leiða saman hesta sína deildar-
og bikarmeistarar Vals og Haukar
sem höfnuðu í fjórða sæti ann-
ars vegar og Fram sem er ríkjandi
Íslandsmeistari og ÍBV sem endaði
í þriðja sæti deildarinnar hins vegar.
Kristín Guðmundsdóttir, leik-
maður Stjörnunnar, þurfti að bíta
í það súra epli að taka ekki þátt í
úrslitakeppninni að þessu sinni en
hún er margreynd í leikjum af þessu
tagi. Fréttablaðið fékk hana til þess
að spá í spilin fyrir komandi einvígi.
„Ég er svolítið hrædd um að þetta
verði ójafnt einvígi sem muni enda
3-0 Val í vil. Valur er með ógnar-
sterkt lið á meðan Haukastelpurnar
hafa verið mjög óstöðugar í vetur
og þá gekk liðið í gegnum þjálfara-
breytingu skömmu fyrir úrslita-
keppnina. Þjálfarateymið sem tekur
við hefur hins vegar fengð tíma til
þess að undirbúa sig og liðið hefur á
að skipa reynslumiklum leikmönn-
um sem eru til alls líklegir. Maria
Ines Da Silva Pereira og Karen Helga
Díönudóttir þurfa að eiga toppleiki
hjá Haukum til þess að þetta fari vel
hjá þeim og Ramune Pekarskyte
þarf að hrista af sér þau meiðsli sem
hafa verið að plaga hana undan-
farið. Þá þarf Ragnheiður Sveins-
dóttir að láta til sín taka á línunni.
Haukar verða að ná að spila vörn þar
sem leikmenn liðsins eru óþolandi
árásargjarnir og láta Valsliðið hafa
fyrir hverju marki sem það skorar
og ná að skora auðveld mörk,“ segir
Kristín um viðureign Vals og Hauka.
„Ef Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir getur aftur á móti beitt sér
af fullum krafti og Íris Björk Sím-
onardóttir leikur af eðlilegri getu í
markinu er Valur mjög óárennilegt.
Lovísa Thompson er svo baneitruð
sóknarlega og Sandra Erlingsdóttir
og Díana Dögg Magnúsdóttir hafa
verið að leika vel í vetur. Verði allt
eðlilegt mun Valur fara á nokkuð
sannfærandi hátt áfram og liðið býr
að því að hafa mikla breidd og getur
Vonar að Haukum og ÍBV
takist að stríða stórveldunum
Flestir telja að Valur og Fram komi til með að leika til úrslita í Olís-deild kvenna í handbolta í vor. Kristín
Guðmundsdóttir vonast hins vegar til þess að rimmurnar í undanúrslitunum verði jafnar og spennandi.
Hún er aftur á móti sammála þeim sem telja að Valur og Fram muni berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Kristín spáir því að Sunna Björnsdóttir og félagar hennar hjá Fram mæti Val í úrslitum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
góðri stöðu í leik sínum gegn Aftur-
eldingu í síðustu umferð.
Aðrir leikir kvöldsins eru topp-
slagur Hauka og Vals, Stjörnunnar
og Selfoss, KA og FH og Gróttu og
Aftureldingar. – hó
rúllað hópnum án þess að það bitni
á leik liðsins,“ segir hún enn fremur
um þá viðureign.
„Hinum megin gæti einvígið verið
eitthvað jafnara en ég held að Fram
vinni þar 3-1. Þar skiptir miklu máli
að Guðný Jenný Ásmundsdóttir,
sem getur lokað markinu þegar sá
gállinn er á henni, verður að öllum
líkindum ekki með. Það er lykil-
atriði fyrir ÍBV að þær fái Sunnu
Jónsdóttur í miklum ham inn í þessa
leiki. Hún getur drifið leikmenn
með sér bæði í vörn og sókn og hún
ásamt Örnu Sif Pálsdóttur og Ester
Óskarsdóttur þarf að binda saman
vörn liðsins,“ segir þessi þrautreyndi
leikstjórnandi um leik Fram og ÍBV.
„Fram er með betra lið og f leiri
leikmenn sem geta látið til sín taka.
Þar hefur Erla Rós Sigmarsdóttir átt
misjafna leiki í marki Fram en ef
hún hrekkur í gang þá verða þetta
ójafnir leikir. Þær eru of boðslega
góðar í að sækja hratt og refsa fyrir
mistök andstæðinganna. Reynslan
og gæðin munu skila Fram í úrslitin
held ég. ÍBV mun samt vinna einn
leik í Vestmannaeyjum og hrista
upp í einvíginu,“ segir hún að end-
ingu um baráttu liðanna.
hjorvaro@frettabladid.is.
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is
Vinnuflokkurinn
og allt heila
klabbið!
Renault Trafic langur 6 manna og Renault Master
Double Cab 7 manna með palli eru einstaklega
hentugir vinnubílar fyrir verktaka og vinnuflokka
sem þurfa að flytja allt í einni ferð án vandræða.
EIGUM BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
RENAULT TRAFIC CREW-VAN
6 SÆTA/FARANGURSRÝMI, DÍSIL, BEINSKIPTUR
Verð: 4.024.00 kr. án vsk.
4.990.000 kr. m. vsk.
(Aðeins einn bíll eftir)
RENAULT MASTER DOUBLE CAB
7 SÆTA/PALLBÍLL, DÍSIL, BEINSKIPTUR
Verð: 4.314.000 kr. án vsk.
5.350.000 kr. m. vsk.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
3
3
0
9
R
e
n
a
u
lt
T
ra
fi
c
o
g
M
a
s
te
r
5
x
1
0
a
p
ri
l
RENAULT TRAFIC CREW-VAN
6 sæta/fangursrými, dísil, beinskiptur,
Verð: 4.024.000 kr. án vsk. (aðeins þessi eini bíll)
4.990.000 kr. með vsk.
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
1
-F
0
6
C
2
2
C
1
-E
F
3
0
2
2
C
1
-E
D
F
4
2
2
C
1
-E
C
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K