Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 24
Kristín Anna segir að Kjartan hafi sýnt henni ómælda þolinmæði og hvatt sig áfram. „Ég treysti honum og hann hvatti mig til að grafa upp þessi lög úr minninu mörg ár aftur í tímann. Ég reyndi að endurskapa þau í f læði og þetta eru afar per- sónuleg lög. Þetta eru allt heilar tökur, píanó- leikur og söngur á sama tíma. Sum lögin eru löng, um átta mínútur. Það er því auðvelt að gera mistök og þá er upptakan ónýt. En svo kom mikið af frábæru tónlistarfólki að ferlinu, Kjartan spilar sjálfur og syngur inn á upptökurnar og gerði strengjaút- setningar. Gyða systir mín og María Huld Markan spiluðu inn á mikið af efninu og útsettu sjálfar í gegnum spuna í stúdíóinu. Guðmundur Steinn og Áki félagar mínir leika líka lausum hala inn á margar upp- tökur. Davíð Þór og Skúli Sverris og Magnús Trygvason Elíassen koma oft við sögu en í lögum sem þó end- uðu flest á annarri plötu sem gefin verður út von bráðar. Í ferlinu fór ég að gangast við því að vera tónlistar- maður,“ segir Kristín Anna en það er ekkert leyndarmál að hún reyndi með öllum tiltækum ráðum að tefja og koma í veg fyrir útgáfuna. Alls konar flóttaleiðir „Ég hef tekið mér tíma í að efast um hitt og þetta og fundið mér alls konar f lóttaleiðir. Fyrir um það bil ári síðan var platan eiginlega alveg tilbúin. Þá tilkynnti ég að ég væri barnshafandi og það þyrfti að fresta útgáfunni,“ segir hún. Hver er rótin að þessu? Þykir þér svona vænt um verkin þín? „Já, þetta er í undirmeðvitund- inni en í meðvitundinni er ég bara að fríka út og vil koma þessu út,“ segir hún og skellir upp úr. „Sumum finnst þetta auðvelt, að skapa og gefa út verk sín. En síðan er fólk stressað þegar það þarf að fara á svið. Ég á í engum vandræðum með það og líður vel. En þegar ég á að gefa eitthvað varanlegt frá mér, þá hefur mér fundist það erfitt.“ Leið til að lifa af Lögin á plötunni eru samin á mjög löngum tíma. Frá því þú ert í múm og svo í upptökuferlinu sjálfu. Er ein- hver þráður á milli þeirra? „Lögin eru mjög persónuleg og segja sögu af sambandi mínu við annað fólk. Ég hugsa að þau endur- spegli að tónlistin er mín leið til að lifa af. Andlega, frekar en að þau séu samin til að vera hipp og kúl tón- listarkona. Sum þeirra eru skrifuð þegar eina leiðin fyrir mig til að átta mig á tilfinningum mínum eða veita þeim útrás var að semja og spila tónlist. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við það sem bærðist innra með mér, eða hvernig ég gæti fengið það skilið. Í sköpunarferlinu næ ég að skýra eitthvað fyrir sjálfri mér, það ósýnilega verður haldbært í tónum og orðum, í smástund er ég hólpin. Og sársauki verður að fegurð og þakklæti eða fagurt augnablik fær að lifa að eilífu fyrir mér í lagi,“ segir Kristín Anna. Þarna koma þeir Kristín Anna segist hafa haft þessa tengingu við tónlist frá barnæsku. „Ég er alin upp í skógi í Árbænum, í Elliðaárdal. Ég gekk í Árbæjarskóla og æfði á píanó. Það var ekki mikil sköpun í skólanum og ég man að maður þótti skrýtinn fyrir það eitt að æfa á hljóðfæri,“ segir Kristín Anna sem segist hafa beðið þess með óþreyju að kom- ast í framhaldsskóla. „Ég vann á Staldrinu og afgreiddi hamborgara í gegnum lúgu og fór í píanótíma. Um leið og við Gyða byrjuðum í MH komu Örvar Smárason og Gunn- ar Tynes inn í íþróttasalinn. Þeir voru þangað komnir til að semja tónlist fyrir leikrit. Ég hafði séð þá spila með Andhéra og ég vissi að ég myndi kynnast þeim: Þarna koma þeir, hugsaði ég þá. Á þessum árum fannst mér ég stundum hafa séð fram í tímann. Þarna vorum við Gyða sextán ára og múm varð til. Við Gyða fórum aldrei heim af æfingum. Héldum bara áfram að hanga með þeim og svo f luttum við bara inn á hvert annað. Áður en ég vissi var ég aldr- ei í skólanum og að spila með múm varð líf mitt í sex ár. Ég gerði ekk- ert annað og þetta gekk fyrir öllu. Vinum og fjölskyldu. Ég var alltaf einhvers staðar í einangrun úti á landi að semja, í stúdíói eða á túr- rútu. Lífið var allt í einu skipulagt langt fram tímann,“ segir Kristín Anna og segir að eftir mörg ár af slíku lífi hljóti eitthvað að gefa eftir. „Þetta eru mótunarárin og öll þessi ár þurfti ég lítið að pæla í því hvað ég ætti að gera við líf mitt. Ég hafði miklu frekar verið upptekin af því að halda hlutum frá mér til að eiga mitt persónulega rými. Við eyddum oft sumrinu við að semja tónlist á Galtarvita. Þar var hvorki net né símasamband og maður þurfti að fara út í vitann á bát. Þetta var sérstakur tími og ég held að ég hafi komið út úr honum misþroska á margan hátt.“ Var á eðlisfræðibraut Hefðir þú viljað gera eitthvað öðru- vísi? „Nei. En áður en ég kynntist Gunna og Örvari var ég á eðlisfræði- braut og tók fimm stærðfræðiáfanga og gat allt eins séð fyrir mér að verða geimfari. Ég hætti að taka stigspróf í píanónáminu, ég varð upptekin af því að takast á við skrýtin og flókin verk, til dæmis eftir Prokofjev. Ég vildi bara spila það sem ég hafði áhuga á, það var eitthvað við það að heyra einhvern annan æfa sama verk og ég var að spila sem gerði mig afhuga því. Ég vildi ekki einu sinni heyra upptökur af verkum. Það lá því beinast við að ég færi að semja sjálf tónlist,“ segir hún og hlær og segir að múm hafi verið framhald af þessu öllu saman. „En að verða allt í einu tónlistar- maður og túra um heiminn hafði ég hvorki séð fyrir né verið að óska mér. Þó hafði ég stundum sagt sem barn að ég myndi vinna í ferða- sirkus þegar ég yrði stór. Ljóminn við það var að vera á ferðalagi, búa ekki í húsi föstu við jörðina og annast dýr. Vissulega rættist margt EFTIR AÐ ÉG FLUTTI LAGIÐ Í AMSTERDAM FLAUG ÉG HEIM TIL AÐ EYÐA FÓSTRINU. ÉG VAR GENGIN ÁTTA VIKUR. ÉG FLAUG SVO SAMDÆGURS TIL ÍSA FJARÐAR Stillur úr fallegu myndbandi leikstýrðu af Ragnari Kjartanssyni og Allan Sigurðssyni. Kristín Anna kveikir í leikmynd af varðeldi. Lau. 6. apríl 14:00 Origo-höllin Valur – Haukar Lau. 6. apríl 16:00 Framhús Fram – ÍBV Mán. 8. apríl 18:30 Vestmannaeyjar ÍBV – Fram Mán. 8. apríl 20:00 Schenker-höllin Haukar – Valur Fim. 11. apríl 18:30 Framhús Fram – ÍBV Fim. 11. apríl 20:00 Origo-höllin Valur – Haukar Lau. 13. apríl 13:30 Vestmannaeyjar ÍBV – Fram Lau. 13. apríl 16:00 Schenker-höllin Haukar – Valur Þri. 16. apríl 18:30 Framhús Fram – ÍBV Þri. 16. apríl 20:15 Origo-höllin Valur – Haukar ÚRSLITARIMMAN HEFST Í DAG! OLÍS-DEILDIN #Olísdeildin MÆTUM Á VÖLLINN OG STYÐJUM OKKAR LIÐ 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 2 -2 B A C 2 2 C 2 -2 A 7 0 2 2 C 2 -2 9 3 4 2 2 C 2 -2 7 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.