Minnisbók bænda : með almanaki fyrir árið 1922 - 01.11.1921, Qupperneq 21
19
Búnaðarsamböndín.
Þau eru sambandsfélög hreppabúnaðarfélaganna og
hafa álíka verksvið hvert í sínu umdæmí eins og Bún-
aðarfélag íslands fyrir alt landið. Þau fá styrk frá
Búnaðarfélaginu og úr hlutaðeigandi sýslusjóðum,
Samböndin eru þessi:
Ræktunarfélag NorSurlands, stofnað 1903, sem félag
einstakra manna, en var síðar, 1909, breytt í búnaðar-
samband fyrir Norðurland. Umdæmi þess er frá Hrút^-
fjarðará að Gunnólfsvíkurfjalli. Félagið hefir stóra og
fjölbreytta gróðrarstöð á Akureyri. — Gefur út ársrit.
Formaður: Sigurður E. Hliðar, dýralæknir. Fram-
kvæmdarstjóri: Einar J. Reynis. Umsjónarmaður garð-
ræktar, blóma- og trjáræktar er ungfrú Guðrún Björns-
dóttir.
Búnaðarsamband Austurlands, stofnað 1903. Urn-
dæmi þess er frá Gunnólfsvíkurfjalli að Skeiðarársandí,
— Gefur út ársrit. — Formaður: Hallgrímur Þórarins-
son, bóndi á Ketilsstöðum. — Ráðun.: Lúðvik Jónsson,
Búnaðarsamband Vestfjarða, stofnað 1907. Umdæmi:
Vestfirðir frá Gilsfirði að Bitru. Gefur út ársskýrslu.
Form.: Kristinn Guðlaugsson bóndi á Núpi í Dýrafirði.
Búnaðarsamband Suðurlands, stofnað 1908. Umdæmi:
Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslur. For-
maður: Guðm. Þorbjarnarson bóndi á Stóra-Hofi í
Rangárvallasýslu.
Búnaðarsamband Borgarfjarðar, stofnað 1910. Um-
dæmi: Borgarfjarðar- og Mýrasýsla. Formaður: Jón
Hannesson bóndi í Deildartungu í Borgarfjarðarsýslu.
Búnaðarsamband Kjalarnessþings, stofnað 1911. Um-
dæmi: Gullbringu- og Kjósarsýsla. Formaður: Magnús
Þorláksson bóndi á Blikastöðum í Mosfellssveit.
Bútnaðarsamband Dala- og Snœfellsness, stofnað 1913.
2*