Minnisbók bænda : með almanaki fyrir árið 1922 - 01.11.1921, Blaðsíða 31

Minnisbók bænda : með almanaki fyrir árið 1922 - 01.11.1921, Blaðsíða 31
29 mélið þurkað við um ioo stiga hita, og fær það þá sætubragð. Næringargildi þessa méls er fjórfalt við nautakjöt. Norðmenn baka smákökur úr mélinu á þykt við flatbrauð. Saanen geitin. Geitféð frá Saanen dalnum í Sviss er talið mjólkur- best og mjólkurhæst af öllu geitfé, og hefir það nú á síðastliðnum 20 árum breiðst út um viða veröld. í Saanendalnum er mjólkurgeitunum beitt frá því í maí og langt fram á haust uppi í fjallendi, sem er alt að 2100 m. yfir sjávarflöt. Þær mjólka að jafnaði eftir fyrsta kið um 650 1. um árið, eftir annað kið 700 1., og síðan um 800—-1000 1., og dæmi eru til, að þær hafa mjólkað um 2000 1. Feitin í geitamjólk er mjög mis- munandi, frá 2,5—8%. í Sviss er feitin í geitamjólk venjulega 3—3.1% meðan þær ganga úti, en 4—5,4% í innigjöf. Fyrir stríðið mátti fá valdar Saanengeitur í Þýska- landi fyrir 50—100 kr. Lögræði. (Útdráttur úr lögum 1917.) Maður er sjálfrá&a 16 ára gamall, og ræður einn öðru en fé sínu. Ráðstafanir ósjálfráða manns eru ógildar. Foreldri ráða saman ósjálfráða skilgetnum börnum. Ó- skilgetnu barni ræður móðir. Maður er fjárráða 21 árs gamall, og ræður einn fé sínu. Ekkjur eru fjárráða, þó yngri séu. Fjárráðstafanir ófjárráða manns eru ógildar nema varði sjálfsaflafé eða gjafafé.

x

Minnisbók bænda : með almanaki fyrir árið 1922

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Minnisbók bænda : með almanaki fyrir árið 1922
https://timarit.is/publication/1326

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.