Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 2
Veður Skýjað með köflum og smá skúrir víða um land í dag, þokusúld úti við A-ströndina, en talsverð rigning SA- til um kvöldið. Hiti víða 8 til 15 stig, en mun svalara við A-ströndina. SJÁ SÍÐU 40 Lyngrósin Vigdís komin heim Lyngrósin Vigdís, sem nefnd var í höfuðið á Vigdísi Finnbogadóttur, var af hent Grasagarði Reykjavíkur í gær, að Vigdísi sjálfri viðstaddri. Það var fyrrverandi forstöðumaður lyngrósagarðsins í Milde í Noregi sem gaf rósinni þetta fallega nafn og ætlaði að færa Vigdísi blómvönd af lyng- rósinni í opinberri heimsókn árið 1992. Ekkert varð af heimsókninni þá, en nú er Vigdís loksins komin heim. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK MENNING Vonskuveður og veikindi eru meðal ástæðna fyrir því að heimildarmynd sem þingmaðurinn fyrrverandi Árni Johnsen hóf að vinna að um Scoresbysund á Græn- landi árið 2014 hefur ekki enn litið dagsins ljós. Árni var duglegur að sækja styrki til verkefnisins, meðal annars af skúffufé ráðherra, en ekki hefur tekist að ljúka við myndina. Árni segir í samtali við Fréttablaðið að hann sé þó enn vongóður um að það takist. „Verkefnið stendur þannig að það er svona hálfnað,“ segir Árni aðspurður um stöðu verkefnisins sem fjallað var nokkuð um í fjöl- miðlum á sínum tíma. Hann segir ýmsar ástæður fyrir því að myndin hafi tafist. „Það tafðist svolítið því við lent- um í rosalegum veðrum, svo lenti ég á spítala í sex mánuði en það kemur. Þetta er í gangi.“ Fréttablaðið sagði frá því í árs- byrjun 2016 að tveir ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar hefðu veitt heimildarmyndarverkefninu styrk af ráðstöfunarfé sínu, sem jafnan er kallað skúffufé ráðherra og þeim er frjálst að ráðstafa í verkefni að eigin vali. Sigurður Ingi Jóhannsson, sem þá var sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, styrkti verkefnið með skúffufé sínu sem og Gunnar Bragi Sveinsson sem þá var utan- ríkisráðherra. Síðar sama ár veitti svo þáverandi innanríkisráðherra Ólöf Nordal verkefninu 600 þúsund krónur í styrk af skúffufé sínu. Verk- efnið hefur því fengið hundruð þús- unda í styrki frá allavega þremur ráðherrum fyrri ríkisstjórna. Árni lýsti, í viðtali við Frétta- blaðið árið 2016 vegna styrkveiting- anna, verkefninu sem afar kostnað- arsömu. Sagði hann Scoresbysund vera lengsta fjörð í heimi með um þúsund fjöllum og tugum skrið- jökla. Verkefnið er því augljóslega viðamikið. „Þetta er rosalegt verkefni. Það áttar sig enginn á því sem þekkir ekki til þarna. Þetta er svo mikið flæmi og fjölbreytt,“ segir Árni um stærðargráðu verksins nú. Morgunblaðið fjallaði um fyrstu ferð Árna og Friðþjófs Helgasonar kvikmyndatökumanns í fjörðinn í september 2014. Lýsti Árni þar vilja sínum til að fanga hrikalega nátt- úru, dýralíf og mannlíf á þessum fáförnu og afskekktu slóðum á Norðaustur-Grænlandi á filmu. mikael@frettabladid.is Árni bjartsýnn á að klára heimildarmynd NÁNAR Á UU.IS ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS VERÐ FRÁ 77.900 KR. Árni Johnsen hefur lengi haft taugar til Grænlands og unnið um árabil að gerð heimildarmyndar um Scoresbysundið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þetta er rosalegt verkefni. Það áttar sig enginn á því sem þekkir ekki til þarna. Árni Johnsen Þingmaðurinn fyrr- verandi segir heimildar- mynd um Scoresbysund á Grænlandi hálfnaða. Gerð myndarinnar hafi tafist af ýmsum ástæð- um. Fékk hundruð þúsunda í styrki til verkefnisins af skúffufé nokkurra ráðherra. UMHVERFISMÁL Þorsteinn Þor- steinsson, sérfræðingur í jöklarann- sóknum hjá Veðurstofu Íslands, segir að samkvæmt nýrri mælingu á ís Snæfellsjökulls sé hann aðeins um 30 metra þykkur. Flatarmál hans er meira en helmingi minna en fyrir 110 árum og útlit er fyrir að hann verði að mestu horfinn um miðja þessa öld. Samkvæmt grein Þorsteins á vef Veðurstofu Íslands var borað í jökulinn á mánudaginn til að mæla vetraraf komu hans. Snjókjarni var boraður í um 1.350 metra hæð, sunnan Miðþúfu. Kjarninn var vigt- aður, eðlisþyngd hans ákvörðuð og lagskipting skráð. Hitastig snjósins var mælt og reyndist það vera innan við -2 gráður í öllu vetrarlaginu. Mælingin kom Þorsteini ekki á óvart. Full ástæða sé til að fjár- magna reglulegar afkomumælingar á jöklinum til að auka þekkingu á viðbrögðum íslenskra jökla við loftslagsbreytingum. Jökullinn er nú um 10 ferkíló- metrar að f latarmáli en var 22 fer- kílómetrar árið 1910. – bg Jökullinn að hverfa GETRAUNIR Heppinn Siglfirðingur sem vann tæpar 40 milljónir í Lottó- inu laugardaginn 13. apríl gerir ráð fyrir að láta það verða sitt fyrsta verk að endurnýja farsíma sinn. Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskum getraunum var það til- viljun ein sem réð því að hann keypti miðann yfirhöfuð. Sá heppni hafði verið svangur á ferðinni og komið við hjá Olís til að fá sér að borða þegar hann sá á skjánum hjá Lot tó kassanum að potturinn stefndi í 40 milljónir. Hann á kvað því að kaupa miða og skilaði það sér svo sannar lega. „Kannski kaupi ég mér nýjan síma þar sem minn er orðinn gam- all,“ sagði vinnings hafinn. „En svo ætla ég líka að leyfa fólkinu mínu að njóta vinningsins með mér,“ bætti hann við. – smj Milljónungur endurnýjar símann sinn Snæfellsjökull, sem ekki á langt eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Flatarmál jökulsins er meira en helmingi minna en fyrir 110 árum. 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -0 4 -2 0 1 9 2 2 :1 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 0 -1 D 2 4 2 2 E 0 -1 B E 8 2 2 E 0 -1 A A C 2 2 E 0 -1 9 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.