Fréttablaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 22
DJASS ER EKKI AÐEINS
TÓNLIST, HELDUR LEIÐ
TIL AÐ LIFA, LEIÐ TIL AÐ
VERA, LEIÐ TIL AÐ HUGSA.
Nina Simone
Söngkonan Stína Ágústs-dóttir býr og starfar í Stokkhólmi en kemur reglulega til Íslands og heldur tónleika. Hún er væntanleg til landsins
ásamt einum vinsælasta gítarleik-
ara Svíþjóðar, Erik Söderlin.
Tilefnið er alþjóðlegi djassdag-
urinn sem er þann 30. apríl. Það er
Unesco, Menningarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna, sem stendur fyrir
deginum. Honum er ætlað að efla
vitund um það hlutverk sem djass
getur leikið sem afl í þágu friðar og
samvinnu á milli þjóða. Enda hefur
djass verið ríkur hluti af sögu bar-
áttu minnihlutahópa gegn kúgun
og kynþáttafordómum.
„Djassinn er svo magnaður, því
maður veit ekki endilega hvað
gerist. Það er alltaf möguleiki á
töfrum,“ segir Stína. „Það er ekki
ákveðin útkoma þegar maður spilar
lag. Það er öðruvísi að spila pródú-
serað popplag. Þegar þú spilar djass,
þá getur allt gerst.“
Stína var tilnefnd til Íslensku tón-
listarverðlaunanna árið 2017 fyrir
plötu sína Jazz á íslensku og er að
vinna að eigin lögum. Hún segist
spennt fyrir samstarfinu með Erik.
„Hann spilar svo fallega að það er
erfitt að hætta. Ég gleymi mér bara.
Hann var að gefa út plötu, þar sem
hann spilar lög Pauls McCartney,
sem er virkilega falleg, einhver
myndi halda að það væri klisja. En
það er það alls ekki og hann hefur
fengið frábæra dóma fyrir plötuna,“
segir Stína.
Hún hefur samið texta við tvö lög
Eriks af þarsíðustu plötu hans. „En
Allt
getur
gerst
Alþjóðlegi djass-
dagurinn verður
haldinn hátíðlegur
þriðjudaginn 30.
apríl. Einn vin-
sælasti gítarleikari
Svíþjóðar, Erik
Söderlin, og Stína
Ágústsdóttir söng-
kona munu þá leika
uppáhalds sígildu
djasslögin sín.
Erik Söderlind
gítarleikari sem
hefur heillað
Svía upp úr
skónum.
Stína Ágústsdóttir kemur reglulega til Íslands til þess að syngja.
Herbie Hancock stýrir djasstónleikum í Ástralíu á þriðjudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY
Nina Simone (1933-2003) Myndin er tekin árið 1969. NORDICPHOTOS/GETTY
þess utan þá spilum við aðallega
klassísk djasslög, það er í anda þessa
dags,“ segir hún. Þau Stína og Erik
hafa fengið Valdimar Kolbein Sigur-
jónsson bassaleikara og Matthías
M.D. Hemstock trommuleikara
með sér í lið. Tónleikarnir verða
haldnir á Múlanum, djassklúbbi í
Björtuloftum í Hörpu.
Á alþjóðlega djassdeg inum
klukkan 3 getur fólk hitað upp fyrir
tónleikana með því að horfa á tón-
leika á vef Unesco og á Youtube, sem
verða haldnir í tónleikahöllinni
Hamer Hall í Melbourne, Ástralíu.
Þeim verður stýrt af James Beasley,
góðgerðarsendiherra UNESCO,
djassgoðsögninni Herbie Han-
cock og trompetleikaranum James
Morrison. Á tónleikunum koma
fram þekktir djasstónlistarmenn
hvaðanæva úr heiminum, Chico
Pinheiro frá Brasilíu, Tarek Yamani
frá Líbanon, Eijiro Nakagawa frá
Japan og Kurt Elling frá Bandaríkj-
unum, svo fáeinir séu nefndir.
kristjanabjorg@frettabladid.is
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-4
E
8
4
2
2
E
0
-4
D
4
8
2
2
E
0
-4
C
0
C
2
2
E
0
-4
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K