Fréttablaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 48
Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla
Yngsta stig, 2 - 8 ára
Reykjanesbær auglýsir stöðu aðstoðarskólastjóra Stapaskóla lausa til umsóknar. Leitað er að
metnaðarfullum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn
að leggja sitt af mörkum við uppbyggingu á nýjum heildstæðum skóla og móta stefnu hans.
Meginhlutverk aðstoðarskólastjóra er að stýra og veita faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi á leikskólastigi og í 1. – 2.bekk.
Stapaskóli er heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 2 – 16 ára sem er að rísa í Dalshverfi í Reykjanesbæ.
Fjöldi nemenda við fullsetinn skóla er um 500 á grunnskólaaldri og 120 á leikskólaaldri. Næsta haust
munu nemendur í 1. – 5. bekk stunda þar nám. Skólinn verður í hjarta hverfisins og mun þjóna íbúum
grenndarsamfélagsins sem menningarmiðstöð. Áhersla verður lögð á öflugt foreldrastarf og náin tengsl
við nánasta umhverfi. Í skólastarfi verður sérstök áhersla á sköpun og listir, verklegt nám og tækninám.
Hlutverk og ábyrgð
• Vera staðgengill skólastjóra og taka virkan þátt
í daglegri stjórn skólans
• Vinna að mótun og framkvæmd faglegrar
stefnu skólans
• Vinna að skipulagi skólastarfs
• Hafa faglegt utanumhald um
skólanámskrárvinnu og starfsáætlun
• Koma að vinnu við innra mat skólans
• Hafa umsjón með vinnutilhögun starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Framhaldsmenntun er kostur
• Stjórnunarreynsla í leikskóla æskileg
• Frumkvæði í starfi og framsýni í skólamálum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Færni og lipurð í samskiptum
• Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita
því forystu
• Jákvæðni, sveigjanleiki, ábyrgðarkennd og
áreiðaleiki
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2019. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2019.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og
almennar upplýsingar um viðkomandi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur
fyrir. Umsóknum er skilað rafrænt á vef Reykjanesbæjar: Stjórnsýsla: Laus störf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda í leikskóla.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gróa Axelsdóttir skólastjóri í síma 824-1069 eða á netfangið,
groa.axelsdottir@akurskoli.is
Job.is
Job.isGLÆNÝ OG FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á
Kennsla
Þú finnur draumastarfið á
Iðnaðarmenn
Þú finnur draumastarfið á
Heilbrigðisþjónusta
Veitingastaðir Ferðaþjónusta
Verslun og þjónusta
Náðu meiri árangri
í samningaviðræðum
Námskeið í samningatækni
hagvangur.is
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-7
1
1
4
2
2
E
0
-6
F
D
8
2
2
E
0
-6
E
9
C
2
2
E
0
-6
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K