Fréttablaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 72
Pete Buttigieg hefur skot-ist upp á stjörnuhimin bandarískra stjórnmála á síðustu vikum. Fram-boð hans til forseta í forkosningum Demó-
krata sem eitt sinn þótti einstaklega
ólíklegt til að bera árangur er nú
það fjórða sigurstranglegasta, sam-
kvæmt meðaltali skoðanakannana
sem Real Clear Politics tekur saman.
Þessi borgarstjóri South Bend í
Indiana, sem hefur litla aðra reynslu
af stjórnmálum, yrði yngsti forseti
Bandaríkjanna ef hann nær kjöri,
þá 38 ára, og fyrsti opinberlega sam-
kynhneigði forsetinn.
En þrátt fyrir að hafa verið til-
tölulega óþekktur á meðal banda-
rísks almennings hefur Buttigieg
verið orðaður við forsetaembættið
í nokkur ár. Barack Obama, þá frá-
farandi forseti, sagði í viðtali við
The New Yorker í nóvember 2016
að Buttigieg lofaði einstaklega góðu.
Sama ár birti The New York
Times pistil frá pistlahöfundinum
Frank Bruni um Buttigieg undir
fyrirsögninni: „Fyrsti samkyn-
hneigði forsetinn?“ Þar sagði Bruni
að Buttigieg væri eins og einhver
hefði mótað fullkominn forseta-
frambjóðanda fyrir Demókrata á
tilraunastofu.
En hver er þessi óvænta vonar-
stjarna Demókrata og á hann raun-
verulega möguleika á því að vinna?
Fréttablaðið rýnir hér í feril hans.
Áður en lengra er haldið ber þó
að útskýra hvernig maður ber fram
eftirnafn frambjóðandans. Buttig-
ieg hefur sjálfur leikið sér með það
í útgefnu efni og styðst við útskýr-
inguna „boot-edge-edge“. Nafnið
kemur frá Möltu, þaðan sem faðir
frambjóðandans fluttist til Banda-
ríkjanna, og þýðir hænsnabóndi.
Persónan framar stefnu
Segja má að sú kosningabarátta
sem Buttigieg hefur háð hingað til
snúist um persónutöfra og persónu-
leika frambjóðandans frekar en
einstök stefnumál. Ýmsir hafa náð
ágætis árangri með þessari aðferð.
Nú síðast Beto O’Rourke árið 2016
sem komst óvenju nálægt því að
hrifsa til sín öldungadeildarsæti
í Repúblikanaríkinu Texas af Ted
Cruz. O’Rourke er nú í framboði og
reynir að fanga stemninguna á ný
en gengur, samkvæmt könnunum,
verr en Buttigieg.
Samkvæmt greiningu sama mið-
ils á skrifum og ræðum Buttigiegs
allt frá því hann var í háskóla hefur
borgarstjórinn, oft kallaður „Mayor
Pete“ ef til vill sökum þess að margir
eiga erfitt með að bera fram eftir-
nafnið, ítrekað lagt áherslu á málfar
og orðræðu framar stefnu eða hug-
myndafræði.
Samkvæmt greiningu tölfræði-
miðilsins FiveThirtyEight höfðar
Buttigieg einna helst til ungra
kjósenda, þeirra af hinni svoköll-
uðu þúsaldarkynslóð. Þeir eru um
þriðjungur af þátttakendum í for-
kosningunum.
Buttigieg hefur nýtt aldur sinn
óspart í kosningunum og má segja
að hann sé sterk andstæða hinna
sigurstranglegu en rúmlega sjö-
tugu Joes Biden og Bernies Sanders.
Borgarstjórinn reiðir sig á sam-
félagsmiðla í kosningabaráttunni og
talar skýrt og skorinort um að þörf
sé á nýrri sýn. „Eruð þið reiðubúin
að stíga í burtu frá stjórnmálum for-
tíðarinnar?“ spurði hann fylgjendur
sína á Twitter fyrr á árinu.
Einnig má nefna það þegar leik-
konan Amy Poehler sagði í mars
að Leslie Knope, persóna hennar
í gamanþáttunum Parks and Rec-
reation, gæti stutt Buttigieg í kosn-
ingabaráttunni. Þættirnir gerðust á
skrifstofu almenningsgarðadeildar
skáldaða bæjarins Pawnee í Indiana
og svaraði Buttigieg því á Twitter:
„Bíðið þangað til hún kemst að því
að hún er að tala um manninn sem
Almenningsgarðasamtök Indiana
völdu kjörinn fulltrúa ársins 2018.“
Buttigieg hefur að auki verið
lofaður fyrir herþjónustu sína og
áhuga á klassískum bókmenntum.
Þá hafa fjölmiðlar og stuðnings-
menn einbeitt sér sérstaklega að
tungumálakunnáttu borgarstjór-
ans. Buttigieg talar góða norsku,
arabísku, spænsku, maltnesku,
frönsku, ítölsku, persneska málið
dari og svo vitanlega ensku. Hefur
til að mynda svarað spurningum
norskra blaðamanna á norsku.
Stefnan
Þrátt fyrir að Buttigieg geri út á
persónutöfrana hafa allir fram-
bjóðendur stefnumál. Að minnsta
kosti næstum allir. Dan Glickman,
landbúnaðarráðherra Bills Clin-
ton, sagði í viðtali við The New
York Times að Buttigieg mætti best
lýsa sem hófsömum miðjumanni.
„Hann er einkar lunkinn við að tjá
sína sýn, sem er framsækin en ekki
um of,“ sagði Glickman.
Þegar litið er yfir vefsíðu fram-
boðs Buttigiegs er engan lista yfir
stefnumál að finna, líkt og má sjá
á vefsíðum framboða til að mynda
Bidens og Sanders. Áherslan er þess
í stað lögð á að segja frá ævi fram-
bjóðandans og þeirri sýn hans að
þörf sé á nýjum sjónarmiðum í
staðinn fyrir að horfa til fortíðar.
Buttigieg hefur þó vitanlega
fjallað um stefnu sína í viðtölum og
sýnt hana í verki sem borgarstjóri.
Hann er fylgjandi réttinum til með-
göngurofs, vill sjá hertar aðgerðir í
baráttunni gegn loftslagsbreyting-
um og afnema dauðarefsingar.
Hann er andvígur áformum
Donalds Trump forseta í innflytj-
endamálum og banni hans við her-
þjónustu transfólks. Þá vill hann
gera öllum kleift að fá opinberar
sjúkratryggingar og gengur þar með
ekki jafnlangt, að minnsta kosti
ekki strax, og til að mynda Sanders
sem vill að sjúkratryggingar verði
alfarið á ábyrgð hins opinbera.
Hinseginleikinn
Sú staðreynd að Buttigieg er sam-
kynhneigður hefur vakið vonir
hinsegin Bandaríkjamanna, sam-
kvæmt BuzzFeed News, um að
þeirra „Obama-stund“ sé loks
komin. Er þar átt við að Buttigieg
gæti orðið fyrsti hinsegin forsetinn
rétt eins og Barack Obama varð
fyrsti svarti forseti Bandaríkjanna
árið 2009.
Í frétt miðilsins sagði að þótt
framboð Buttigiegs snerist ekki
um kynhneigð hans, rétt eins og
framboð Obama snerist ekki um
kynþátt, væri hún óaðskiljanlegur
hluti persónu hans og þar með for-
setaframboðs. Rufus Gifford, einn
áhrifamesti hinsegin Demókratinn
og fyrrverandi fjáröf lunarstjóri
Obama, sagði við BuzzFeed News
að hann hefði nú þegar veitt fram-
boði Buttigiegs hámarksstyrk.
But t ig ieg geng u r rey nd a r
almennt vel að safna peningum.
Þegar fjáröf lunarskýrslur fram-
boða voru birtar fyrr í mánuðinum
kom fram að hann hefði safnað 7,1
milljón Bandaríkjadala. Einungis
O’Rourke, Kamala Harris og Sand-
ers höfðu safnað meiru.
Kynhneigð Buttigiegs og ummæli
hans á CNN í vikunni um að hann
væri kristinnar trúar féllu í grýttan
jarðveg á meðal bandarískra íhalds-
manna. Predikarinn Franklin Gra-
ham, sem kom eftirminnilega hing-
að til lands og predikaði á Hátíð
vonar í Laugardalshöll árið 2013,
tjáði sig um ummælin á Twitter.
„Buttigieg borgarstjóri segist
samkynhneigður, kristinn maður.
Sem kristinn maður trúi ég því að
Biblían skilgreini samkynhneigð
með synd, eitthvað sem maður á að
iðrast en ekki hreykja sér af. Biblían
segir hjónaband vera á milli karls og
konu, ekki tveggja karla eða tveggja
kvenna,“ sagði Graham.
Ummælin vöktu mikla reiði
meðal frjálslyndra Demókrata sem
komu Buttigieg til varnar. Líklega
komu ummælin sér vel fyrir Butt-
igieg í pólitísku samhengi enda
lítil þolinmæði fyrir talsmáta eins
og Grahams á meðal þátttakenda í
forkosningum Demókrata.
Sigurlíkur
Vinsældir Buttigiegs og hagstæð
fjölmiðlaumfjöllun er hins vegar til
einskis ef stuðningurinn er ekki til
staðar. Sem betur fer fyrir Buttigieg
er það ekki tilfellið lengur.
Samkvæmt meðaltali skoðana-
kannana sem Real Clear Politics
tekur saman mældist Buttigieg með
1,9 prósent á fyrsta degi aprílmán-
aðar. Síðan þá hefur hann hækkað
f lugið verulega og er nú í 7,5 pró-
sentum. Til samanburðar mælist
Biden með 29,3 prósent, Sanders
með 23, Harris með 8,3 og Elizabeth
Warren með 6,5 prósent.
Buttigieg nýtur enn meiri stuðn-
ings í Iowa, fyrsta ríki forkosning-
anna. Þar stendur hann í 11,3 pró-
sentum og er þriðji vinsælastur
á eftir Biden með 23,7 prósent og
Sanders með 19,7 prósent.
Staðan er svo aftur betri í öðru
forkosningaríkinu, New Hamp-
shire. Þar er Buttigieg með 13 pró-
sent, Biden með 20,5 og Sanders
með 23 prósent, aftur samkvæmt
meðaltali Real Clear Politics.
Veðbankar eru einnig hrifnir af
Buttigieg. Hann mælist þriðji líkleg-
astur hjá PredictIt og fjórði hjá Elec-
tion Betting Odds. Á síðarnefnda
vefnum eru sigurlíkur hans taldar
13,5 prósent. Voru 9,2 prósent þann
1. apríl en ekki nema örfáar komm-
ur nokkrum dögum fyrr.
Fulltrúi ungu kynslóðarinnar
Fréttablaðið rýnir í feril Petes Buttigieg, mannsins með sérstaka nafnið sem er óvænt orðinn einn af sigurstrang-
legri frambjóðendunum í forkosningum Demókrata fyrir forsetakosningarnar 2020. Áhersla á persónutöfra.
Borgarstjórinn Pete Buttigieg nýtur óvæntra vinsælda og er nú einn sá sigurstranglegasti í forkosningum Demókrata. NORDICPHOTOS/AFP
Buttigieg áritar bol stuðningsmanns í South Bend. NORDICPHOTOS/AFP
VINSÆLDIR BUTTIG-
IEGS OG HAGSTÆÐ FJÖL-
MIÐLAUMFJÖLLUN ER HINS
VEGAR TIL EINSKIS EF
STUÐNINGURINN ER EKKI
TIL STAÐAR. SEM BETUR
FER FYRIR BUTTIGIEG ER
ÞAÐ EKKI TILFELLIÐ.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
0
-6
2
4
4
2
2
E
0
-6
1
0
8
2
2
E
0
-5
F
C
C
2
2
E
0
-5
E
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K