Fréttablaðið - 27.04.2019, Side 72

Fréttablaðið - 27.04.2019, Side 72
Pete Buttigieg hefur skot-ist upp á stjörnuhimin bandarískra stjórnmála á síðustu vikum. Fram-boð hans til forseta í forkosningum Demó- krata sem eitt sinn þótti einstaklega ólíklegt til að bera árangur er nú það fjórða sigurstranglegasta, sam- kvæmt meðaltali skoðanakannana sem Real Clear Politics tekur saman. Þessi borgarstjóri South Bend í Indiana, sem hefur litla aðra reynslu af stjórnmálum, yrði yngsti forseti Bandaríkjanna ef hann nær kjöri, þá 38 ára, og fyrsti opinberlega sam- kynhneigði forsetinn. En þrátt fyrir að hafa verið til- tölulega óþekktur á meðal banda- rísks almennings hefur Buttigieg verið orðaður við forsetaembættið í nokkur ár. Barack Obama, þá frá- farandi forseti, sagði í viðtali við The New Yorker í nóvember 2016 að Buttigieg lofaði einstaklega góðu. Sama ár birti The New York Times pistil frá pistlahöfundinum Frank Bruni um Buttigieg undir fyrirsögninni: „Fyrsti samkyn- hneigði forsetinn?“ Þar sagði Bruni að Buttigieg væri eins og einhver hefði mótað fullkominn forseta- frambjóðanda fyrir Demókrata á tilraunastofu. En hver er þessi óvænta vonar- stjarna Demókrata og á hann raun- verulega möguleika á því að vinna? Fréttablaðið rýnir hér í feril hans. Áður en lengra er haldið ber þó að útskýra hvernig maður ber fram eftirnafn frambjóðandans. Buttig- ieg hefur sjálfur leikið sér með það í útgefnu efni og styðst við útskýr- inguna „boot-edge-edge“. Nafnið kemur frá Möltu, þaðan sem faðir frambjóðandans fluttist til Banda- ríkjanna, og þýðir hænsnabóndi. Persónan framar stefnu Segja má að sú kosningabarátta sem Buttigieg hefur háð hingað til snúist um persónutöfra og persónu- leika frambjóðandans frekar en einstök stefnumál. Ýmsir hafa náð ágætis árangri með þessari aðferð. Nú síðast Beto O’Rourke árið 2016 sem komst óvenju nálægt því að hrifsa til sín öldungadeildarsæti í Repúblikanaríkinu Texas af Ted Cruz. O’Rourke er nú í framboði og reynir að fanga stemninguna á ný en gengur, samkvæmt könnunum, verr en Buttigieg. Samkvæmt greiningu sama mið- ils á skrifum og ræðum Buttigiegs allt frá því hann var í háskóla hefur borgarstjórinn, oft kallaður „Mayor Pete“ ef til vill sökum þess að margir eiga erfitt með að bera fram eftir- nafnið, ítrekað lagt áherslu á málfar og orðræðu framar stefnu eða hug- myndafræði. Samkvæmt greiningu tölfræði- miðilsins FiveThirtyEight höfðar Buttigieg einna helst til ungra kjósenda, þeirra af hinni svoköll- uðu þúsaldarkynslóð. Þeir eru um þriðjungur af þátttakendum í for- kosningunum. Buttigieg hefur nýtt aldur sinn óspart í kosningunum og má segja að hann sé sterk andstæða hinna sigurstranglegu en rúmlega sjö- tugu Joes Biden og Bernies Sanders. Borgarstjórinn reiðir sig á sam- félagsmiðla í kosningabaráttunni og talar skýrt og skorinort um að þörf sé á nýrri sýn. „Eruð þið reiðubúin að stíga í burtu frá stjórnmálum for- tíðarinnar?“ spurði hann fylgjendur sína á Twitter fyrr á árinu. Einnig má nefna það þegar leik- konan Amy Poehler sagði í mars að Leslie Knope, persóna hennar í gamanþáttunum Parks and Rec- reation, gæti stutt Buttigieg í kosn- ingabaráttunni. Þættirnir gerðust á skrifstofu almenningsgarðadeildar skáldaða bæjarins Pawnee í Indiana og svaraði Buttigieg því á Twitter: „Bíðið þangað til hún kemst að því að hún er að tala um manninn sem Almenningsgarðasamtök Indiana völdu kjörinn fulltrúa ársins 2018.“ Buttigieg hefur að auki verið lofaður fyrir herþjónustu sína og áhuga á klassískum bókmenntum. Þá hafa fjölmiðlar og stuðnings- menn einbeitt sér sérstaklega að tungumálakunnáttu borgarstjór- ans. Buttigieg talar góða norsku, arabísku, spænsku, maltnesku, frönsku, ítölsku, persneska málið dari og svo vitanlega ensku. Hefur til að mynda svarað spurningum norskra blaðamanna á norsku. Stefnan Þrátt fyrir að Buttigieg geri út á persónutöfrana hafa allir fram- bjóðendur stefnumál. Að minnsta kosti næstum allir. Dan Glickman, landbúnaðarráðherra Bills Clin- ton, sagði í viðtali við The New York Times að Buttigieg mætti best lýsa sem hófsömum miðjumanni. „Hann er einkar lunkinn við að tjá sína sýn, sem er framsækin en ekki um of,“ sagði Glickman. Þegar litið er yfir vefsíðu fram- boðs Buttigiegs er engan lista yfir stefnumál að finna, líkt og má sjá á vefsíðum framboða til að mynda Bidens og Sanders. Áherslan er þess í stað lögð á að segja frá ævi fram- bjóðandans og þeirri sýn hans að þörf sé á nýjum sjónarmiðum í staðinn fyrir að horfa til fortíðar. Buttigieg hefur þó vitanlega fjallað um stefnu sína í viðtölum og sýnt hana í verki sem borgarstjóri. Hann er fylgjandi réttinum til með- göngurofs, vill sjá hertar aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreyting- um og afnema dauðarefsingar. Hann er andvígur áformum Donalds Trump forseta í innflytj- endamálum og banni hans við her- þjónustu transfólks. Þá vill hann gera öllum kleift að fá opinberar sjúkratryggingar og gengur þar með ekki jafnlangt, að minnsta kosti ekki strax, og til að mynda Sanders sem vill að sjúkratryggingar verði alfarið á ábyrgð hins opinbera. Hinseginleikinn Sú staðreynd að Buttigieg er sam- kynhneigður hefur vakið vonir hinsegin Bandaríkjamanna, sam- kvæmt BuzzFeed News, um að þeirra „Obama-stund“ sé loks komin. Er þar átt við að Buttigieg gæti orðið fyrsti hinsegin forsetinn rétt eins og Barack Obama varð fyrsti svarti forseti Bandaríkjanna árið 2009. Í frétt miðilsins sagði að þótt framboð Buttigiegs snerist ekki um kynhneigð hans, rétt eins og framboð Obama snerist ekki um kynþátt, væri hún óaðskiljanlegur hluti persónu hans og þar með for- setaframboðs. Rufus Gifford, einn áhrifamesti hinsegin Demókratinn og fyrrverandi fjáröf lunarstjóri Obama, sagði við BuzzFeed News að hann hefði nú þegar veitt fram- boði Buttigiegs hámarksstyrk. But t ig ieg geng u r rey nd a r almennt vel að safna peningum. Þegar fjáröf lunarskýrslur fram- boða voru birtar fyrr í mánuðinum kom fram að hann hefði safnað 7,1 milljón Bandaríkjadala. Einungis O’Rourke, Kamala Harris og Sand- ers höfðu safnað meiru. Kynhneigð Buttigiegs og ummæli hans á CNN í vikunni um að hann væri kristinnar trúar féllu í grýttan jarðveg á meðal bandarískra íhalds- manna. Predikarinn Franklin Gra- ham, sem kom eftirminnilega hing- að til lands og predikaði á Hátíð vonar í Laugardalshöll árið 2013, tjáði sig um ummælin á Twitter. „Buttigieg borgarstjóri segist samkynhneigður, kristinn maður. Sem kristinn maður trúi ég því að Biblían skilgreini samkynhneigð með synd, eitthvað sem maður á að iðrast en ekki hreykja sér af. Biblían segir hjónaband vera á milli karls og konu, ekki tveggja karla eða tveggja kvenna,“ sagði Graham. Ummælin vöktu mikla reiði meðal frjálslyndra Demókrata sem komu Buttigieg til varnar. Líklega komu ummælin sér vel fyrir Butt- igieg í pólitísku samhengi enda lítil þolinmæði fyrir talsmáta eins og Grahams á meðal þátttakenda í forkosningum Demókrata. Sigurlíkur Vinsældir Buttigiegs og hagstæð fjölmiðlaumfjöllun er hins vegar til einskis ef stuðningurinn er ekki til staðar. Sem betur fer fyrir Buttigieg er það ekki tilfellið lengur. Samkvæmt meðaltali skoðana- kannana sem Real Clear Politics tekur saman mældist Buttigieg með 1,9 prósent á fyrsta degi aprílmán- aðar. Síðan þá hefur hann hækkað f lugið verulega og er nú í 7,5 pró- sentum. Til samanburðar mælist Biden með 29,3 prósent, Sanders með 23, Harris með 8,3 og Elizabeth Warren með 6,5 prósent. Buttigieg nýtur enn meiri stuðn- ings í Iowa, fyrsta ríki forkosning- anna. Þar stendur hann í 11,3 pró- sentum og er þriðji vinsælastur á eftir Biden með 23,7 prósent og Sanders með 19,7 prósent. Staðan er svo aftur betri í öðru forkosningaríkinu, New Hamp- shire. Þar er Buttigieg með 13 pró- sent, Biden með 20,5 og Sanders með 23 prósent, aftur samkvæmt meðaltali Real Clear Politics. Veðbankar eru einnig hrifnir af Buttigieg. Hann mælist þriðji líkleg- astur hjá PredictIt og fjórði hjá Elec- tion Betting Odds. Á síðarnefnda vefnum eru sigurlíkur hans taldar 13,5 prósent. Voru 9,2 prósent þann 1. apríl en ekki nema örfáar komm- ur nokkrum dögum fyrr. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar Fréttablaðið rýnir í feril Petes Buttigieg, mannsins með sérstaka nafnið sem er óvænt orðinn einn af sigurstrang- legri frambjóðendunum í forkosningum Demókrata fyrir forsetakosningarnar 2020. Áhersla á persónutöfra. Borgarstjórinn Pete Buttigieg nýtur óvæntra vinsælda og er nú einn sá sigurstranglegasti í forkosningum Demókrata. NORDICPHOTOS/AFP Buttigieg áritar bol stuðningsmanns í South Bend. NORDICPHOTOS/AFP VINSÆLDIR BUTTIG- IEGS OG HAGSTÆÐ FJÖL- MIÐLAUMFJÖLLUN ER HINS VEGAR TIL EINSKIS EF STUÐNINGURINN ER EKKI TIL STAÐAR. SEM BETUR FER FYRIR BUTTIGIEG ER ÞAÐ EKKI TILFELLIÐ. Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -0 4 -2 0 1 9 2 2 :1 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 E 0 -6 2 4 4 2 2 E 0 -6 1 0 8 2 2 E 0 -5 F C C 2 2 E 0 -5 E 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.