Fréttablaðið - 27.04.2019, Qupperneq 4
Þetta vandamál
einskorðast alls
ekki bara við borgina. Að
fjölga leikskólakennurum er
stærsta áskorun sveitarfélag-
anna.
Haraldur F.
Gíslason,
formaður Félags
leikskólakennara
Ef þetta heldur
svona áfram þá
mun faglegt starf leggjast af
og leikskólarnir okkar
breytast í gæsluvelli.
Valgerður
Sigurðardóttir,
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis
flokksins
SKÓLAMÁL Leikskólakennurum í
Reykjavík hefur fækkað um 89 á
fjórum árum á sama tíma og fjöldi
stöðugilda hefur staðið í stað. Sam-
kvæmt tölum skóla- og frístunda-
sviðs sem koma fram í svari við
fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisf lokksins hefur leikskóla-
kennurum fækkað um 22 á ári að
meðaltali á árunum 2015 til 2018.
Börnum hefur á sama tíma fækkað
um rúmlega 700, úr 5.700 í 5.000.
Stjórnendum hefur fækkað um níu
á tímabilinu. Árið 2015 störfuðu 348
leikskólakennarar á 62 leikskólum í
Reykjavík, árið 2018 voru þeir 259.
Valgerður Sigurðardóttir, skóla-
og frístundaráðsfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir að Reykjavíkurborg
þurfi að ráðast í naflaskoðun til að
stöðva fólksflóttann.
„Þetta er ástand sem Reykja-
víkurborg þarf að bregðast við.
Það þarf að tala við fagfólkið, leik-
skólakennarana, um hvað sé best að
gera,“ segir Valgerður. „Við höfum
misst 22,25 menntaða leikskóla-
kennara á hverju ári síðustu fjögur
ár. Það er fólksflótti úr stéttinni, það
er virkilega sláandi að sjá fagfólki
fækka svona mikið á svona stuttum
tíma. Stöðugildunum er ekki að
fækka, svo er öðru starfsfólki með
uppeldismenntun ekki að fjölga til
að vega upp á móti.“
Samkvæmt lögum eiga tveir af
hverjum þremur starfsmönnum
í leikskólum að vera menntaðir
leikskólakennarar. Þegar stjórn-
endur eru taldir með var hlutfallið
32 prósent árið 2015 en var komið
niður í tæplega 26 prósent árið 2018.
„Þegar við deilum þeim kennurum
sem eru eftir niður á alla leikskóla
borgarinnar þá erum við að tala um
Flótti meðal leikskólakennara
breytir leikskólum í gæsluvelli
Leikskólakennurum hefur fækkað um 89 í Reykjavík á síðustu fjórum árum. Formaður Félags leikskóla-
kennara segir að gera þurfi laun og starfsumhverfi sambærileg því sem gerist hjá öðrum sérfræðingum.
Borgarfulltrúi segir leikskóla breytast í gæsluvelli ef Reykjavíkurborg bregst ekki við þessari þróun.
Börnum á leikskólum borgarinnar hefur fækkað um rúmlega 700 á síðustu fjórum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
✿ Þróunin frá ’15 til ’18
2015 2016 2017 2018
Leikskólak. 348 321 273 259
Stjórnendur 121 117 116 112
Stöðugildi 1.458 1.434 1.422 1.434
Börn 5.734 5.420 5.241 5.036
fjóra leikskólakennara í hverjum
skóla. Það gleymist að leikskól-
arnir eru fyrsta skólastigið. Ef þetta
heldur svona áfram þá mun faglegt
starf leggjast af og leikskólarnir
okkar breytast í gæsluvelli,“ segir
Valgerður.
Haraldur F. Gíslason, formaður
Félags leikskólakennara, segir
tölurnar ekki koma á óvart. „Þetta
vandamál einskorðast alls ekki
bara við borgina. Að fjölga leik-
skólakennurum er stærsta áskorun
sveitarfélaganna. Það mun ekki
einungis bæta gæði náms í leik-
skólum heldur einnig bæta starfsað-
stæður leikskólakennara því einn
af álagsþáttunum í starfinu er tíð
starfsmannavelta,“ segir Haraldur.
„Þrátt fyrir fjölgun í leikskólakenn-
aranámi er nýliðun langt frá því að
vera nægileg.“
Það þurfi að gera laun samkeppn-
ishæf við laun annarra sérfræðinga,
fækka börnum á hvern starfsmann
og færa starfsumhverfið nær því
sem þekkist á öðrum skólastigum
hvað varðar vinnutíma og starfs-
tíma. Segir hann það verða verkefni
næstu kjarasamninga sem losna í
lok júní. arib@frettabladid.is
98%
félagsmanna
Samtaka atvinnulífsins
greiddu atkvæði með
Lífskjarasamningnum
Ólafur Hrafn Steinarsson
formaður Rafíþróttasamtaka
Íslands
á von á því að
sveitarfélög um
allt land muni
styrkja stofnun
rafíþróttadeildar
sem hóf göngu sína
í vikunni. Jákvæð
viðbrögð hafa komið samtökunum
í opna skjöldu.
Sandra B. Franks
formaður Sjúkraliðafélags Íslands
segir stéttina vera að
gefast upp vegna
vinnuálags. Þörf
er fyrir 2.800
sjúkraliða, en
fjöldi þeirra er
aðeins 2.100 um
þessar mundir.
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
segir það mikið fagnaðarefni að
lífskjarasamningarnir hafi verið
samþykktir. Hún
mun funda með
aðilum vinnu-
markaðarins í
maí og kynna
þeim stöðuna
á einstökum
verkefnum sem
ríkisstjórnin hyggst ráðast í.
TÖLUR VIKUNNAR 21.04. 2019 TIL 27.04. 2019
Þrjú í fréttum
Rafíþróttir,
sjúkraliðar og
samningar
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
NÝR RAM 3500 2019
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
FRUMSÝNDUR UM MIÐJAN MAÍ
ramisland.is
6.723
sinnum var fyrsta þætti í nýrri
seríu Game of Thrones hlaðið
niður af Deildu.net
400
gígavattstundir töpuð
ust við flutning orku frá
virkjunum á síðasta ári
300
manns hafa
verið rannsakaðir
vegna berkla
smits í febrúar á
þessu ári 253
fórust í röð
hryðjuverka á Srí
Lanka í byrjun viku
11%
er stærð hlutarins sem bandaríski
fjárfestingasjóðurinn PAR Capital
keypti í Icelandair
2.100
sjúkraliðar eru starf
andi á Íslandi í dag og er
meðalaldur þeirra 47 ár
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-3
0
E
4
2
2
E
0
-2
F
A
8
2
2
E
0
-2
E
6
C
2
2
E
0
-2
D
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K