Fréttablaðið - 27.04.2019, Qupperneq 20
Nýjast
Liverpool - Huddersfield 5-0
1-0 Naby Keita (1.), 2-0 Sadio Mané (23.), 3-0
Mohamed Salah (45.), 4-0 Sadio Mané (66.),
5-0 Mohamed Salah (83.)
Enska úrvalsdeildin
Íslandsmótið hófst að Hlíðarenda
Pepsi max-deild karla hófst í gærkvöldi með leik Vals og Víkings á Origo-vellinum
að Hlíðarenda. Umferðinni lýkur svo með fimm leikjum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KÖRFUBOLTI Valskonur geta í kvöld
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn
með sigri þegar Valur tekur á móti
Kef lavík í þriðja leik liðanna í
úrslitakeppni Domino’s-deildar
kvenna. Valskonur leiða einvígið
2-0 en vinna þarf þrjá leiki til að
tryggja sér titilinn. Með því yrði
Valur handhafi þriggja stærstu titl-
anna á Íslandi og um leið Íslands-
meistari í fyrsta sinn í sögu félags-
ins. Allt annað en sigur þýðir að
tímabilinu er lokið hjá Keflavík.
Þetta verður áttunda viðureign
liðanna á þessu tímabili og hefur
Valsliðið unnið síðustu sex leikina
eftir komu Helenu Sverrisdóttur í
lið Vals. Keflavík komst nálægt því
að jafna metin þegar liðin mættust
í síðasta leik í Keflavík en með öfl-
ugum varnarleik náði Valsliðið að
sigla sigrinum heim og steig stórt
skref í átt að titlinum.
Leikurinn hefst klukkan sex í
Valsheimilinu. – kpt
Tímabilið í húfi
hjá Keflavík
Valskonur eru einum sigri frá því að
vinna þrefalt í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
GOLF Kylfingurinn Valdís Þóra Jóns-
dóttir úr GL var einu höggi frá því að
ná niðurskurði á Lalla Meryem-mót-
inu á LET-mótaröðinni í golfi. Skaga-
mærin kom í hús á 77 höggum í gær,
fjórum höggum yfir pari vallarins
og samtals á sjö höggum yfir pari í
Marokkó.
Valdís fékk þrjá fugla í gær. þrjá
skolla og tvo skramba sem reyndust
henni dýrkeyptir.
Það mátti litlu muna að Valdís
kæmist áfram því niðurskurðarlínan
miðaðist við sex högg yfir pari. – kpt
Munaði einu
höggi hjá Valdísi
Fleiri xxxxxxxxxxxxxx er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Spjótkastarinn
Ásdís Hjálmsdóttir er óðum að nálg-
ast fyrri styrk þessa dagana eftir
baráttu við erfið bakmeiðsli. Það
kom í ljós að neðst í mjóbakinu var
sprunga vegna álags og þurfti hún
því að taka sér hvíld frá æfingum
með spjótið síðasta haust. Aðspurð
sagðist hún ekki finna fyrir þessum
meiðslum í dag þegar Fréttablaðið
sló á þráðinn til hennar.
„Það er erfitt að segja hvort þetta
sé búið að ná sér að fullu en ég finn
ekki til í bakinu þar sem álagsbrotið
var. Ég er pínu viðkvæm fyrir því
að vöðvar í bakinu stífni en þá er
líkaminn f ljótur að láta mig vita.
Álagsbrotið hefur ekki verið til ama,
ég hef verið að kasta á fullu og ég hef
ekki fundið fyrir þessu.“
Hún tók undir að það væri léttir
að vandræðin væru vonandi að
baki.
„Það er virkilega góð tilfinning,
þetta er búið að ganga betur en
ég vonaðist til. Þegar maður er að
glíma við svona meiðsli er alltaf
von á bakslagi en það hefur ekki
gerst ennþá.“
Ásdís er þessa dagana að æfa í
Svíþjóð og undirbúa sig fyrir fyrsta
mót ársins í maí.
„Aðstæðurnar hérna eru til fyrir-
myndar og veðrið er frábært,“ sagði
hún hlæjandi en hún fór einnig til
Suður-Afríku fyrr í vetur til að halda
undirbúningnum áfram.
„Það gekk svakalega vel að kasta í
Suður-Afríku. Þar kastaði ég í fyrsta
sinn með fullri atrennu aftur. Ég
vissi það áður en ég fór að það væri
þarna sem ég myndi komast að því
hvort þetta væri í lagi eða ekki. Ég
var aðeins byrjuð að kasta en við
fórum út til að láta á þetta reyna og
það gekk eins og í sögu. Auðvitað fór
maður varlega í fyrstu en við erum
að auka hraðann og taka eitt skref í
einu. Æfingarnar í apríl hafa gengið
mjög vel, þær hafa verið þungar en
þegar nær dregur keppni verða þær
léttari og snúast meira um gæði
kastanna.“
Ásdís kvaðst vera spennt að byrja
að keppa á ný.
„Fyrsta mótið er 22. maí í Nor-
egi. Ég er á leiðinni til Portúgals
í æfingabúðir og stoppa stutt á
Íslandi á leiðinni á mótið,“ sagði
Ásdís sem játaði því að hún væri
með annað augað á HM í haust.
„Það er auðvitað markmiðið.
Fyrst og fremst vil ég bara geta
keppt aftur og ekki fundið til í
bakinu en árangurslega séð langar
mann auðvitað á HM. Ef ég næ fullri
heilsu get ég kastað langt og ég var
að ná því í Suður-Afríku þannig að
auðvitað er ég bjartsýn.“
Ásdís hefur keppt á síðustu
þrennum Ólympíuleikum
„Það er búið að gefa út lágmörkin
og maður er með þau á bak við
eyrað en það er verið að breyta
kerfinu. Það var sett mjög strangt
lágmark, 64 metrar sem einhverjar
10-15 stelpur ná. Svo koma 22
keppendur inn af styrkleikalista
en auðvitað ef gengur vel væri það
draumur að ná 64 metrum í ár. Bæta
Íslandsmetið og vera búin að ná
lágmarkinu í staðinn fyrir að vera
í stressi næsta sumar.“
kristinnpall@frettabladid.is
Gengið framar væntingum
Endurhæfingarferli Ásdísar Hjálmsdóttur hefur gengið eins og í sögu og er hún á réttri leið fyrir fyrsta
mót ársins í næsta mánuði. Ásdís er hægt og bítandi að auka hraðann á æfingunum stefnir á HM í haust.
Ásdís kastar hér spjótinu á Evrópumótinu í frjálsum sem fór fram í Berlín síðasta sumar. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Al Arabi frá Katar
sem leikur undir stjórn Heimis Hall-
grímsson komst áfram í katörsku
bikarkeppninni í knattspyrnu
karla með 3-1 sigri gegn Umm Salal
í Emír-bikarnum í gær.
Emír-bikarinn er keppni í Katar
þar sem liðin úr efstu tveimur deild-
unum etja kappi. Þessi sigur þýðir
það að Al Arabi er komið í átta liða
úrslit keppninnar.
Wilfried Bony, sem lék áður með
Swansea og Manchester City, kom
lærisveinum Heimis á bragðið í
leiknum. - hó
Heimir komst
áfram í
bikarnum
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-3
A
C
4
2
2
E
0
-3
9
8
8
2
2
E
0
-3
8
4
C
2
2
E
0
-3
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K