Fréttablaðið - 27.04.2019, Side 34
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Rósant og
Ingvar komnir í
leðrið fyrir utan
hús Sniglanna.
Ingvar segir það
hreinsa hugann
að keyra mótor-
hjól enda þýði
ekkert að hugsa
um annað en
aksturinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Frá 1.maí akstrinun sem þeir félagar segja vera upphafspunkt fyrir komandi sumar. „Svona verða samfélög til og svona komum við góðum hlutum til leiðar,“ segir Ingvar FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þetta er upphafið og viss hápunktur. Þetta er reyndar ekki mikill akstur en það
er eitthvað ótrúlega sérstakt
með svona mikilli samstöðu
þegar 500 hjól eða fleiri mæta
á einn og sama staðinn bara til
þess eins að mótorhjóla nokkra
kílómetra. Svona verða samfélög
til og svona komum við góðum
hlutum til leiðar, með samstöðu
sem gefur slagkraft,“ segir Ingvar
Örn Ingvarsson um 1. maí akstur
Sniglanna sem markar upphaf
mótorhjólavertíðarinnar. Rósant
Guðmundsson tekur í sama streng.
„Það er frábært að hefja sumarið
með stæl og finna kraft og sam
stöðu bifhjólafólks eftir vetrar
langan dvala.“
Þeir félagar hafa verið lengi með
mótorhjóladelluna. Rósant byrjaði
fyrir um áratug en hafði fram að
því látið sig dreyma um það frá 15
ára aldri. Ingvar byrjaði árið 2007
en hafði þá verið með prófið í þó
nokkurn tíma. „Ég bjó í Danmörku
á þeim tíma og það hentaði frábær
lega að eignast fyrsta mótorhjólið
þar og ég á það hjól ennþá og sé
ekki fyrir mér að ég skilji við það
nokkurn tímann. Það lá alltaf
fyrir mér að fara á mótorhjól – ég
var nýfarinn að stíga í lappirnar
þegar ég byrjaði að sveifla þeim
yfir tveggja hjóla fáka og ímyndaði
mér að setja í gang.“
Hjólið hans Ingvars er BMW
R100RS og augljóst að hann talar
um það hjól af virðingu. „Þetta
er sígilt hjól, þekkt í mótorhjóla
sögunni sem hjól nýrra viðmiða
1977 – hannað af Hans Muth sem
átti mörg fræg hjól. Þetta er fyrsta
fjöldaframleidda hjólið með kápu
og var alla tíð eins konar „gentle
mans racer“ þótt það sjáist nú ekki
á því í dag – það þótti merkilegt
að það gat náð 200 km/klst. og
hægt var að túra á því allan daginn
án þreytumerkja. Þetta er líka
mótorhjól sem var svo vinsælt að
þegar hætt var að framleiða þau
1984 var því mótmælt staðfastlega
þangað til BMW hóf framleiðslu á
þeim aftur 1987 enda féllu Khjólin
ekki í kramið hjá þeim sem vildu
hinn skothelda loftkælda boxer
mótor.“ Þar fyrir utan á hann
tvö hjól með félaga sínum, Gísla
Jenssyni. Ducati SuperSport 2004
og Yamaha Virago 535 sem þeir
fengu að gjöf frá velunnara og eru
að breyta og verður vonandi klárt
í sumar.
Rósant á tvö hjól. Yamaha XS
650 frá árinu 1975 og Triumph
Speed Triple árgerð 2003. „Bæði
hjólin er frábær hvort með sinn
karakterinn. Yammann nota ég
upp á töffaraskapinn, hljóminn
í mótornum og þegar maður vill
fara í sparifötin. Einnig finnst
konunni minni betra að sitja aftan
á því. Triumphinn nota ég mest og
aksturseiginleikarnir eru eins og
hugur manns, kraftmikið og ein
faldlega truflað hjól.“
Báðir tala um frelsið þegar þeir
eru spurðir um hvað það sé sem
dragi þá að malbikinu á mótor
hjóli. „Sagt er að fjögur dekk hreyfi
líkamann en tvö dekk hreyfi
andann,“ segir Rósant og heldur
áfram: „Það eru orð að sönnu.
Tíminn stendur í stað á mótorhjóli,
stundum finnur maður sig úti í
buskanum og stundum, í honum,
finnur maður sjálfan sig. Full
komin núvitundaræfing.“ Ingvar
bætir við að allir séu á sínum eigin
forsendum þótt forsendurnar séu
sameiginlegar. „Maður er einn
með sjálfum sér á hjólinu en samt
mjög oft með félögunum. Það er
ilmurinn úr loftinu, loftmótstaðan
og þyngdarkraftarnir sem ýta
manni í ökuflæðið sem mér finnst
skemmtilegast. Það er að finna
hvernig einbeitingin og valdið yfir
hjólinu og umhverfinu sameinast á
einum stað og stund. Yndislegt. Ég
er reyndar hrifinn af mölinni líka –
Framhald af forsíðu ➛
enda stendur það til bóta. Ég á mér
draum um að túra um hálendið
og jafnvel út fyrir landsteinana á
ferðahjóli.“
Aðspurðir hvort þetta sé ekki
lífsstíll að vera mótorhjólatöffari
frekar en áhugamál segir Ingvar:
„Þetta er lífsstíll fyrir mér en líka
áhugamál. Lífsstíllinn felst í því að
maður tekur á sig ákveðin óþæg
indi til þess að fá eitthvað gott á
móti. Það hefur reyndar komið á
óvart hvað það er hentugt að vera
á mótorhjóli í umferðartepptri
borg eins og Reykjavík. Maður
er f ljótari á milli staða og aldrei í
vandræðum með stæði. Það sparar
helling. Þetta er því góður lífsstíll
og við sjáum líka fjölgun í Sniglum
á meðal fólks sem vill leita annarra
leiða til að komast um borgina en
að ferðast með „búri“ eins og sumir
kalla það.“ Rósant bætir því við að
þetta sé lífsstíll sem yfirtaki f lest
áhugamál.
Hjólamenning á Íslandi er fjöl
breytt enda er hér hópur fólks á
öllum aldri, af öllum kynjum, úr
öllum áttum, sem á það sameigin
legt að elska það að þeysast saman
eða eitt síns liðs um á mótorhjóli.
„Margir hópar eru víðs vegar um
landið þar sem fólk kemur saman
og sameinast um þennan lífsstíl.
Sniglarnir eru svo hagsmuna
samtök allra bifhjólamanna, límið
sem tengir alla saman, hópa og
einstaklinga,“ segir Rósant. Ingvar
segir að málefnastarf Snigla hafi
skilað miklum árangri og fjölgun
meðlima var sú mesta af öllum
samtökum FEMA, sem eru samtök
áhugamanna um mótorhjól í
Evrópu. „Sá hópur er yngra fólk,
með óvenjulegri mótorhjól, konur
og karlar, sem bætist við í f lóru
reyndari fólks. Það er mikil sam
staða hjá hjólafólki og það er til
marks um góða menningu. Það
ekur enginn mótorhjólamaður
fram hjá einhverjum í vand
ræðum,“ bendir hann á.
Ingvar bendir á að rannsóknir
í Bandaríkjunum hafi sýnt fram
á að konur fái meira út úr hjóla
mennskunni en karlar og hann
myndi vilja sjá miklu fleiri konur
í Sniglunum. „Við bjóðum konur
velkomnar á opin hús hjá okkur á
miðvikudagskvöldum í Skeljanesi
kl. 20.00 til að fræðast meira – eða
tékka á okkur á Facebook eða
vefnum sniglar.is,“ segir Ingvar.
Að finna hvernig
einbeitingin og
valdið yfir hjólinu og
umhverfinu sameinast á
einum stað og stund.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RMÓTORHJÓL
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-6
C
2
4
2
2
E
0
-6
A
E
8
2
2
E
0
-6
9
A
C
2
2
E
0
-6
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K