Fréttablaðið - 27.04.2019, Side 92
Lífið í
vikunni
21.04.19-
27.04.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Á T T U V O N
Á G E S T U M ?
LOLLY
Sérlega vandaður ítalskur svefn sófi.
Grátt slitsterkt áklæði.
Sófinn er með 18 cm þykkri hágæðadýnu.
Stærð: 207 x 93 x 100 cm.
Svefnsvæði: 140 x 195 cm.
Fullt verð: 269.900
Kynningartilboð 215.920 kr.
A F S L ÁT T U R
20%
KYNNINGARTILBOÐ!
FER OFT ÚT Í EITTHVAÐ
ALGJÖRT RUGL
Fyrsti þátturinn
af KlingKling
var frum-
sýndur í
Smárabíói
á föstu-
dagskvöld
en þættirnir
koma úr smiðju
Herra Hnetusmjörs.
Segir rapparinn að í þáttunum
verði prófaðir hlutir sem ekki hafi
áður sést í íslensku sjónvarpi en
nýr gestastjórnandi verður með
rapparanum í hverjum þætti.
KODDASLAGUR VIÐ
REYKJAVÍKURHÖFN
Helga Lilja
Magnúsdóttir
hefur undan-
farin ár staðið
fyrir koddaslag
við Reykja-
víkurhöfn á sjó-
mannadaginn,
Hér á árum
áður var svipuð
keppni haldin
við höfnina þar
sem sjómenn kepptust um að
sýna hreysti sína en keppnin hafði
legið niðri í tæpa tvo áratugi.
VEÐMÁL UM ÓFÆTT BARN
SUSSEX-HJÓNA
Veðmálasíður hafa
farið mikinn í
hinum ýmsu
veðmálum
tengdum
fæðingunni, svo
sem um kyn, nafn
og fæðingardag.
Þykir sumum veðbókurum allt
benda sterklega til þess að um
stúlkubarn verði að ræða. Nafn
Díönu prinsessu af Wales, móður
Harrys, trónir svo á toppnum á
langflestum síðunum yfir lík-
legasta nafnið.
STÍLHREIN STÁLSMÍÐI
ANÍTU HÖNNU
Aníta Hanna Sævarsdóttir hannar
undir nafninu Holt Heima List og
flestir munirnir eru í mínímalísk-
um stíl. Aníta Hanna hefur undan-
farið vakið athygli í hinum ýmsu
Face book-hópum tileinkuðum
innanhússhönnun og smekk-
legum heimilishugmyndum.
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Rithöfundar og útgefendur
mætast í fótboltaleik
Það eru ekki bara atvinnumennirnir
í Pepsi Max deildinni sem standa í
ströngu í dag því að stálin stinn mæt-
ast á KR-vellinum þegar bókaútgef-
endur og rithöfundar, sem vanir eru
að vera í sama liði, etja kappi í fót-
boltaleik í tengslum við Bókmennta-
hátíð í Reykjavík sem nú stendur
sem hæst. Í liði útgefenda verða ein-
hverjir öflugustu bókaútgefendur
landsins og í liði rithöfunda verða
beittustu pennar bókaþjóðarinnar.
Heiður starfsstéttanna er í húfi og
án efa verður hart barist á vellinum.
Allt er þetta þó gert í miklu bróðerni
og seinna í kvöld munu allir dansa
saman á Bókaballinu í Iðnó sem er
öllum opið.
Hvenær: 14.00, í dag, laugardag
Hvar: Á gervigrasvellinum í Frosta-
skjóli
Tónleikarnir Skaðablót
Raftónlistarbransi íslands hefur
ákveðið sameinast um að halda
partí þessa helgina þrátt fyrir að
Sónar hafi verið af lýst. Hátíðin
hefur frá stofnun verið nokkurs
konar árshátíð raftónlistarmanna
og unnenda og var því mikill skellur
þegar henni var aflýst í kjölfar gjald-
þrots lággjaldaflugfélagsins WOW.
Komu því aðilar innan senunnar að
máli við stjórnendur hátíðarinnar
og vildu leggja hönd á plóg til að
halda nafni hátíðarinnar á lofti með
hinum ýmsu tónleikum og partíum
um allan bæ. Ber þar helst að nefna
Skaðablót sem haldið verður í Bíói
Paradís og helstu raftónlistarmenn
landsins stíga á svið.
Hvar: Í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54
Hvenær: 20.00-02.00 í kvöld
Verð: 2.000 kr.
Útgáfufögnuður
tímaritsins Blætis
Útgáfufögnuður tímaritsins Blætis
verður haldinn næstkomandi
þriðjudag í Marshallhúsinu úti á
Granda. Þetta er í þriðja skiptið
sem blaðið kemur út en því er rit-
stýrt af Ernu Bergmann og Sögu Sig
en Studio studio er listrænn stjórn-
andi ásamt þeim stöllum. Um er að
ræða harðspjaldatímarit sem er mun
veglegra en gengur og gerist í tíma-
ritageiranum. Í þetta sinn er þema
blaðsins framtíðin og fyllir það
heilar 400 blaðsíður af tísku, hönn-
un og listum. Nýjasta tölublaðið
inniheldur meðal annars viðtal við
Vigdísi Finnbogadóttur, ljóð eftir
Bubba og sögu Aftur-merkisins. Vel
verður gert við gesti á þriðjudaginn,
en boðið verður upp á veitingar frá
La Primavera, drykki frá Tanqueray
og Thomas Henry. Sævar Markús og
FM Belfast þeyta skífum og eru veg-
legir gjafapokar í boði fyrir þá fyrstu
sem mæta.
Hvar: Í Marshallhúsinu, veitinga-
staðnum La Primavera, Granda-
garði 20
Hvenær: 20.00, þriðjudaginn
30. apríl
Stóri plokkdagurinn 2019
Næstkomandi sunnudag stendur
Plokk á Íslandi fyrir fyrir hreins-
unardegi um land allt og hvetja sam-
tökin einstaklinga og sveitarfélög til
að leggja hönd á plóg. Sérstök áhersla
verður lögð á Reykjanesbrautina
enda er hún eitt það fyrsta sem blasir
við augum erlendra ferðamanna,
og því sé mikilvægt að halda henni
snyrtilegri. Einar Bárðarson, einn
skipuleggjenda hátíðarinnar, hvatti
fólk sérstaklega til að vera með
eigin „herdeildir“ í sínum hverfum
og hjálpast þar með að við að halda
umhverfi okkar snyrtilegu.
Hvar: Um land allt
Hvenær: Allan sunnudaginn 28. apríl
Útskriftarsýning fata-
hönnunarnema frá LHÍ
Tískusýning útskriftarnema fata-
hönnunardeildar LHÍ verður haldin
á þriðjudaginn í Flóa í Hörpu. Þar
sýna sjö nemendur deildarinnar
afrakstur námsins með útskriftar-
verkefnum sínum. Í kjölfar sýning-
arinnar verða verkefnin og vinnslu-
ferlið til sýnis á Kjarvalsstöðum.
Markmið námsins er að nemendur
nái að þróa með sér persónulega
afstöðu til viðfangsefnis nám-
skeiðsins og lýsa verkefni nemenda
persónulegri, listrænni og jafnvel
pólitískri afstöðu.
Hvar: Í Flóa, Hörpu
Hvenær: 19.00, þriðjudaginn
30. apríl
Það helsta um helgina
Þeir sem vilja gleyma sér í dynjandi takti raftónlistar eiga von á
góðu um helgina, jafnvel þó svo að Sónar hafi verið aflýst.
Erna Bergmann og Saga Sig eru
ritstjórar tímaritsins Blætis.
Sigmundur Páll Freysteins-
son og Ingerð Tórmóðsdótt-
ir Jönsson eru meðal þeirra
sem sýna útskriftarverkefni
sín á þriðjudaginn í Flóa.
Raftónlistin
ræður ríkjum
í Bíó Paradís í
kvöld.
Rithöfundar
og útgefendur
mætast í Frosta-
skjólinu í dag.
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
0
-3
F
B
4
2
2
E
0
-3
E
7
8
2
2
E
0
-3
D
3
C
2
2
E
0
-3
C
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K