Fréttablaðið - 13.05.2019, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 1 3 . M A Í 2 0 1 9
KRINGLUKAST
20-50% AFSLÁTTUR8.-13. MAÍ
Miðvikudag til mánudags
FERÐAÞJÓNUSTA 59 mál um ólög-
lega heimagistingu hafa verið send
lögreglu til rannsóknar, 61 máli
hefur lokið með stjórnvaldssektum
og fyrirhugaðar og álagðar stjórn-
valdssektir nema tæplega 100 millj-
ónum króna vegna herts eftirlits
með gististarfsemi, átaks sem ráð-
herra ferðamála, Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, hrinti af stað
í fyrra. „Það er ánægjulegt að átakið
um aukna heimagistingarvakt hafi
skilað þetta miklum árangri,“ segir
Þórdís.
Þá hefur heimagistingarvaktin
orðið til þess að upplýsingar um
420 fasteignir hafa verið sendar á
skattrannsóknaryfirvöld. Yfir 3.000
ábendingar um óleyfilega skamm-
tímaleigu hafa borist á tímabilinu.
Á árinu 2017 var áætlað að allt
að 80 prósent skammtímaleigu á
Íslandi færu fram án tilskilinna leyfa
eða skráningar. Sýslumaður áætlar
að óskráðum og leyfislausum gisti-
stöðum hafi fækkað um meira en
30 prósent frá því að átakið hófst.
Í janúar hafði orðið 400 prósenta
aukning á tíðni skráninga slíkra
eigna ef miðað er við tölur frá sama
tímabili í fyrra.
Sýslumaður áætlar þó að um
helmingur allrar skammtímaleigu
fari enn fram hér á landi án tilskil-
inna leyfa eða skráningar.
Í skýrslu Íslandsbanka um stöðu
ferðaþjónustu frá því fyrr í mánuð-
inum kemur fram að umsvif Airbnb
hafi dregist saman á síðastliðnu ári
og hlutdeild skráðrar gistiþjónustu
aukist á ný. Þar með tókst að snúa
við vaxandi hlutdeild Airbnb og
annarrar óskráðrar gistingar. Hlut-
deild skráðrar gistiþjónustu í seldum
gistinóttum féll hratt eftir að Airbnb
kom til skjalanna og náði minnst 74
prósentum árið 2017.
Hert eftirfylgni reglna er sam-
kvæmt skýrslu bankans talin ein
meginástæða þessarar þróunar,
auk þess sem ferðamönnum fjölg-
aði hægar á síðastliðnu ári en árin
á undan og íbúðaverð hækkaði auk
þess hægar en undanfarin ár.
Kostnaður ráðuney tis Þór-
dísar við hert eftirlit var 64 millj-
ónir króna en gert var ráð fyrir því
að bætt skattskil og sektargreiðslur
myndu vega þann kostnað upp.
Reynsla af átakinu hefur sýnt að
samanlagðar fjárhæðir stjórnvalds-
sekta og innheimt gjöld vegna fjölg-
unar á skráningum nema hærri fjár-
hæð en kostnaður.
Er þá ekki tekið mið af óbeinum
áhrifum á borð við aukin skattskil,
framboð á leiguhúsnæði og jafnari
samkeppnisgrundvöll. „Það er sér-
staklega ánægjulegt hvaða jákvæðu
áhrif aukið eftirlit hefur haft á hús-
næðismarkaðinn. Það er mikilvægt
fyrir samfélagið að menn komist
ekki upp með að spila ekki eftir regl-
unum.“ – ósk
Tugir mála
ratað á borð
lögreglunnar
Yfir 3.000 ábendingar um óleyfilega skammtíma-
leigu hafa borist heimagistingarvakt ráðherra
ferðamála. Tugir mála hafa endað með stjórnvalds-
sektum og tæp 60 mál hafa ratað á borð lögreglu.
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir,
ferðamála-
ráðherra
Sergio Agüero, framherji Manchester City, með enska meistarabikarinn í höndunum en liðið varði titil sinn í
gær með sigri gegn Brighton i lokaumferðinni. Agüero skoraði 21 deildarmark á tímabilinu. NORDICPHOTOS/GETTY
MENNING Stjórn Félags íslenskra
leikara hefur verið falið að senda
bréf til Þjóðleikhúsráðs og til menn-
ingarmálaráðherra þar sem kvartað
er yfir aðgerðaleysi vegna athuga-
semda sem borist hafa vegna hegð-
unar þjóðleikhússtjóra. Kvartanir
hafi borist ráðinu og ráðherranum
vegna samskipta leikhússtjórans
við félagsmenn FÍL en ekkert hafi
verið að gert. Þetta var niðurstaða
opins fundar FÍL á fimmtudag.
Fréttablaðið hefur rætt við fag-
fólk í stétt listamanna sem ber
saman um að erfið staða sé komin
upp í Þjóðleikhúsinu. – ósk / sjá síðu 6
Erfið staða í leikhúsinu
Ari Matthíasson
þjóðleikhússtjóri
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
A
-0
1
B
C
2
2
F
A
-0
0
8
0
2
2
F
9
-F
F
4
4
2
2
F
9
-F
E
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K