Fréttablaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 10
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Elín Edda Sig- urðardóttir náði á dögunum næst- besta tíma sem íslensk kona hefur náð í maraþonhlaupi. Það sem gerir þennan góða árangur Elínar Eddu í hlaupinu ekki síður eftirtektar- verðan er sú staðreynd að þetta er í fyrsta skipti sem hún hleypur heilt maraþon. Þá eru einungis rúm tvö ár síðan Elín Edda fór að æfa hlaup af alvöru hjá meistaraflokki ÍR. Eftir að hafa f lakkað á milli íþrótta og skokkað aðallega sér til ánægju og yndisauka fyrst sjálf og síðar með skokkhóp komst hún í keppnisham þegar hún kynntist starfinu í ÍR. Þjálfari hennar Martha Ernst- dóttir á besta tímann, en tími Elínar Eddu á dögunum var 2:49,00 og Íslandsmet Mörthu er 2:35,15. Báðar hlupu þær á þýskri grundu en Martha setti metið í Berlín árið 1999 og nú 20 árum síðar hljóp Elín Edda í Hamborg. Martha var með Elínu Eddu í Hamborg en hún hefur reynst henni afar vel í lærdómsferl- inu um hvernig best er að undirbúa sig fyrir heilt maraþon. „Mér leið ofsalega vel um leið og ég lagði af stað í hlaupið. Tilfinn- ingin var bara eins og ég væri að skokka fyrstu 25 kílómetrana. Ég fann það strax að þetta yrði gott hlaup og ég myndi ná góðum tíma. Öndunin var góð allan tímann og ég lenti aldrei á þeim vegg sem ég hafði heyrt að einhverjir lentu í um 30 kílómetrana eða þar á eftir, sem var bara frábært,“ segir Elín Edda um upplifun sína af hlaupinu. „Ég var vel meðvituð um það að ég mætti ekki keyra of hratt þannig að ég myndi ekki springa og þyrfti að hægja á mér. Ég náði að halda stöð- ugum hraða út allt hlaupið og það skilaði þessum góða tíma. Nú tekur við að æfa mig enn frekar í þessum tæknilegu atriðum og svo er ekki síður mikilvægt að þjálfa hugann í því að takast á við jafn erfiða and- lega raun og maraþonhlaup er,“ segir hún enn fremur um hlaupið í Hamborg. „Mér finnst ég hafa fundið mína hillu í maraþonhlaupinu en ég mun inn á milli hlaupa áfram 5, 10 og 21 kílómetra hlaup. Maraþonið og önnur langhlaup hafa eiginlega heltekið mig og eiga hug minn allan. Mig langar mjög að bæta mig enn frekar en ég hef svo sem ekki sett mér nein töluleg markmið í þeim efnum. Ég er eiginlega fyrst núna að komast niður úr skýjunum með það hversu vel hlaupið gekk og ná að melta það hvernig ég framkvæmdi hlaupið. Á næstu dögum mun ég svo setjast niður með Mörthu og setja upp áætlun fyrir næstu skref,“ segir hún um framhaldið hjá sér í hlaupunum. „ Mar tha hef ur rey nst mér of boðslega vel í því ferli að gera mig reiðubúna til þess að hlaupa heilt maraþon. Ef ég hefði ekki notið handleiðslu hennar hefði ég líklega farið of geyst í hlutina og lent á veggnum sem ég nefndi áðan. Hún er gríðarlega reynslumikill hlaup- ari og ég er mjög þakklát fyrir það sem hún hefur gert fyrir mig. Ég get vel ímyndað mér að hún sjái svo- lítið sjálfa sig í mér og það kveiki hjá henni þann áhuga sem hún hefur á minni þjálfun,“ segir þessi metn- aðarfulli hlaupari. Auk þess að vera á fullu í hlaupum starfar Elín Edda sem læknir en hún er að sérmennta sig sem svæfinga- læknir og vinnur krefjandi vinnu á Landspítalanum. Það er henni til happs að sambýlismaður hennar er einnig hlaupari og því er fullur skilningur á heimilinu fyrir því að frítíminn fari í áhugamál þeirra beggja og að heilbrigt líferni sé krafa. „Við kynntumst í hlaupastarfinu í ÍR og það kemst fátt annað að á heimilinu en að undirbúa sig eins vel og nokkur kostur er fyrir næstu æfingu eða næsta hlaup. Auðvitað lifum við félagslífi og ég leyfi mér alveg að fá mér rauðvínsglas með vinkonunum, en það er mér hins vegar mjög mikilvægt vegna anna í starfi og metnaðar í hlaupunum að ég fái góða hvíld og næri mig á réttan hátt. Hlaupin eru auðvitað fyrst og fremst til lýðheilsu og til þess að halda góðri geðheilsu en ég er líka komin með mikið keppnis- skap fyrir því að standa mig vel á þeim vettvangi,“ segir Elín aðspurð um hvernig gangi að samþætta hlaupin við vinnu og daglegt líf. „Við Vilhjálmur Þór, kærasti minn, erum búin að vera með hug- mynd að hlaðvarpsþætti í kollinum í langan tíma og þetta er ein af þessum góðu hugmyndum sem við höfum fengið á einu af okkar mörgu hlaupaspjöllum. Fyrsti þátturinn kemur í þessari viku á helstu miðla og við stefnum að útgáfu á tveggja vikna fresti. Þátturinn kallast Hlaupalíf hlaðvarp. Við munum spjalla um allt milli himins og jarð- ar sem viðkemur hlaupum og taka viðtöl við fjölbreyttan hóp af fólki. Ég sé fyrir mér að ég muni halda áfram að hlaupa meðfram sérnámi mínu, en taka skorpur inn á milli þar sem ég einbeiti mér af fullum krafti að hlaupunum. Ég fór til að mynda til Colorado nýverið í hlaupabúðir í þrjár vikur og það gerði mér mjög gott. Það er ákveð- inn draumur hjá mér að fara ein- hvern tímann til Kenía og hlaupa þar í því sem er svona eiginlega mekka langhlauparans. Svo heilla náttúruhlaup mig mjög mikið og í sumar stefni ég til dæmis á að fara á Vestfirðina og taka þátt í hlaupi þar og svo bara í öllum þeim hlaupum sem bjóðast hér heima. Ég er mjög spennt fyrir því að halda áfram að bæta mig sem hlaupari og halda áfram að skoða heiminn á hlaup- um,“ segir hún um komandi verk- efni hjá sér og framtíðaráform þegar kemur að hlaupaferlinum. hjorvaro@frettabladid.is ÍBV - Grindavík 2-2 1-0 Víðir Þorvarðarson (45.), 1-1 Correia (sjálfsmark) (45.), 2-1 McAusland (sjálfs- mark) (45.), 2-2 Aron Jóhannsson (60.). Valur - ÍA 1-2 0-1 Óttar Bjarni Guðmundsson (21.), 0-2 Arnar Már Guðjónsson (45,), 1-2 Gary John Martin (vítaspyrna) (57.). . KR - Fylkir 1-1 1-0 Tobias Thomsen (33.), 1-1 Ragnar Bragi Sveinsson (90.). Nýjast Pepsi-deild karla ÍBV - Þór/KA 1-3 0-1 Sigríður Lára Garðarsdóttir (34.) víta- spyrna, 1-1 Stephany Mayor (38.), Margrét Árnadóttir (40.), 1-3 Stephany Mayor (87.). Pepsi-deild kvenna Efri Breiðablik 7 ÍA 7 FH 7 Fylkir 5 KR 5 Stjarnan 5 Neðri KA 3 Víkingur 2 Grindavík 2 Valur 1 HK 1 ÍBV 1 Frábær frumraun í maraþoni Fyrir skömmu hljóp Elín Edda Sigurðardóttir sitt fyrsta heila maraþon en þá voru tæp þrjú ár síðan hún hóf að æfa hlaup af fullum krafti. Hún náði næstbesta tíma íslenskrar konu í sínu fyrsta hlaupi í Hamborg. Elín Edda í Reykjavíkurmaraþoninu. Elín Edda í hlaupinu í Hamborg. Elín Edda Sigurðardóttir ákvað fyrir tæpum þremur árum að fara á fullt í hlaupum en hún einbeitir sér aðallega að maraþoni og hefur náð góðu árangri. Mér finnst ég hafa fundið mína hillu í maraþonhlaupinu. Mara- þonið og önnur langhlaup hafa eiginlega heltekið mig og eiga hug minn allan. KÖRFUBOLTI Friðrik Ingi Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Þórs Þorlákshöfn í körfubolta en hann tekur við starfinu af Baldri Þór Ragnarssyni sem var í síðustu viku ráðinn þjálfari Tindastóls. Fr iðr ik Ing i, sem er marg- reyndur og sigursæll þjálfari, var síðast meðt karlalið Kef lavíkur en hann ýjaði að því þegar hann lauk störfum þar að hann væri hættur þjálfun. Nú hefur þjálfarabakterían hins vegar náð tökum á honum og hann mun snúa aftur á komandi keppn- istímabili. Þessi 51 árs gamli þjálfari hefur hann unnið titla með Njarðvík og Grindavík auk þess að þjálfa íslenska landsliðið. – hó Friðrik Ingi tekur við Þór GOLF Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, endaði í 45. sæti á IOA Invitational-mótinu í golfi sem er hluti af Symetra-móta- röðinni og fór fram í Milton, Georg- íu, í Bandaríkjunum um helgina. Ólafía Þórunn lék hringina þrjá á mótinu á samtals tveimur höggum yfir pari. Þetta er í annað skiptið á tíma- bilinu sem Ólafía kemst í gegnum niðurskurðinn á Symetra-móta- röðinni og jafnframt besti árangur hennar á mótaröðinni á yfirstand- andi keppnistímabili. Ólafía Þórunn er að búa sig undir sitt sjöunda risamót á ferlinum þegar hún leikur á Opna banda- ríska meistaramótinu sem fram fer í Charleston í Suður-Karólínu á austurströnd Bandaríkjanna, dag- ana 30. maí til 2. júní. – hó Fínir hringir hjá Ólafíu Þórunni Ólafía Þórunn Kristinsdóttir stóð sig vel á móti í Bandaríkjunum. S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 3 -0 5 -2 0 1 9 0 8 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F A -1 5 7 C 2 2 F A -1 4 4 0 2 2 F A -1 3 0 4 2 2 F A -1 1 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.