Fréttablaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 10
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Elín Edda Sig-
urðardóttir náði á dögunum næst-
besta tíma sem íslensk kona hefur
náð í maraþonhlaupi. Það sem gerir
þennan góða árangur Elínar Eddu
í hlaupinu ekki síður eftirtektar-
verðan er sú staðreynd að þetta er í
fyrsta skipti sem hún hleypur heilt
maraþon. Þá eru einungis rúm tvö
ár síðan Elín Edda fór að æfa hlaup
af alvöru hjá meistaraflokki ÍR. Eftir
að hafa f lakkað á milli íþrótta og
skokkað aðallega sér til ánægju og
yndisauka fyrst sjálf og síðar með
skokkhóp komst hún í keppnisham
þegar hún kynntist starfinu í ÍR.
Þjálfari hennar Martha Ernst-
dóttir á besta tímann, en tími
Elínar Eddu á dögunum var 2:49,00
og Íslandsmet Mörthu er 2:35,15.
Báðar hlupu þær á þýskri grundu
en Martha setti metið í Berlín árið
1999 og nú 20 árum síðar hljóp Elín
Edda í Hamborg. Martha var með
Elínu Eddu í Hamborg en hún hefur
reynst henni afar vel í lærdómsferl-
inu um hvernig best er að undirbúa
sig fyrir heilt maraþon.
„Mér leið ofsalega vel um leið og
ég lagði af stað í hlaupið. Tilfinn-
ingin var bara eins og ég væri að
skokka fyrstu 25 kílómetrana. Ég
fann það strax að þetta yrði gott
hlaup og ég myndi ná góðum tíma.
Öndunin var góð allan tímann og
ég lenti aldrei á þeim vegg sem ég
hafði heyrt að einhverjir lentu í um
30 kílómetrana eða þar á eftir, sem
var bara frábært,“ segir Elín Edda
um upplifun sína af hlaupinu.
„Ég var vel meðvituð um það að ég
mætti ekki keyra of hratt þannig að
ég myndi ekki springa og þyrfti að
hægja á mér. Ég náði að halda stöð-
ugum hraða út allt hlaupið og það
skilaði þessum góða tíma. Nú tekur
við að æfa mig enn frekar í þessum
tæknilegu atriðum og svo er ekki
síður mikilvægt að þjálfa hugann í
því að takast á við jafn erfiða and-
lega raun og maraþonhlaup er,“
segir hún enn fremur um hlaupið í
Hamborg.
„Mér finnst ég hafa fundið mína
hillu í maraþonhlaupinu en ég
mun inn á milli hlaupa áfram 5, 10
og 21 kílómetra hlaup. Maraþonið
og önnur langhlaup hafa eiginlega
heltekið mig og eiga hug minn allan.
Mig langar mjög að bæta mig enn
frekar en ég hef svo sem ekki sett
mér nein töluleg markmið í þeim
efnum. Ég er eiginlega fyrst núna
að komast niður úr skýjunum með
það hversu vel hlaupið gekk og ná að
melta það hvernig ég framkvæmdi
hlaupið. Á næstu dögum mun ég
svo setjast niður með Mörthu og
setja upp áætlun fyrir næstu skref,“
segir hún um framhaldið hjá sér í
hlaupunum.
„ Mar tha hef ur rey nst mér
of boðslega vel í því ferli að gera
mig reiðubúna til þess að hlaupa
heilt maraþon. Ef ég hefði ekki
notið handleiðslu hennar hefði ég
líklega farið of geyst í hlutina og lent
á veggnum sem ég nefndi áðan. Hún
er gríðarlega reynslumikill hlaup-
ari og ég er mjög þakklát fyrir það
sem hún hefur gert fyrir mig. Ég get
vel ímyndað mér að hún sjái svo-
lítið sjálfa sig í mér og það kveiki hjá
henni þann áhuga sem hún hefur á
minni þjálfun,“ segir þessi metn-
aðarfulli hlaupari.
Auk þess að vera á fullu í hlaupum
starfar Elín Edda sem læknir en hún
er að sérmennta sig sem svæfinga-
læknir og vinnur krefjandi vinnu
á Landspítalanum. Það er henni til
happs að sambýlismaður hennar
er einnig hlaupari og því er fullur
skilningur á heimilinu fyrir því að
frítíminn fari í áhugamál þeirra
beggja og að heilbrigt líferni sé
krafa.
„Við kynntumst í hlaupastarfinu
í ÍR og það kemst fátt annað að á
heimilinu en að undirbúa sig eins
vel og nokkur kostur er fyrir næstu
æfingu eða næsta hlaup. Auðvitað
lifum við félagslífi og ég leyfi mér
alveg að fá mér rauðvínsglas með
vinkonunum, en það er mér hins
vegar mjög mikilvægt vegna anna
í starfi og metnaðar í hlaupunum
að ég fái góða hvíld og næri mig á
réttan hátt. Hlaupin eru auðvitað
fyrst og fremst til lýðheilsu og til
þess að halda góðri geðheilsu en ég
er líka komin með mikið keppnis-
skap fyrir því að standa mig vel á
þeim vettvangi,“ segir Elín aðspurð
um hvernig gangi að samþætta
hlaupin við vinnu og daglegt líf.
„Við Vilhjálmur Þór, kærasti
minn, erum búin að vera með hug-
mynd að hlaðvarpsþætti í kollinum
í langan tíma og þetta er ein af
þessum góðu hugmyndum sem við
höfum fengið á einu af okkar mörgu
hlaupaspjöllum. Fyrsti þátturinn
kemur í þessari viku á helstu miðla
og við stefnum að útgáfu á tveggja
vikna fresti. Þátturinn kallast
Hlaupalíf hlaðvarp. Við munum
spjalla um allt milli himins og jarð-
ar sem viðkemur hlaupum og taka
viðtöl við fjölbreyttan hóp af fólki.
Ég sé fyrir mér að ég muni halda
áfram að hlaupa meðfram sérnámi
mínu, en taka skorpur inn á milli
þar sem ég einbeiti mér af fullum
krafti að hlaupunum. Ég fór til
að mynda til Colorado nýverið í
hlaupabúðir í þrjár vikur og það
gerði mér mjög gott. Það er ákveð-
inn draumur hjá mér að fara ein-
hvern tímann til Kenía og hlaupa
þar í því sem er svona eiginlega
mekka langhlauparans. Svo heilla
náttúruhlaup mig mjög mikið og í
sumar stefni ég til dæmis á að fara á
Vestfirðina og taka þátt í hlaupi þar
og svo bara í öllum þeim hlaupum
sem bjóðast hér heima. Ég er mjög
spennt fyrir því að halda áfram að
bæta mig sem hlaupari og halda
áfram að skoða heiminn á hlaup-
um,“ segir hún um komandi verk-
efni hjá sér og framtíðaráform þegar
kemur að hlaupaferlinum.
hjorvaro@frettabladid.is
ÍBV - Grindavík 2-2
1-0 Víðir Þorvarðarson (45.), 1-1 Correia
(sjálfsmark) (45.), 2-1 McAusland (sjálfs-
mark) (45.), 2-2 Aron Jóhannsson (60.).
Valur - ÍA 1-2
0-1 Óttar Bjarni Guðmundsson (21.), 0-2
Arnar Már Guðjónsson (45,), 1-2 Gary John
Martin (vítaspyrna) (57.).
.
KR - Fylkir 1-1
1-0 Tobias Thomsen (33.), 1-1 Ragnar Bragi
Sveinsson (90.).
Nýjast
Pepsi-deild karla
ÍBV - Þór/KA 1-3
0-1 Sigríður Lára Garðarsdóttir (34.) víta-
spyrna, 1-1 Stephany Mayor (38.), Margrét
Árnadóttir (40.), 1-3 Stephany Mayor (87.).
Pepsi-deild kvenna
Efri
Breiðablik 7
ÍA 7
FH 7
Fylkir 5
KR 5
Stjarnan 5
Neðri
KA 3
Víkingur 2
Grindavík 2
Valur 1
HK 1
ÍBV 1
Frábær frumraun í maraþoni
Fyrir skömmu hljóp Elín Edda Sigurðardóttir sitt fyrsta heila maraþon en þá voru tæp þrjú ár síðan hún
hóf að æfa hlaup af fullum krafti. Hún náði næstbesta tíma íslenskrar konu í sínu fyrsta hlaupi í Hamborg.
Elín Edda í Reykjavíkurmaraþoninu. Elín Edda í hlaupinu í Hamborg.
Elín Edda Sigurðardóttir ákvað fyrir tæpum þremur árum að fara á fullt í hlaupum en hún einbeitir sér aðallega að maraþoni og hefur náð góðu árangri.
Mér finnst ég hafa
fundið mína hillu í
maraþonhlaupinu. Mara-
þonið og önnur langhlaup
hafa eiginlega heltekið mig
og eiga hug minn allan.
KÖRFUBOLTI Friðrik Ingi Rúnarsson
hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs
Þórs Þorlákshöfn í körfubolta en
hann tekur við starfinu af Baldri
Þór Ragnarssyni sem var í síðustu
viku ráðinn þjálfari Tindastóls.
Fr iðr ik Ing i, sem er marg-
reyndur og sigursæll þjálfari, var
síðast meðt karlalið Kef lavíkur en
hann ýjaði að því þegar hann lauk
störfum þar að hann væri hættur
þjálfun.
Nú hefur þjálfarabakterían hins
vegar náð tökum á honum og hann
mun snúa aftur á komandi keppn-
istímabili.
Þessi 51 árs gamli þjálfari hefur
hann unnið titla með Njarðvík
og Grindavík auk þess að þjálfa
íslenska landsliðið. – hó
Friðrik Ingi
tekur við Þór
GOLF Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
atvinnukylfingur úr GR, endaði í
45. sæti á IOA Invitational-mótinu í
golfi sem er hluti af Symetra-móta-
röðinni og fór fram í Milton, Georg-
íu, í Bandaríkjunum um helgina.
Ólafía Þórunn lék hringina þrjá á
mótinu á samtals tveimur höggum
yfir pari.
Þetta er í annað skiptið á tíma-
bilinu sem Ólafía kemst í gegnum
niðurskurðinn á Symetra-móta-
röðinni og jafnframt besti árangur
hennar á mótaröðinni á yfirstand-
andi keppnistímabili.
Ólafía Þórunn er að búa sig undir
sitt sjöunda risamót á ferlinum
þegar hún leikur á Opna banda-
ríska meistaramótinu sem fram
fer í Charleston í Suður-Karólínu á
austurströnd Bandaríkjanna, dag-
ana 30. maí til 2. júní. – hó
Fínir hringir hjá
Ólafíu Þórunni
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir stóð
sig vel á móti í Bandaríkjunum.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-1
5
7
C
2
2
F
A
-1
4
4
0
2
2
F
A
-1
3
0
4
2
2
F
A
-1
1
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K