Fréttablaðið - 13.05.2019, Side 2
Veður
Vaxandi austanátt, 10-18 m/s og
rigning sunnantil í kvöld. Hægari
vindur og þurrt norðan heiða. Hiti
3 til 9 stig. S- A 8-15 og rigning í
fyrramálið. SJÁ SÍÐU 16
Sviðsljós fjölmiðla beindist að Hatara
Liðsmenn Hatara gengu eftir appelsínugula dreglinum í Tel Avív í gær. Sagði Matthías að Hatari vildi helst vinna með íslenskum hönnuðum þegar
talið barst að fötum hópsins. Sagði kynnirinn í Ísrael að börn og vegan fólk ætti kannski að líta undan þegar Hatari kom í mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓLFUR
– Frábær út í kaffið
DÓMSMÁL Karlmaður á sjötugs-
aldri var í Héraðsdómi Norður-
lands eystra dæmdur fyrir að hafa
geymt haglabyssu sína og hagla-
skot í framsæti á bifreið fyrir utan
verslun Nettó á Húsavík í október
síðastliðnum. Einnig gleymdi hann
að læsa bifreiðinni og skildi lyklana
eftir í bílnum. Haglabyssan var þó
ekki gerð upptæk.
Maðurinn heitir Árni Logi Sigur-
björnsson og er meindýraeyðir í
Norðurþingi. Hann hefur nokkrum
sinnum átt í útistöðum við lögregl-
una síðustu árin. Eitt sinn fannst í
íbúðarhúsnæði hans frystikista sem
hafði að geyma hræ af fálkum, bran-
duglum og smyrlum. Við rannsókn
lögreglu kom í ljós að allir fuglarnir
höfðu verið drepnir með hagla-
byssu. Árni Logi sagði að hann hefði
fundið frystikistuna á ruslahaugum
og dröslað henni heim.
Einnig var hann kærður og
dæmdur í tveggja mánaða óskil-
orðsbundið fangelsi á síðasta ára-
tug fyrir að hafa verið með vopna-
búr sitt á glámbekk heima fyrir.
Brotist var inn til hans og miklu
magni skotvopna stolið. Vegna inn-
brotsins fékk hann á sig ákæru fyrir
vanrækslu og að geyma ekki vopnin
á sómasamlegan hátt.
„Ég reyndi nú í tvígang að fresta
málinu því lögfræðingur minn
er að skoða þetta mál,“ segir Árni
Logi við Fréttablaðið en hann hafði
ekki heyrt af málalyktum þegar
blaðamaður náði í hann. „En það er
greinilegt að fulltrúi lögreglunnar
vildi ekkert tala við mig.“
Hann segir þetta ekki hafa verið
hættulegt fyrir utan verslun Nettó.
„Nei, það er bara þannig að ég
skaust inn í búðina til að skoða ein-
hver skordýr þarna og gleymdi bara
að læsa bílnum. Byssan er alltaf
nálægt mér og ég er alla daga ársins
með vopn á mér. Hins vegar er það
ekki rétt að haglaskot hafi verið í
byssunni eða framsætinu. Og þetta
vopn var svo sem skaðlaust þarna
óhlaðið,“ segir Árni.
sveinn@frettabladid.is
Með haglabyssuna og
skotfæri í ólæstum bíl
Meindýraeyðir í Norðurþingi hefur verið dæmdur til greiðslu sektar fyrir að
hafa farið inn í Nettó á Húsavík og skilið bílinn eftir ólæstan en í framsætinu
lá haglabyssa auk skotfæra. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin.
M aðurinn hefur áður komist í kast við lögin vegna slæmrar meðferðar á skotvopnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Byssan er alltaf
nálægt mér og ég er
alla daga ársins með vopn á
mér.
Árni Logi Sigurbjörnsson,
meindýraeyðir í Norðurþingi
ALÞINGI Sérstök umræða um kjara-
mál fer fram á Alþingi í dag. Hefst
umræðan klukkan 15.45. Það er
Logi Einarsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, sem er málshefjandi en
til andsvara verður Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra.
Kjaramálin hafa verið afar fyrir-
ferðarmikil í vetur en í byrjun apríl
voru samningar á almennum vinnu-
markaði undirritaðir. Lífskjara-
samningurinn sem stjórnvöld höfðu
aðkomu að var svo samþykktur
með miklum meirihluta greiddra
atkvæða, bæði meðal atvinnurek-
enda og viðkomandi stéttarfélaga.
Samflot iðnaðarmanna náði svo
samningum við Samtök atvinnu-
lífsins í byrjun þessa mánaðar. Þar
með hefur verið samið fyrir stærstan
hluta almenna markaðarins.
Kjaraviðræður opinberra starfs-
manna og viðsemjenda þeirra
standa hins vegar enn yfir. – sar
Fara yfir stöðu
kjaramála á
Alþingi í dag
VEÐUR Það stefnir í fínasta maí-
veður í vikunni eftir nokkuð napra
daga að undanförnu.
Að sögn Óla Þórs Árnasonar, veð-
urfræðings hjá Veðurstofu Íslands,
munu skilin sem eru nú á leið yfir
landið reka kalda loftið endanlega
á brott en þau verða komin alveg
norður fyrir um miðjan dag.
„Maí er alla jafna svolítið kaldur
mánuður því það er algengt að
leifarnar af vetrarkuldanum rati
hingað með norðanáttinni. Þann-
ig að það er ágætt að hún stóð ekki
lengur en hún gerði núna,“ segir Óli
Þór.
Núna taki við suðlægar áttir sem
standi allavega út vikuna. Þessu
munu fylgja töluverð hlýindi, sér-
staklega fyrir norðan.
„Eins og eðlilega vill verða í suð-
austan- og sunnanáttum eru hlý-
indin mest fyrir norðan. Þar verður
hitinn yfir daginn mjög víða svona
12 til 18 stig. Á meðan verða þetta
kannski vona 9 til 12 stig á sunnan-
verðu landinu,“ segir Óli Þór.
Hann segir að nú taki við mun
úrkomuminna veður þó að það
verði alls ekki þurrt á sunnan- og
vestanverðu landinu.
„Hins vegar þá er vel hlýtt loft
yfir öllu landinu en það verður mun
hlýrra fyrir norðan. Þetta er bara
mjög flott maíveður,“ segir Óli Þór.
Samkvæmt vef Veðurstofunnar
er besta veðrinu spáð á morgun,
þriðjudag, og þá sérstaklega á
Norður- og Austurlandi. – sar
Flott maíveður
verður í vikunni
Vel mun viðra á Akureyringa í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-0
6
A
C
2
2
F
A
-0
5
7
0
2
2
F
A
-0
4
3
4
2
2
F
A
-0
2
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K