Fréttablaðið - 13.05.2019, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR
FIAT DUCATO
Verð frá 4.024.194 án vsk.
4.990.000 m/vsk.
FIAT TALENTO L2H1
Verð frá 3.298.387 án vsk.
4.090.000 m/vsk.
FIAT DOBLO
Verð frá 2.225.806 án vsk.
2.760.000 m/vsk.
FIAT FIORINO
Verð frá 1.854.032 án vsk.
2.299.000 m/vsk.
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT • ÞVERHOLTI 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 • WWW.FIATPROFESSIONAL.IS WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LÖGREGLUMÁL Umdeildur ráðuneyt-
isstarfsmaður hefur verið skipaður
formaður nefndar um eftirlit með
störfum lögreglu.
Háttsemi starfsmannsins, Skúla
Þórs Gunnsteinssonar, hefur tví-
vegis orðið tilefni fjölmiðlaumfjöll-
unar, í báðum tilvikum vegna óvið-
eigandi ummæla í tölvupóstum sem
hann sendi úr netfangi sínu í innan-
ríkisráðuneytinu. Fyrst vegna konu
sem stóð í sambúðarslitum við per-
sónulegan vin Skúla Þórs og tveimur
árum síðar um Afstöðu, hagsmuna-
félag fanga, og starfsmenn umboðs-
manns Alþingis.
„Afstaða og ráðuneyti dómsmála
áttu mjög hreinskilið og afdráttar-
laust samtal um Skúla Þór Gunn-
steinsson eftir hans skelfilega
særandi orð um talsmenn fanga. Í
því samtali sannfærði ráðuneytis-
stjórinn okkur í Afstöðu um að Skúli
fengi ekki að starfa við málaflokk-
inn að nýju,“ segir Guðmundur Ingi
Þóroddsson, formaður Afstöðu, sem
kom af fjöllum þegar blaðamaður
bar undir hann skipun Skúla Þórs.
Árið 2016 lét Skúli, sem þá fór með
fangelsismál í innanríkisráðuneyt-
inu, niðrandi orð falla um Afstöðu,
félag fanga, í tölvupósti til skrif-
stofustjóra í ráðuneytinu. Formaður
Afstöðu fékk afrit af póstinum af
misgáningi. Í sama tölvupósti lét
Skúli einnig óviðeigandi orð falla
um starfsmenn umboðsmanns
Alþingis en erindi tölvupóstsins var
fyrirhuguð svör ráðuneytisins við
fyrirspurn umboðsmanns í máli sem
varðaði málefni fanga.
Í kjölfarið var Skúli færður af því
sviði sem hann hafði starfað á í inn-
anríkisráðuneytinu og yfir á sveitar-
stjórnarsvið ráðuneytisins. Eftir að
innanríkisráðuneytinu var skipt
upp varð Skúli starfsmaður sveitar-
stjórnarráðuneytisins, á skrifstofu
rafrænna samskipta.
Aðspurður segir Guðmundur Ingi
að þrátt fyrir að Skúli Þór sé ekki
beinlínis að móta stefnu í málefnum
fanga lengur sé hann að skapa for-
dæmi fyrir lögreglu í starfi og aug-
ljóslega þannig að hafa áhrif innan
réttarvörslukerfisins þar sem hann
hefur þegar fyrirgert trausti sínu.
„Þegar kemur að óháðum vörðum í
kerfi okkar, þá ber að finna þá sem
flekklausir eru,“ segir Guðmundur
Ingi.
Árið 2014 kvartaði kona undan
Skúla Þór við innanríkisráðuneytið
vegna orða sem hann lét falla um
hana í tölvupósti til starfsmanns
Barnaverndarstofu. Efni tölvupósts-
ins var sambúðarslit konunnar við
persónulegan vin Skúla. Lét hann
ýmis niðrandi orð falla um konuna
og meinta persónubresti hennar í
póstinum sem var skrifaður úr net-
fangi ráðuneytisins. Ráðuneytið bað
konuna afsökunar.
Formaður nefndar um eftirlit
með störfum lögreglu er skipaður af
dómsmálaráðherra til fjögurra ára.
Í desember síðastliðnum óskaði
þáverandi formaður nefndarinnar,
Trausti Fannar Valsson, lausnar
frá formennsku, vegna anna í aðal-
starfi sínu, en hann er dósent við
lagadeild Háskóla Íslands. Sigríður
Á. Andersen, þáverandi dómsmála-
ráðherra, skipaði Skúla Þór formann
nefndarinnar í hans stað.
Í svari dómsmálaráðuneytisins
við fyrirspurn blaðsins segir að
ráðuneytinu sé kunnugt um fram-
angreind atvik. „Það er mat ráðu-
neytisins að Skúli Þór hafi dregið
lærdóm af því sem vísað er til í fyrir-
spurninni og það komi ekki í veg
fyrir að hann taki að sér verkefni í
framtíðinni.“ arib@frettabladid.is
Fordæmir skipun formanns
nefndar um lögreglueftirlit
Umdeildur ráðuneytisstarfsmaður gerður að formanni nefndar um eftirlit með lögreglu. Viðhafði niðr-
andi orð um borgara, félagasamtök og starfsmenn umboðsmanns Alþingis. Maðurinn var færður til í
starfi vegna klögumála árið 2016. Dómsmálaráðuneytið segist bera fullt traust til nýs formanns.
Nefnd um eftirlit með lögreglu var sett á laggirnar 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Úr tölvupósti Skúla til
skrifstofustjóra 2016
„Ég er orðinn býsna þreyttur
á þessu máli. Mest langar mig
til að fá starfsmenn umboðs-
manns hingað, hrista þá til og
láta þá hanga :p og benda þeim
á að þeir sem eru að kvarta, þ.e.
Afstaða, eru þeir sem hafa verið
að berja á öðrum föngum og
eru eðlilega ósáttir við þessa
reglurnar.“
Hlutverk nefndar um
eftirlit með lögreglu:
• Að taka við kæru á hendur
starfsmanni lögreglu fyrir
ætlað refsivert brot við fram-
kvæmd starfa hans.
• Að taka við kvörtun vegna
starfsaðferða lögreglu eða
framkomu starfsmanns lög-
reglu sem fer með lögreglu-
vald.
• Að taka til athugunar mál
þegar maður lætur lífið eða
verður fyrir stórfelldu líkams-
tjóni í tengslum við störf lög-
reglu, óháð því hvort grunur
er um refsivert brot.
• Að taka atvik og verklag lög-
reglu til skoðunar að eigin
frumkvæði þegar nefndin
telur tilefni til.
REYKJAVÍK Skólahaldi hefur verið
aflýst í Seljaskóla í dag vegna elds
sem kom upp í þaki skólahúss-
ins aðfaranótt sunnudags. Stóð
slökkvistarf fram yfir hádegi í gær.
Magnús Þór Jónsson skólastjóri
segir að nú sé leitað leiða til þess
að hægt sé að ljúka skólaárinu með
sem minnstri röskun.
„Þetta er gríðarlegt tjón. Á hús-
inu sem kviknaði í eru mjög miklar
skemmdir sem við erum að reyna að
meta en við þurfum að fara nánar í
það,“ segir hann.
Magnús segir þó að húsið sé ekki
gjörónýtt. „Sem betur fer virðist
ytra byrðið að mestu leyti standa
en það er of boðslegt vatnstjón og
innanstokksmunir nær allir ónýtir.“
Aðspurður um eldsupptök segist
hann ekki vita hver þau voru. „Lög-
reglan var á vettvangi áðan og það
er unnið að því að fá skýrari mynd,
þetta liggur ekki alveg ljóst fyrir,“
segir Magnús.
Stutt er síðan eldur kom síðast
upp í þaki Seljaskóla, en í byrjun
mars kviknaði þar eldur sem þó
Gríðarlegt tjón í bruna í Seljaskóla aðfaranótt sunnudags
Skólahald í Seljaskóla fellur niður í dag vegna brunans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
olli ekki miklu tjóni. „Þetta er eldur
í þaki og þar er loftræstikerfið og
fleira. Við treystum því bara að það
verði rýnt í alla koppa og að allir
krókar og kimar verði skoðaðir svo
að það sé hægt að fá alvöru úttekt á
því hvað sé eiginlega í gangi,“ segir
Magnús.
Hann ítrekar þó að öryggi skóla-
barna sé ætíð í fyrirrúmi. „Hags-
munir barnanna eru alltaf settir
í algjört fyrirrúm, en það er alveg
ljóst að það gengur ekki að búa við
þetta svona.“ – jt
ALÞINGI Atkvæði verða greidd á
Alþingi í dag um frumvarp Svan-
dísar Svavarsdóttur heilbrigðis-
ráðherra um þungunarrof. Miklar
deilur hafa staðið um það ákvæði
frumvarpsins að heimila þungunar-
rof fram á 22. viku meðgöngu óháð
því hvaða ástæður liggja að baki.
Við þriðju umræðu málsins í dag
verða meðal annars greidd atkvæði
um breytingartillögur, annars vegar
frá Páli Magnússyni, þingmanni
Sjálfstæðisflokksins, og hins vegar
frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur,
þingmanni Miðflokksins.
Leggur Páll til að þungunarrof
verði heimilað fram á 20. viku en
Anna Kolbrún leggur til að miðað
verði við 18. viku meðgöngu. Þá
hafa þingmenn Flokks fólksins lýst
yfir mikilli andstöðu við efni frum-
varpsins. – sar
Greiða atkvæði
um þungunarrof
Atkvæðagreiðsla fer fram um frum-
varp Svandísar Svavarsdóttur í dag.
1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-1
A
6
C
2
2
F
A
-1
9
3
0
2
2
F
A
-1
7
F
4
2
2
F
A
-1
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K