Fréttablaðið - 13.05.2019, Síða 6
NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 564 2488 OG
skarpur@simnet.is
Veslun ásamt skerpingarverkstæði, sem þjónustað
hefur byggingariðnaðinn í 36 ár, er nú til sölu
Reksturinn er tvískiptur, Innflutningur, sala á sagarblöðum,
fræsitönnum og öðrum verkfærum fyrir tré- og málmiðnaðinn
annars vegar og hins vegar skerping á sagarblöðum og ýmsum
bitverkfærum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Fyrirtækið hefur ávallt verið leiðandi á sínu sviði og hefur
yfir að ráða fullkomnum tölvustýrðum skerpingarvélum
fyrir flestar gerðir sagarblaða og verkfæra.
Velta fyrirtækisins var um 40 miljónir á síðasta ári og
felast talsverðir stækkunarmöguleikar í auknum innflutningi.
Allur núverandi rekstur er til sölu ásamt vélum, vörubirgðum
og viðskiptasamböndum. Í dag starfa tveir starfsmenn
hjá fyrirtækinu.
VEGNA SÉRSTAKRA
AÐSTÆÐNA ER NÚ
TIL SÖLU
VERSLUNAR- OG
ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
kvika.is
Kvika gefur út sex mánaða víxla
Kvika banki hf. hefur geð út sex mánaða víxla að árhæð
2.000 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í víxlaokknum
KVB 19 0919 og er heildarheimild okksins 2.000 milljónir
króna. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar
um töku víxlanna til viðskipta þann 10. maí 2019, og sótt
hefur verið um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.
Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá
staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25,
105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku,
www.kvika.is/vixlar
Reykjavík, 10. maí 2019
Í R AN Hershöfðing i í íransk a
Byltingarvarðliðinu segir að vera
bandarískra hersveita á Persaf lóa
sé aðeins sálfræðihernaður og
hluti áætlunar til að hræða stjórn
völd í Teheran. Breski miðilinn The
Guardian greinir frá því að hers
höfðinginn Hossein Salami hafi
sagt írönskum þingmönnum þetta
á lokuðum fundi.
Þá er haft eftir Salami að hann
telji að Bandaríkin búi ekki yfir
nægilegum herstyrk til að fara í
stríð við Íran.
Amirali Hajizadeh, yfirmaður í
f lugher Byltingarvarðliðsins, segir
að bandaríska f lugmóðurskipið
USS Abraham Lincoln, sem er með
sex þúsund hermenn og rúmlega
40 sprengjuþotur, sé núna skot
mark en ekki ógn eins og áður. Ef
Bandaríkjamenn myndu gera sig
líklega yrðu slíku svarað með árás.
Aukin spenna hefur verið í sam
skiptum ríkjanna frá því að Íranar
ákváðu í síðustu viku að draga
sig að hluta til út úr alþjóðlegu
samkomulagi um kjarnorkuvopn
landsins frá 2015. Donald Trump
ákvað á síðasta ári að draga Banda
ríkin einhliða út úr samkomulag
inu og hefja refsiaðgerðir gangvart
Íran að nýju.
Forseti Írans, Hassan Rouhani,
segir að landið standi nú frammi
fyrir alþjóðlegum þvingunarað
gerðum af áður óþekktri stærðar
gráðu. Forsetinn hefur kallað eftir
samstöðu innanlands til að mæta
þrýstingi alþjóðsamfélagsins. – sar
Segja bandarískar hersveitir enga ógn
Spenna hefur verið í samskiptum Írans og Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Haft er eftir Salami að
hann telji að Bandaríkin búi
ekki yfir nægilegum her-
styrk til að fara í stríð við
Íran.
MENNING Stjórn Félags íslenskra
leikara (FÍL) hefur verið falið að
senda bréf til Þjóðleikhúsráðs og til
ráðherra menningarmála þar sem
kvartað er yfir aðgerðaleysi ráð
herrans og ráðsins vegna athuga
semda sem borist hafa vegna
hegðunar Ara Matthíassonar þjóð
leikhússtjóra. Kvartanir hafi borist
ráðinu og ráðherranum vegna sam
skipta leikhússtjórans við félags
menn FÍL en ekkert hafi verið að
gert. Þetta var niðurstaða opins
fundar FÍL á fimmtudag. Fundur
inn ákvað einnig að krefjast þess að
Þjóðleikhúsráð fái utanaðkomandi
sérfræðing í vinnuvernd og mann
auðsmálum til að fara ofan í kjölinn
á samskiptum þjóðleikhússtjóra við
nokkurn fjölda listamanna sem
starfað hafa fyrir hann.
Formlegar kvartanir hafa borist
vegna leikhússtjórans, meðal ann
ars frá FÍL. Kvartanirnar eru mis
alvarlegar en lúta meðal annars
að samningsbrotum, hegðun og
erfiðum samskiptum og spanna
nokkurra ára tímabil.
Þá hafa formlegar kvartanir
einnig ratað á borð ráðherra mála
flokksins, Lilju Alfreðsdóttur, sem
er yfirmaður þjóðleikhússtjóra.
Þjóðleikhúsráð er stjórnarnefnd
Þjóðleikhússins og allar meiriháttar
ákvarðanir um leikhúsreksturinn
eru bornar undir ráðið. Það vinnur
með þjóðleikhússtjóra að lang
tímaáætlun um starfsemina. Árleg
starfs og fjárhagsáætlun skal lögð
fyrir ráðið sem hefur eftirlit með
framkvæmd hennar.
Fréttablaðið hefur rætt við fag
fólk í stétt listamanna sem ber
saman um að erfið staða sé komin
upp í Þjóðleikhúsinu. Menntamála
ráðuneytið auglýsti á dögunum
starf leikhússtjóra, en ráðið er í
fimm ár í senn. Skipun Ara rennur
út 1. janúar 2020 og samkvæmt
lögum skal ætíð auglýsa embættið
laust til umsóknar í lok hvers skip
unartímabils.
Stuttu fyrir páska sendi lögmaður
FÍL bréf á Þjóðleikhúsráð og þjóð
leikhússtjóra þar sem kvartanir
sem borist hafa vegna hans voru
teknar saman. Þá sagði í bréfinu að
eðlilegt væri að taka tillit til þessara
atriða þegar ráðið væri í stöðu þjóð
leikhússtjóra, til jafns við það sem
vel er gert í leikhúsinu, en rekstur
hússins hefur til að mynda gengið
vel með Ara við stjórnvölinn. Bréfið
var síðan tekið fyrir á Þjóðleikhús
ráðsfundi á föstudaginn fyrir rúmri
viku, þann 3. maí.
Leikarar í Þjóðleikhúsinu fund
uðu vegna málsins síðastliðinn
þriðjudag á nokkuð tilfinninga
ríkum fundi. Sumir leikarar könn
uðust við lýsingar á framkomu Ara,
en aðrir ekki. FÍL fundaði á fimmtu
dag, meðal annars til að ræða stöð
una í leikhúsinu, líkt og áður kom
fram. olof@frettabladid.is
Viðkvæmt ástand
innan Þjóðleikhússins
Stjórn FÍL hyggst senda menningarmálaráðherra bréf til að kvarta yfir hvern-
ig tekið hefur verið á athugasemdum vegna framkomu þjóðleikhússtjóra.
Leikarar funduðu vegna málsins á tilfinningaríkum fundi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ari Matthíasson,
þjóðleikhússtjóri
1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-2
E
2
C
2
2
F
A
-2
C
F
0
2
2
F
A
-2
B
B
4
2
2
F
A
-2
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K