Fréttablaðið - 13.05.2019, Page 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Óskin um að
Ísland gangi
úr NATO er
óraunhæf,
enda draum
sýn.
Um alda
mótin fylgdi
hest knún
um sam
göngum
umhverfis
vandi. Í dag
fylgir
vél knún um
samgöngum
umhverfis
vandi.
Save 50-70% on Dental Treatment
in Hungary
your specialist in dental tourism
Contact us now!
0036 70 942 9573
info@fedaszdental.hu
Dentistry - Dental Laboratory - Hotel
on-site!
Fedasz Dental Hungary
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í sjónvarpsviðtali hjá BBC á dögunum í þættinum Hardtalk. Hún var mælsk, rökföst, skynsöm og jarðbundin og með sterka útgeislun. Einmitt þannig eiga forsætisráðherrar helst að vera.
Í viðtalinu nefndi Katrín að Ísland væri land án
hers. Þetta veit íslenska þjóðin en er þó yfirleitt ekk-
ert sérstaklega að leiða hugann að því. Henni þykir
bæði sjálfsagt og eðlilegt að eiga ekki her. Langflestir
landsmenn gera sér þó um leið grein fyrir mikilvægi
þess að vera í varnarbandalaginu NATO. Hér á árum
áður var sungið af krafti gegn þessu bandalagi: Ísland
úr NATO, en í dag á slíkt kvak lítinn hljómgrunn
meðal landsmanna. Innan Vinstri grænna kyrja
menn þó enn þennan söng sem hljómar eins og slæm
tímaskekkja.
Jafn skelegg og skörp og Katrín Jakobsdóttir er þá
fór ekki hjá því að hún lenti í nokkrum vandræðum
með að útskýra fyrir spyrjandanum í Hardtalk
afstöðu Vinstri grænna til NATO. Andstaða flokksins
við þetta mikilvæga varnarbandalag er svo mikil
tímaskekkja að það er nánast ómögulegt að útskýra
hana þannig að hún hljómi skynsamlega. Forsætis-
ráðherra reyndi það en tókst ekki. Málstaðurinn sem
hún reyndi að verja er svo laus við allt raunsæi að
hann getur ekki hljómað eins og raunverulegur val-
kostur fyrir litla þjóð í norðri.
Það er sannarlega rétt að gleðjast yfir því að Ísland
skuli vera herlaust land því slíkt er ekki sjálfgefið
í hættulegum heimi. Um leið er brýn nauðsyn að
Ísland sé hluti af varnarbandalaginu NATO. Óskin
um að Ísland gangi úr NATO er óraunhæf, enda
draumsýn og yrði hún einn daginn að raunveruleika
byði það alls kyns hættum heim.
Stjórnvöldum ber skylda til að tryggja öryggi og
varnir lands síns og þjóðar sinnar. Lítil þjóð sem vill
ekki eiga her verður að eiga samvinnu við önnur ríki
sem eru henni velviljug. Ísland á því heima í NATO.
Hugmyndir Vinstri grænna um að kveðja banda-
lagið byggja á mjög svo rómantískri draumsýn um
heim þar sem allir eru vinir og ekkert er að. Hver sá
sem horfir á sjónvarpsfréttatíma veit að heimurinn
er ekki þannig. Þetta ættu Vinstri græn að gera sér
ljóst. Samt eru flokksmenn enn að daðra við úrsögn
úr NATO – stefnumál sem engin ríkisstjórn á Íslandi
mun nokkru sinni samþykkja.
Í stjórnarandstöðu er úrsögn úr NATO draumóra-
baráttumál vinstri flokks sem vill skapa herlausan
heim. Þegar flokkur sem hefur þetta á stefnuskrá
sinni kemst í ríkisstjórn verður þessi stefna beinlínis
vandræðaleg, eins og kemur berlega í ljós þegar for-
maður þessa flokks og forsætisráðherra landsins þarf
að svara fyrir hana erlendis.
Sennilega er til of mikils mælst að Vinstri græn sýni
raunsæi og kveðji þetta óskynsamlega stefnumál
sitt. Þau vilja örugglega kyrja áfram á flokksfundum:
Ísland úr NATO, og það svo sem flestum að meina-
lausu. Í ríkisstjórnarsamstarfi hljómar slíkt tal hins
vegar eins og óráðshjal. Enginn á að gera sér betur
grein fyrir því en forsætisráðherra landsins.
Tímaskekkja
Í lok nítjándu aldar blasti óvenjulegur umhverfisvandi við stórborgum heims. Tugþúsundir dráttarklára sáu um fólksflutninga, en þeim fylgdi ótæpilegt magn af
hrossaskít. Dagblaðið Times birti dómsdagsskáp. Innan
50 ára yrðu götur Lundúna þaktar nærri þriggja metra
lagi af hrossaskít. Til þess kom þó aldrei. Árið 1908 kom
til sögunnar fyrsta fjöldaframleidda bifreiðin. Nýsköpun
leysti af hólmi dráttarklárinn, ferðamynstur breyttust og
þriggja metra skítur þrengdi aldrei að strætum Lundúna.
Baráttan við loftslagsbreytingar af mannavöldum er
eitt stærsta viðfangsefni samtímans. Umhverfisstofnun
Sameinuðu þjóðanna telur 70-90% nauðsynlegra
aðgerða í loftslagsmálum bundin sveitarstjórnarstiginu.
Hér gegna sveitarstjórnir því lykilhlutverki.
Reykjavíkurborg stefnir að kolefnishlutleysi fyrir árið
2040. Umhverfisvænni samgöngur verða þungavigtar-
þáttur á þeirri vegferð. Um aldamótin fylgdi hestknún-
um samgöngum umhverfisvandi. Í dag fylgir vélknúnum
samgöngum umhverfisvandi. Sem fyrr liggur lausnin í
nýsköpun – orkuskipti og almenningssamgöngur munu
gegna lykilhlutverki í átt að kolefnishlutleysi. Hér þarf
borgin að tryggja frjóan jarðveg fyrir tækni og nýjar
lausnir.
Í vikunni sem leið samþykkti borgarráð helmings-
fækkun bensínstöðva í borgarlandinu, enda fádæma
fjöldi stöðva í borginni miðað við íbúatölu. Samhljómur
var um þá tillögu Sjálfstæðismanna að ná þessu metn-
aðarfulla markmiði fyrir 2025. Það er jákvætt skref í rétta
átt.
Reykjavíkurborg er í kjöraðstöðu til að vera leiðandi
í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Aðgangur að
hreinni íslenskri orku ætti að tryggja okkur forystu í
orkuskiptum. Smæðin ætti að tryggja okkur forystu í
kolefnishlutleysi. Borgin getur gert miklu betur.
Mýmargir telja aukna áherslu á náttúruvernd ógn við
atvinnulífið. Nýsköpun, atvinnuuppbygging og náttúru-
vernd eiga þó margvíslega samleið. Við eigum að skapa
farveg fyrir þekkingu og hugvit – fyrir nýsköpun og
lausnir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Í því felast
tækifæri til atvinnuuppbyggingar og verðmætasköp-
unar – en ekki síst tækifæri til náttúruverndar.
Nýsköpun í náttúruvernd
Hildur
Björnsdóttir
borgarfulltrúi
Allt er pólitík
Beðið hafði verið með nokkurri
eftirvæntingu eftir því hvernig
liðsmenn Hatara myndu nýta
sér sviðsljósið sem beint er að
þeim í Tel Avív. Sérfræðingar
um keppnina hafa sagt að Hatari
hafi ekki bara dansað á línunni
heldur traðkað á henni með
framkomu sinni og málflutningi.
Í viðtali við norræna fjölmiðla-
menn upplýstu forsprakkar
Hatara að þeir hefðu rætt við Jon
Ola Sand, hinn geðþekka norska
framkvæmdastjóra Eurovision,
sem hefði sagt þeim að þeir yrðu
að hafa sig hæga. Í framhaldinu
neituðu þeir að svara spurning-
um um veðrið og uppáhaldsmat
sinn af ótta við að svörin yrðu
túlkuð pólitískt. Svarið kom
spyrlinum spánskt fyrir sjónir
en á Íslandi vita menn að maður
grínast hvorki með veðrið né
mataræðið.
Guð styður ekki Liverpool
Stuðningsmenn Liverpool voru
ekki bænheyrðir í gær þrátt
fyrir að boðað hefði verið til
sérstakrar messu til að reyna
að koma Englandsmeistara-
titlinum í hús. Allt kom fyrir
ekki og Manchester City fagnaði
titlinum eftir sigur á Brighton.
Tilraun prestsins í Seljakirkju
var virðingarverð en spyrja má
hvort það hefði ekki átt að vera
löngu ljóst að almættið heldur
greinilega ekki með Liverpool.
Eyðimerkurgangan hefði þá bara
staðið í sjö ár en ekki tæplega 30.
sighvatur@frettabladid.is
1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-2
9
3
C
2
2
F
A
-2
8
0
0
2
2
F
A
-2
6
C
4
2
2
F
A
-2
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K