Fréttablaðið - 13.05.2019, Page 9
Á öllum sviðum samfélags-
ins þarf að grípa til aðgerða.
Ekkert eitt leysir málið.
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust™
Nú hefur breska þingið og líka Landvernd lýst yfir neyðarástandi í umhverfis-
málum. Ég held að það sé ekkert
annað að gera en að íslensk stjórn-
völd, þing eða ríkisstjórn, geri slíkt
hið sama. Á næstu tíu árum mun
koma í ljós hvort hægt verður að
beina jörðinni af braut ofhitnunar
eða ekki. Ef það tekst ekki, þá
getum við alveg hætt að bursta
tennurnar. Ekkert mun skipta
máli. Öfgafull veður, skortur,
örbirgð, almennt böl, útdauðar
dýrategundir og brátt útdautt
mannkyn verður leiðarendinn ef
það mistekst að leysa þessa úrslita-
þraut.
Ég tók próf á vefsíðu um helgina.
Þar átti ég að forgangsraða þeim
aðgerðum sem kæmu sér best fyrir
umhverfið. Þetta var soldið lúmskt
próf. Margt hljómaði sennilega og
allt skipti máli, en það er skemmst
frá því að segja að ég kom fer-
lega illa út úr þessu. Vissi ekki
mikið. Ég vissi til dæmis ekki hvað
ísskápar og loftkælingar heimsins
hafa ótrúlega slæm áhrif á and-
rúmsloftið. Það þarf að skipta
Jæja
þeim öllum út fyrir umhverfis-
vænni lausnir, sem munu vera á
leiðinni á markað. Mig grunaði
að minni sóun matvæla skipti
máli, en ekki að hún væri í þriðja
sæti yfir áhrifamestu aðgerðirnar
samkvæmt heimasíðunni draw-
down. org. Að minnka kjötát er
á topp fimm. Að fleiri eldi mat á
góðri eldavél, en ekki til dæmis
yfir opnum eldi, er í 21. sæti. Að
raf bílavæða heiminn er í 26. sæti.
Umhverfisvænni flugvélar eru í
46. sæti. Að leggja hjólareiðastíga í
borgum er í 59. sæti.
Hvað getum við gert?
Staðreyndin er þessi: Á öllum
sviðum samfélagsins þarf að grípa
til aðgerða. Ekkert eitt leysir málið.
Mér sýnist hins vegar að núna,
þegar komið er að því að segja að
íslenskum sið hið góða og forn-
kveðna „jæja“ og fara að bretta
upp ermar í þessum málum, þá
verði þetta að koma fyrst: Að fræða
okkur öll. Hvað getum við gert?
Það þarf að segja okkur það.
Það sem vakti athygli mína og
jók mér bjartsýni við það að skoða
listann á heimasíðunni yfir nauð-
synlegar aðgerðir og forgangs-
röðun þeirra, var hversu viðráðan-
legt og í raun sjálfsagt og gott hvert
verkefni er fyrir sig. Hver vill sóa
matvælum? Það er sjálfsagt að
minnka slíkt. Hver vill eiga ísskáp
sem spúir gróðurhúsalofttegund-
um? Hver vill ekki umhverfisvæn-
an bíl? Engin aðgerð á þessum lista
var þess eðlis að maður hugsaði:
„Ó, nei! Ég vil frekar deyja út en að
gera þetta.“ Sem sagt: Ef ég — sem
mikið kjötmenni til langs tíma og
einlægur aðdáandi góðrar nauta-
steikur — þarf að binda nauta-
kjötsát við afmælið mitt hér eftir,
nú þá það. Svoleiðis verður það að
vera. Ég hef þegar hafið heima-
tilbúna hugræna atferlismeðferð
til þess að sannfæra sjálfan mig
um það að spergilkál, sérstaklega
þegar það er steikt upp úr smjöri
og salti (á góðri eldavél), sé mun
ljúffengara.
Ekkert skiptir meira máli
Jæja, segi ég. Nú þarf að fara að
gera eitthvað. Það er komið að
þessu. Dæsandi þurfum við öll að
standa upp frá eldhúsborðinu og
ganga til verka, eins og Íslendingar
hafa gert um aldir. Út að vinna.
Öll saman. Baráttan við ofhitnun
jarðar er langstærsta viðfangsefni
samtímans. Allt annað bliknar.
Það er vissulega gott að það er búið
að gera kjarasamninga og það er
rosaspennandi að bankarnir séu
búnir að opna fyrir það að maður
geti borgað með símanum sínum
og það væri klárlega gaman að sjá
Hatara komast áfram á morgun, en
allt þetta er hjóm í samhengi við
mikilvægi þess að ganga hraust-
lega til verka í umhverfismálum.
Um leið og almenningur er
fræddur svo um munar, þarf einn-
ig að leggja fram pakka á þingi.
Lög þarf að setja. Það er augljóst
til dæmis að við ætlum ekki að
styðja kjötframleiðslu um marga
milljarða á ári í veröld þar sem
verður lífsnauðsynlega að draga úr
kjöt áti. Það er augljóst að þeir sem
keyra bensínháka verða að hætta
því. Umhverfisskattar á óum-
hverfisvæna framleiðslu, neyslu
og þjónustu, eins og stóriðju, f lug-
samgöngur og óumhverfisvænan
landbúnað verða að koma til. Og
þeir skattar verða að renna beint í
kolefnisjöfnun þessara athafna og/
eða umskiptingu yfir í aðra fram-
leiðslu eða umhverfisvænni tækni.
Það er líka augljóst að við þurfum
að taka fullan og hugheilan þátt
í öllu alþjóðlegu samstarfi á
öllum sviðum til þess að kljást við
þennan vanda. Og við þurfum að
taka meira strætó. Eða hjóla. Eða
ganga.
Í lögum þarf eflaust að banna
sumt, hvetja til annars. Neyðar-
ástandið verður að birtast okkur
svona: Önnur sjónarmið en
umhverfissjónarmið fara í annað
sæti. Undantekningalaust.
Þangað til við erum búin að
redda þessu.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 3 . M A Í 2 0 1 9
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
A
-1
A
6
C
2
2
F
A
-1
9
3
0
2
2
F
A
-1
7
F
4
2
2
F
A
-1
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K