Fréttablaðið - 13.05.2019, Qupperneq 12
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 38. umferðar 2018-19
Brigton - Man. City 1-4
1-0 Glenn Murray (27.), 1-1 Sergio Agüero
(28.), 1-2 Aymeric Laporte (38.), 1-3 Riyad
Mahrez (63.), Ilkay Gündogan (72.).
Liverpool - Wolves 2-0
1-0 Sadio Mané (17.), 2-0 Sadio Mané (71.).
Tottenham - Everton 2-2
1-0 Eric Dier (3.), 1-1 Theo Walcott (69.), 1-2
Cenk Tosun (72.), 2-2 Christian Eriksen (75.).
Burnley - Arsenal 1-3
0-1 Pierre-Emerick Aubameyang (51.), 0-2
Pierre-Emerick Aubameyang (63.), 1-2 As-
hley Barnes (65.), 1-3 Eddie Nketiah (90.).
Leicester - Chelsea 0-0
Man.Utd - Cardiff 0-2
0-2 Nathanie Mendez-Laing (vítaspyrna)
(23.), Nathanie Mendez-Laing (54.).
C. Palace - B’mouth 5-3
1-0 Michy Batshuayi (24.), 2-0 Batshuayi
(32.), 3-0 Jack Simpson (sjálfsmark) (37.), 3-1
Jefferson Lerma (45.), 3-2 Jordon Ibe (57.),
4-2 Patrick Van Aanholt (65.), 4-3 Joshua
King (73.), 5-3 Andros Townsend (80.).
Fulham - Newcastle 0-4
0-1 Jonjo Shelvey (9.), 0-2 Ayoze Perez 11,
0-3 Fabian Schär (61.), 0-4 S. Rondon (90.).
S’ton - Huddersfield 1-1
1-0 Nathan Redmond (41.), 1-1 Alex
Pritchard (50.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man.City 38 32 2 4 95-23 98
Liverpool 38 30 7 1 89-22 97
Chelsea 38 21 9 8 63-39 72
Tottenham 38 23 2 13 67-39 71
Arsenal 38 21 7 10 73-51 70
Man. Utd. 38 19 9 10 65-54 66
Wolves 38 16 9 13 47-46 57
Everton 38 15 9 14 54-46 54
Leicester 38 15 7 16 51-48 52
West Ham 38 15 7 16 52-55 52
Watford 38 14 8 16 52-59 50
C. Palace 38 14 7 17 51-53 49
Newcastle 38 12 9 17 42-48 45
B’mouth 38 13 6 19 56-70 45
Burnley 38 11 7 20 45-58 40
S’ton 38 9 12 17 45-65 39
Brighton 38 9 9 20 36-60 36
Cardiff 38 10 4 24 34-27 34
Fulham 38 7 5 26 34-81 26
H’field 38 3 7 28 22-86 16
Manchester City varði enska meistaratitilinn
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla fór fram í gær. Mesta spennan var um það hvaða lið myndi standa uppi sem enskur meistari en Liver-
pool þurfi að treysta á að Brighton tæki stig af Manchester City. Það gerðist ekki og 4-1 sigur Manchester City þýðir að bikarinn verður áfram í Manchester-borg.
FÓTBOLTI Manchester City varð í
gær enskur meistari í knattspyrnu
karla annað árið í röð og alls í sjötta
skipti í sögu félagsins. Fyrir lokaum-
ferð deildarinnar var ljóst að ef liðið
færi með sigur af hólmi í leik sínum
gegn Brighton, sem hafði að engu að
keppa, myndi titillinn vera áfram í
herbúðum Manchester City.
Leikmenn Manchester City fengu
blauta tusku í andlitið um miðbik
fyrri hálfleiks þegar Glenn Murray
kom Brigton óvænt yfir en Adam
var ekki lengi í paradís hjá Liver-
pool-mönnum og Sergio Agüero
jafnaði metin skömmu síðar. Aym-
eric Laporte, Riyad Mahrez og Ilkay
Gündogan sáu svo til þess að róa
taugar stuðningsmanna Manches-
ter City og sigldi meistaratitlinum
þægilega í höfn.
Manchester City varði þar af
leiðandi titil sinn og varð enskur
meistari í sjötta skipti í sögu félags-
ins. Fyrsti titillinn kom vorið 1937,
annar 31 ári síðar og svo varð liðið
meistari árin 2012 undir stjórn
Roberto Mancini og 2014 með
Manuel Pellegrini við stjórnvölinn.
Pep Guardiola tók við stjórnar-
taumunum hjá liðinu af Pellegrini
vorið 2016. Fyrsta keppnistímabilið
gekk ekki sem skyldi hjá Guardiola
en liðið setti stigamet árið eftir með
því að hala inn 100 stig. Manchester
City tryggði sér þá enska meistara-
titilinn þegar fimm umferðir voru
eftir og yfirburðir liðsins voru
algjörir. Ljóst var að nýtt stórveldi
væri að fæðast.
Liverpool veitti Manchester City
hins vegar harða samkeppni á leik-
Leikmaður helgarinnar
Sadio Mané skoraði bæði mörk Liverpol í 2-0 sigri liðsins gegn Wolves,
en hann varð þar af leiðandi markahæsti leikmaður deildarinnar
ásamt liðsfélaga sínum Mohamed Salah og Pierre-Emerick Auba-
meyang, framherja Arsenal, en þeir skoruðu hver um sig 22 mörk fyrir
lið sín.
Senegalski framherjinn hefur reynst Liverpool afar vel síðan hann
gekk til liðs við Liverpool frá Southampton árið 2016 en hann skoraði
13 deildarmörk á sinni fyrstu leiktíð með liðinu og svo 10 mörk á þeirri
næstu.
Hann bætti sig því umtalsvert í markaskorun á nýliðinni
leiktíð og var einn af lykilleikmönnum liðsins í titilbar-
áttunni sem liðið háði gegn Manchester City.
Hraði Mané og dugnaður er einnig stór
þáttur í því að lærisveinar Jürgen Klopp
geti leikið þá stífu og stöðugu pressu sem
liðið leikur. Þá skapar þessi öflugi fram-
herji stöðugt usla í vörnum andstæðinga
Liverpool með klókum og vel útfærðum
hlaupum sínum með og án bolta.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Sigur Manchester City gegn
Brighton var eftir bókinni en
hann tryggði lærisveinum Pep
Guardiola annan meistaratitilinn
í röð. Glenn Murray velgdi liðinu
undir uggum með því að koma
Brighton yfri en þung pressa og
gæði leikmanna Manchester
City varð til þess að liðið fór
með sannfærandi sigur af hólmi
og sigldi titlinum í höfn.
Hvað kom á óvart?
Aron Einar Gunnarsson og félag-
ar hans hjá Cardiff City kvöddu
deildina með góðum sigri gegn
Manchester United sem fer með
óbragð inn í sumarið eftir þetta
tap. Úrslitin höfðu engin áhrif á
það hvar liðin enda í töflunni en
eru sálrænt slæm fyrir Manches-
ter United en kæta hins vegar
stuðningsmenn Cardiff City.
Mestu vonbrigðin
Liverpool-menn fara vonsviknir
inn í sumarið þrátt fyrir að liðið
hafi sett félagsmet yfir flest
stig í ensku efstu deildinni.
Stuðningsmenn liðsins fengu
vonarglætu í skamman tíma
eftir að Brighton komst yfir og
liðið gerði sitt með þvi að vinna
Wolves en það dugði ekki til
þess að tryggja liðinu titilinn.
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum á Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Spilaði allan leikinn fyrir
Everton þegar liðið gerði
2-2 jafntefli. Hann lagði upp mark
Theos Walcott í leiknum en það
var sjötta stoðsendingin hans á
leiktíðinni. Hann skoraði auk þess
13 deilarmörk fyrir liðið í vetur.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar spilaði tæpan
klukkutíma í kveðju-
leik sínum fyrir Cardiff sem vann
Manchester United 2-0 en velska
liðið var þegar fallið úr deildinni
fyrir lokaumferðina.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Var ekki í leikmannahópi
Aston Villa þegar liðið
lagði WBA að 2-1 að velli í fyrri leik
liðanna í umspili um laust sæti í
efstu deild á næstu leiktíð.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Átti stoðsendinguna í
marki Ashleys Barnes
þegar Burnley laut í lægra haldi
3-1 fyrir Arsenal. Þetta var sömu-
leiðis sjötta stoðsending hans á
keppnistímabilinu.
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, lyftir hér bikarnum á loft eftir að Mancester City hafði tryggt sér enska meistaratitilinn með öruggum sigri
tíðinni sem var að ljúka og liðin
skiptust á að halda forystunni í
deildinni. Segja má að vendipunkt-
urinn á tímabilinu hafi verið 2-1
sigur Manchester City gegn Liver-
pool í upphafi ársins en fyrir þann
leik var Liverpool með sjö stiga
forskot á toppi deildarinnar eftir
gjöfula jólatörn.
Eftir þann sigur laut Manchester
City einungis í lægra haldi í einum
leik og hafði raunar betur í 14 síð-
ustu deildarleikjum sínum á leiktíð-
inni og endaði með eins stigs forskot
á Liverpool sem hefur aldrei fengið
jafn mörg stig í deildinni, eða 97.
Liverpool-messan, sem haldin
var í Seljakirkju í gær og stuðnings-
menn Liverpool fjölmenntu á, dugði
því ekki til þess að binda enda á 29
ára bið félagsins eftir enska meist-
aratitlinum. Aðstoð æðri máttar-
valda dugði til þess að færa Liver-
pool sigur í lokaumferðinni en náði
ekki að f lytja þau fjöll að Brighton
hrifsaði stig af Manchester City.
Þessi tvö lið voru í algjörum sér-
flokki í deildinni á þessu keppnis-
tímabili en Chelsea sem varð í þriðja
sæti fékk 25 stigum minna en Liver-
pool. Manchester City skoraði 95
mörk í deildinni á yfirstandandi
1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-0
1
B
C
2
2
F
A
-0
0
8
0
2
2
F
9
-F
F
4
4
2
2
F
9
-F
E
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K