Fréttablaðið - 13.05.2019, Page 16
Mygla myndast þar sem er of mikill raki og skortur á loftun eða öndun. Þar sem
pípulagnir leka, eins og vatnslagn
ir og skólplagnir, þar sem lélegur
frágangur var á niðurföllum og
flætt hefur upp úr þeim eða lélegt
dren er í kringum hús.
Þakleki er algeng orsök en slík
um leka getur verið erfitt að átta
sig á. Vatn getur lekið í gegnum
þakklæðningu inn á þakdúk eða
þakplast og runnið eftir því og
niður í veggi þar sem mygla byrjar
að myndast við „réttar“ aðstæður.
Óútskýrðar bólgur í veggjum
má oft rekja til leka frá þaki en
ekki útveggjum en hér þarf að fá
fagmenn til að skoða aðstæður
og nýta tækni eins og hitamynda
vélar og rakamæla til að greina
stöðuna. Stíflaðar rennur geta
valdið því að regnvatn eða snjó
bráð rennur frá þakrennu og inn
undir þak klæðningu og niður í loft
eða veggi. Leki meðfram gluggum,
sprungur og brotnar lagnir, sér
staklega í frárennsli og skólp
lögnum undir og í gólfplötum eru
einnig algengar orsakir.
Rottur valda óhug
Rottugangur í og við heimili fólks
veldur flestum óhug en rottur
lifa í skólpkerfum borgarinnar
og eru skilgreindar sem meindýr.
Svokallaðar brúnrottur geta orðið
töluvert stórar, 20 25 cm langar á
búkinn með 15 cm skott. Rottur
geta bitið frá sér ef þeim er ógnað
eins og dæmin sína síðustu misseri
en þær geta borið með sér ýmsa
sýkla sem geta valdið alvarlegum
sýkingum í mönnum. Rottur
komast í f lestum tilfellum inn í
mannabústaði um skólplagnir,
brotnar lagnir eða þar sem sam
skeyti lagna hafa dregist í sundur.
Gömul niðurföll mynda kjörað
stæður fyrir rottur að komast upp
á yfirborðið. Oft geta framkvæmd
ir í nágrenni valdið rottugangi.
Skólpmaur eða húsamaur eru
litlar svartar pöddur sem lifa í hol
rúmum undir gólfplötum húsa og
inni í löskuðum skólplögnum þar
sem eru kjöraðstæður, hiti og raki.
Á ákveðnum tíma árs fara þessi
kvikindi af stað og þá verður fólk
vart við þau. Þetta eru hvimleið
meindýr sem geta borið með sér
sýkla en eru annars frekar mein
laus.
Gamlar steinlagnir
Hús sem eru byggð fyrir 1980
eru komin á tíma varðandi frá
rennslislagnir. Í f lestum tilfellum
eru steinlagnir undir húsum frá
þessum tíma en meðal líftími á
steinlögnum er 40 til 50 ár. Það er
mikilvægt að bregðast við áður
en það verður of seint. Það getur
verið stórmál að skipta út gömlum
frárennslislögnum sem felur í
sér niðurbrot og mikið rask fyrir
húseigendur og jafnvel fjarveru frá
heimilum í nokkrar vikur ef svo
ber undir.
Í upphafi skal endinn skoða
Lagnafóðrun sérhæfir sig í
ástandsskoðun á frárennslis
lögnum fyrir heimili, fyrirtæki og
stofnanir.
„Við höfum yfir að ráða full
komnustu röramyndavél sem er
í boði á markaðinum í dag sem
er með staðsetningarbúnaði og
dýptarmæli og er notuð til að
staðsetja lagnir og einnig bilanir í
fráveitukerfum.
Með hverri ástandsskoðun frá
okkur getur fylgt ítarlegt mat þar
sem fram kemur ástand lagna og
okkar greining á því hvort úrbóta
sé þörf. Ef á þarf að halda leggjum
við fram tillögur að úrbótum
með fóðrun eða hefðbundnum
aðferðum, allt eftir aðstæðum
hverju sinni.
Hver ástandsskoðun frá okkur
er gerð og yfirfarin af löggiltum
pípulagningameistara.
Þeir sem eru að endurnýja eld
hús og baðherbergi ættu að láta
mynda hjá sér lagnirnar áður en
hafist er handa. Við komum alltof
of að húsum þar sem búið er að
endurnýja baðherbergi og ástand
lagna hefur ekki verið kannað
áður. Í mörgum tilfellum þarf að
brjóta allt upp aftur.
Í þessum tilfellum hefði mátt
koma í veg fyrir fjárhagstjón
og ómæld óþægindi með því að
mynda lagnir áður en hafist var
handa við endurnýjun.
Þeir sem hyggja á fasteignakaup
ættu alltaf að láta mynda lagnir
áður en gengið er frá kaupum á
fasteign.
Við erum með lausnina þegar
kemur að viðgerðum á skólp og
frárennslislögnum.
Fóðrun lagna er varanleg lausn
þegar kemur að viðhaldi og endur
nýjun fráveitulagna með lágmarks
raski fyrir húseigendur. Öll okkar
fóðringarefni eru vottuð til allt að
50 ára. Og við bjóðum 5 ára verk
ábyrgð á fóðringarvinnu.
Áður en verkið hefst upplýsum
við alla íbúa um hvað sé í vændum
og förum yfir tímasetningar og
verkferla, gerð er verkáætlun í
samráði við íbúa. Við leggjum
mikla áherslu á góða upplýsinga
miðlun til húseigenda meðan á
verkinu stendur.
Þegar komið er á verkstað er
það okkar fyrsta verk að leggja
hlífðarteppi á gólf áður en byrjað
er að koma inn með verkfæri. Við
hyljum alla viðkvæma hluti með
hlífðarplasti áður en verkið hefst.
Áður en sjálf fóðringarvinnan
hefst þurfum við að hreinsa
lagnirnar.
Það fer þannig fram að við
myndum allar lagnir og metum
hvað hreinsunaraðferð þarf að
beita á hverjum stað fyrir sig,
t.d. háþrýstiþvotti eða öðrum
aðferðum. Þessi vinna fer fram frá
hreinsibrunnum, klósettum og
niðurföllum, allt eftir aðstæðum á
hverjum stað fyrir sig.
Nú fóðrum við gömlu lagnirnar
að inna með 37 mm epoxysokk,
allt eftir aðstæðum hverju sinni.
Við getum fóðrað lagnir frá 50 mm
og upp úr.
Við blásum sokk inn í lagnirnar,
fóðringarefnið þrýstist út í gömlu
lögnina og myndar þannig nýja
lögn innan í gamla rörinu. Eftir að
fóðringin er komin á réttan stað
tekur hún u.þ.b. 1 til 4 klukku
stundir að harðna. Næsta skref
er að við sendum inn róbót til að
opna fyrir allar hliðarlagnir sem
tengjast inn á viðkomandi lögn.
Nú er komin 100% þétt og sjálf
berandi lögn.“
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Starfsmenn eru búnir réttum tækjum og tólum.
Farið yfir stöðu mála áður en byrjað er á verkefnum dagsins.
Þegar leysa þarf úr óvæntum vandamálum eru starfsmenn Lagnafóðrunar snöggir að mæta á staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Áður en verkið
hefst upplýsum við
alla íbúa um hvað sé í
vændum og förum yfir
tímasetningar og verk-
ferla, gerð er verkáætlun
í samráði við íbúa.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U DAG U RMYGLUSVEPPIR
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-2
4
4
C
2
2
F
A
-2
3
1
0
2
2
F
A
-2
1
D
4
2
2
F
A
-2
0
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K