Fréttablaðið - 13.05.2019, Side 33
Þetta er aðferð sem
hefur verið notuð
áratugum saman víða
erlendis og gefið góða
raun. Notkun myglu-
hunda er viðurkennd af
Umhverfisstofnun
Þýskalands sem aðferð
til að leita að leyndri
myglu.
Einar Ragnarsson, hjá Mannviti
Einar Ragnarson hjá Mannviti og Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir hundaþjálfari binda miklar vonir við Hanz, verðandi meistara í mygluleit. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jóhanna Þorbjörg Magnús-dóttir er sérfræðingur í hundaþjálfun og eigandi
Allir hundar ehf. Hún hefur
undanfarið ár þjálfað hundinn
Hanz í leit að myglu. Þjálfunin
er samstarfsverkefni verkfræði-
stofunnar Mannvits hf. og Allir
hundar ehf.
„Þjálfunin hefur gengið mjög
vel. Hundurinn er mjög traustur,
hann svíkur mig aldrei. Ef eitt-
hvað klikkar þá er það mér að
kenna,“ segir Jóhanna hlæjandi.
„Ég er rosalega spennt að byrja að
starfa með honum við þetta.“
Verkefnið á sér tveggja ára
aðdraganda. Einar Ragnars-
son, sviðsstjóri mannvirkja og
umhverfis hjá Mannviti, hafði
samband við Jóhönnu og óskaði
eftir því að hún þjálfaði hund í
mygluleit. „Upprunalega var hug-
myndin að þjálfa tvo hunda. En
við ákváðum að bíða aðeins með
það og byrja á einum. En mark-
miðið er að þeir verði tveir. Því
hundar geta forfallast eins og við.
Þeir geta fengið kvef og annað
og þá er gott að hafa af leysingu,“
segir Einar.
Áratuga reynsla
„Þetta er aðferð sem hefur verið
notuð áratugum saman víða
erlendis og gefið góða raun. Við
höfum verið í samstarfi við þýsk
samtök eigenda slíkra hunda
og kynnt okkur málið. Notkun
mygluhunda er viðurkennd af
umhverfisstofnun Þýskalands
sem aðferð til að leita að leyndri
myglu,“ segir Einar.
„Eftir að við komumst í sam-
band við Jóhönnu fengum við
hana til þess að fara út til Kölnar til
að kynna sér þjálfun og notkun á
slíkum hundum,“ bætir hann við.
Jóhanna hefur einnig setið
námskeið vegum Frontex, landa-
mæragæslu Evrópusambandsins.
„Þar lærði ég að kenna hundum
efnaleit, sprengjuleit og fíkniefna-
leit. Ég byggði svo ofan á það í
þjálfuninni.“
Einar vonast til þess að notkun
mygluhunda muni gera alla vinnu
við mygluleit skilvirkari. „Maður-
inn er takmarkaður af því að hann
leitar að sýnilegum ummerkjum
um myglu. Hann leitar oftast að
rakaskemmdum eða rakablettum
sem geta verið vísbending um að
þar gæti leynst mygla,“ segir Einar.
„Notkun hunda er skilvirkari.
Þegar hundurinn kemur inn í rými
sýnir hann kannski bara einum
vegg af fjórum einhvern áhuga. Þá
getum við einbeitt okkur að þeim
eina vegg og útilokað hina.“
Einar segir engin tæki til sem
hægt er að reiða sig á til að greina
myglu. „Þú getur fengið svörun
á myglu í nánast öllum húsum.
Sérstaklega ef þú reynir að greina
hana að sumri til við opinn glugga.
Þú getur á engan hátt einangrað
það hvaðan myglugróin koma.“
Varla kynnst betri hundi
Hundurinn Hanz hefur verið í
þjálfun hjá Jóhönnu allt síðasta
ár og er að verða tilbúinn að hefja
vinnu sem mygluhundur. Jóhanna
segir að mygluhundar geti verið af
ýmsum tegundum, en þeir þurfa
að búa yfir ákveðnum eiginleikum
og hafa þol til að sinna verkinu.
„Honum er í rauninni kennt
gegnum leik. Hann fær verðlaun
og þetta er allt mjög jákvætt. Það
er ekki hægt að þvinga hund til
að nota nefið. Þetta þarf að vera
skemmtilegt fyrir hann. Það
er mikilvægt að hann upplifi
jákvæðar tilfinningar gagnvart
verkefninu,“ segir Jóhanna og
bætir við: „Þetta er eiginlega það
skemmtilegasta sem hann veit.
Einu skiptin sem hann er ósáttur
við mig er þegar við þurfum að
hætta.“
Jóhanna segir að allt líf Hanz,
umhirða og meðhöndlun snúist
um leitina. En hann þarf ekki að
kvarta undan því. „Hann býr hjá
mér og er bara heimilishundur,
hann er ofsalega prúður og ljúfur
og í miklu uppáhaldi hjá börn-
unum mínum. Hann er sennilega
með betri hundum sem ég hef
kynnst í minni hundaþjálfunartíð.
Það er mjög sérhæft hvernig ég
skilyrði hann á lyktina. Við erum
í samstarfi við Náttúrufræði-
stofnun Íslands á Akureyri og
fáum send sýni frá þeim.
Hanz var keyptur af Gråmanns
ræktun, þaulreyndum hundarækt-
endum í Svíþjóð. Þau hafa ræktað
hunda í 20-30 ár, eingöngu til
vinnu. Hanz var að verða eins árs
þegar hann byrjaði í þjálfuninni
og er í góðum gír núna,“ segir
Jóhanna.
„Mannvit er þegar orðinn með-
limur í alþjóðasamtökum aðila
sem nota mygluhunda. Öll þjálfun
á hundinum og allur undir-
búningur tekur mið af því hvernig
menn gera þetta í Þýskalandi,“
segir Einar. „Við munum byrja með
þessa þjónustu fljótlega, hundur-
inn er rétt að verða tilbúinn. Við
bindum vonir við að þessi nýja
aðferð auðveldi mygluleit og komi
með nýjan vinkil á þessi mál,“
segir Einar.
Gjörbylting í mygluleit
Einar Ragnarsson hjá Mannviti og Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir hundaþjálfari binda miklar
vonir við schäfer-hundinn Hanz, verðandi meistara í mygluleit. Hanz er að ljúka sérhæfðri þjálfun.
KYNNINGARBLAÐ 3 M Á N U DAG U R 1 3 . M A Í 2 0 1 9 MYGLUSVEPPIR
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-2
4
4
C
2
2
F
A
-2
3
1
0
2
2
F
A
-2
1
D
4
2
2
F
A
-2
0
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K