Fréttablaðið - 13.05.2019, Page 34
Umhverfisstofnun
gaf út bækling með
leiðbeiningum um
inniloft, raka og
myglu árið 2015.
Þar er að finna upp-
lýsingar um hvernig
best sé að viðhalda
og bæta heilnæmi
innilofts og hvernig
bregðast skuli við
verði inniloft óheil-
næmt.
Oftast er einfalt að við-halda heilnæmu innilofti í híbýlum. Margt getur þó
haft áhrif og mikilvægt er að huga
að því hvernig hægt sé að viðhalda
heilnæmu innilofti eða bæta það.
Þannig má minnka líkur á að inni-
loft geti haft slæm áhrif á heilsu
þeirra sem þar dvelja. Flestir verja
megninu af tíma sínum innandyra
og eru því gæði innilofts mikilvæg.
Úti um allan heim er óheilnæmt
inniloft álitið áhættuþáttur fyrir
heilsu manna. Sé nægur raki fyrir
hendi getur örveruvöxtur innan-
húss aukist mikið, s.s. bakteríu- og
sveppavöxtur, en sterk fylgni er á
milli örverumengunar og öndunar-
færasjúkdóma, ofnæmis, astma og
viðbragða frá ónæmiskerfinu.
Ákveðnir hópar manna eru
útsettari fyrir áhrifum vegna heilsu-
farsástands eða aldurs. Niðurstöður
rannsóknar frá árinu 2006 bentu
til þess að á allt að 17-24% heimila á
Norðurlöndunum væru merki um
raka innanhúss, s.s. vatnsleka eða
sýnilega myglu á veggjum, gólfi eða
í lofti. Fyrir heimili í Reykjavík var
ályktað að algengi vatnsskemmda
væri um 20%, blaut gólf og sýnileg
mygla um 6% og raki af einhverju
tagi um 23%. Niðurstöður rann-
sóknarinnar bentu til þess að önd-
unarfærasjúkdómar og astmi væru
algengari hjá íbúum í húsum þar
sem raki var til staðar.
Leiðbeiningarnar eru byggðar
á rannsóknum, leiðbeiningum
og upplýsingum frá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni (WHO) og
systurstofnunum í Evrópu, Banda-
ríkjunum og á Norðurlöndunum.
Áhrifaþættir fyrir
heilnæmi innilofts
1. Tóbaksreykur
Reykur getur aukið einkenni
öndunarfærasjúkdóma (s.s.
astma), ert augu og valdið höfuð-
verk, hósta, særindum í hálsi
og lungnakrabbameini. Börn
eru sérstaklega viðkvæm fyrir
óbeinum reykingum.
2. Ofnæmisvaldar
Listinn yfir þekkta ofnæmis-
valda er langur, en algengir
ofnæmisvaldar eru frjókorn,
dýrahár, rykmaurar, sveppa-
gróður og matvörur, s.s. hnetur,
mjólk og fiskur.
3. Kolmónoxíð (CO) og niturdíoxíð
(NO2)
Á heimilum geta slíkar loftteg-
undir safnast upp vegna ónógrar
loftræsingar við notkun gaselda-
véla, gashitara og eldstæða. Í
háum styrk getur kolmónoxíð
valdið höfuðverk, svima, óráði,
ógleði og þreytu og jafnvel verið
banvænt.
4. Raki
Æskilegt er að rakastig innan-
húss sé á bilinu 30-60%. Fjöl-
breyttar tegundir baktería,
sveppa og myglu geta vaxið og
fjölgað sér innanhúss ef nægur
raki er fyrir hendi.
5. Efni
Efni innanhúss geta verið af
ýmsum toga, s.s. hreinsiefni,
ilmúðar, áklæði á húsgögnum,
byggingarefni, málning, leik-
föng, raftæki og margt, margt
f leira. Viss kemísk efni sem eru
notuð í hreinsiefni, gólfefni og
í húsgögn geta í háum styrk
valdið höfuðverk, ógleði og
ertingu í augum, nefi og hálsi.
6. Radon
Radon er geislavirk lofttegund
sem myndast í jarðvegi. Radon
hefur verið mælt á Íslandi og í
f lestum tilfellum mælst langt
undir viðmiðunarmörkum.
Gátlisti – góð ráð
fyrir heilnæmt inniloft
1. Lofta út, leyfa gegnumtrekk
tvisvar á dag í 10 mínútur í senn.
2. Loftræsa vel þar sem föt eru
þurrkuð.
3. Ekki leyfa reykingar innandyra.
4. Þurrka af og þrífa heimilið reglu-
lega (sér í lagi ef gæludýr eru á
heimilinu).
5. Fylgjast með merkjum um raka
og mygluvöxt.
6. Hreinsa myglu í burtu.
7. Þurrka svæði sem hafa orðið
fyrir vatnsleka innan 24-48
klukkustunda til að varna
mygluvexti.
8. Gera við vatnsleka.
9. Þvo lök og sængurföt reglulega í
heitu vatni (60°C eða hærra).
10. Nota ofnæmisprófaðar rúm-
dýnur og koddaver.
11. Tryggja meindýravarnir með
því að loka fyrir sprungur og
rifur og gera við vatnsleka, ekki
láta matvæli liggja frammi.
12. Loftræsa eldhús og rými sem í
er arineldur eða kamína.
13. Tryggja að arinn eða kamína sé
rétt uppsett, notað og viðhaldið.
14. Fylgja leiðbeiningum fram-
leiðanda um rétta notkun
hreinsiefna.
15. Tryggja nægt ferskt loft og loft-
ræsingu (opna glugga eða nota
viftur) þegar
málað er,
gerðar
endurbætur
á húsnæði
eða notaðar
vörur sem að
gætu losað frá
sér rokgjörn
lífræn efni.
16. Aldrei skal
blanda saman
efna-
vörum, s.s. hreinsiefnum, nema
leiðbeiningar séu um slíkt á
umbúðum.
17. Forðast að kaupa hreinsiefni og
aðrar efnavörur sem innihalda
mikil ilmefni, eiturefni eða rok-
gjörn efni.
18. Tryggja að ofnar/hitun hús-
næðis sé í lagi.
Hvernig losna ég við myglu?
Það er ómögulegt að losna við alla
myglu og myglugró af heimilinu
enda eru þau hluti af náttúrulegu
umhverfi okkar. Það er ekki fyrr en
myglugró fara að fjölga sér vegna
ákjósanlegra aðstæðna sem mygla
getur orðið vandamál. Ákjósan-
legar aðstæður fyrir myglugró til
að fjölga sér eru óeðlilega mikill
raki og bleyta vegna raka- eða leka-
vandamála. Eina leiðin til að losna
við myglu vegna slíkra aðstæðna er
að fjarlægja orsökina, þ.e. lagfæra
rakavandamál og/eða gera við
vatnsleka. Meðan orsökin er ekki
fjarlægð mun mygla halda áfram
að vaxa.
Inniloft, raki og mygla
Við hjá Verkís lítum á það sem okkar þjóðfélagslegu ábyrgð að taka forystu í
málum sem tengjast óþægindum íbúa innandyra, svo sem myglu. Við höfum að
ráða sérfræðingum á öllum fagsviðum verkfræðinnar sem geta greint vanda og
komið með tillögur að úrbótum.
• Tryggja ávallt ferskt loft innandyra
• Forðast rakaþéttingu og þrífa slík
svæði sérstaklega
• Þurrka og þrífa blaut svæði vandlega
• Bregðast strax við lekum
Holl húsráð
Þekktasta mygluhúsnæði landsins þar sem allt virðist hafa klikkað sem
gat klikkað. Það var ekki bara eitt heldur allt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
4 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U DAG U RMYGLUSVEPPIR
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
A
-1
F
5
C
2
2
F
A
-1
E
2
0
2
2
F
A
-1
C
E
4
2
2
F
A
-1
B
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K