Fréttablaðið - 13.05.2019, Page 37
Manchester City varði enska meistaratitilinn
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla fór fram í gær. Mesta spennan var um það hvaða lið myndi standa uppi sem enskur meistari en Liver-
pool þurfi að treysta á að Brighton tæki stig af Manchester City. Það gerðist ekki og 4-1 sigur Manchester City þýðir að bikarinn verður áfram í Manchester-borg.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Hilmar Örn
Jónsson, nýbakaður Íslandsmet-
hafi í sleggjukasti, varð um helg-
ina ACC-svæðismeistari í Banda-
ríkjunum. Hilmar Örn stundar
nám og keppir fyrir University of
Virginia. Hann hefur átt frábært
keppnistímabil og í lok apríl bætti
hann ellefu ára gamalt Íslandsmet
í sleggjukasti.
Hilmar átti f lotta kastseríu í gær
og átti fjögur köst yfir 72 metra.
Það lengsta var 72,84 metrar.
Hilmar varð ACC-svæðismeistari
fjórða árið í röð og varð sá fyrsti í
sögu svæðisins til að vera svæðis-
meistari í sleggjukasti öll fjögur
keppnisárin sín. Aðeins hefur
einum öðrum tekist það í öðrum
greinum.
Íþróttamálum í Bandaríkjunum
er þannig háttað að landinu er
skipt upp í svæði. Skóli Hilmars er
hluti af Atlantic Coast Conference
sem samanstendur af 15 sterkum
skólum. Með góðum árangri þar
komast einstaklingar í fjórðungs-
undankeppni þar sem 64 bestu úr
hverri grein keppa um að komast
í lokameistaramótið. Tólf efstu
ú r f jórðu ngsu ndankeppninni
komast á það mót þar sem sigur-
vegari mótsins verður bandarískur
meistari.
Hilmar er því kominn áfram í
fjórðungsundankeppnina. Ef vel
tekst til hjá honum þar mun hann
keppa á lokameistaramótinu sem
fer fram í byrjun júní. Til að eiga
möguleika á titli þarf heimsklassa
árangur.
Íslandsmet Hilmars er 75,26
metrar og sem stendur er hann í
þrettánda sæti heimslistans árið
2019. Þetta er besta tímabil Hilm-
ars Arnar frá upphafi og því verður
spennandi að fylgjast með honum
á komandi vikum. – hó
Hilmar Örn vann sterkt
mót í Bandaríkjunum
SNÓKER Kristján Helgason varð
um helgina Íslandsmeistari í snó-
ker í 14. skipti þegar hann lagði
Jón Inga Ægisson 9-2 í úrslita-
leik en mótið var haldið á Billiar-
dbarnum.
Kristján komst alla leið í undan-
úrslit á HM áhugamanna í Möltu
á síðasta ári og er fremsti snóker-
spilari landsins.
Er hann auk þess eini íslenski
spilarinn sem komist hefur í 64
manna úrslitin á HM atvinnu-
manna í Sheffield.
Jón Ingi komst í 2-1 í úrslita-
leiknum en eftir það vann Krist-
ján átta ramma í röð og tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn í 14. skipti
á ferlinum. – hó
Kristján varð
Íslandsmeistari
FÓTBOLTI Sverrir Ingi Ingason,
landsliðsmaður í knattspyrnu, og
samherjar hans hjá gríska liðinu
PAOK tryggðu sér á laugardaginn
gríska bikarmeistaratitilinn í fót-
bolta með 1-0-sigri gegn AEK í
úrslitaleik keppninnar.
Liðið tryggði sér gríska meist-
aratitilinn á dögunum og er því
tvöfaldur grískur meistari. Sverr-
ir Ingi kom til PAOK frá Rostov í
Rússlandi á miðju keppnistímabili
í Grikklandi í lok júní í fyrra.
Hann var á varamannabekkn-
um fram í uppbótartíma leiksins
en þá kom hann inn á og hjálpaði
PAOK að sigla sigrinum í höfn.
Sverrir Ingi lék f jóra leiki í
bikarnum en hann náði ekki að
brjóta sér leið inn í byrjunarliðið á
nýliðinni leiktíð og lék aðeins einn
deildarleik með liðinu. – hó
Sverrir Ingi
vann tvöfalt
Hilmar Örn Jónsson fór með sigur af hólmi á ACC-mótinu.
FÓTBOLTI Dagný Brynjarsdóttir
gekk á nýjan leik til liðs við banda-
ríska knattspyrnuliðið Portland
Thorns í byrjun febrúar síðast-
liðins. Dagný hafði ekkert spilað í
tæpt eitt og hálft ár þegar hún hélt
til Bandaríkjanna en hún hafði
glímt við meiðsli og þar á eftir eign-
ast barn.
Það var því langþráð endurkoma
þegar hún kom inn á sem vara-
maður í fyrstu umferð bandarísku
NWSL-deildinni. Eftir það lék hún
tvo leiki þar sem hún kom annars
vegar inn á sem varamaður og var
hins vegar skipt af velli eftir að hafa
hafið leikinn. Leikurinn um helg-
ina er sá fyrsti sem hún spilar
frá upphafi til enda en hún
skoraði eitt marka liðs-
ins í 3-1 sigri gegn
Orlando Pride.
P o r t l a n d
Thorns er eftir
þennan sigur
í fjórða sæti
d e i l d a r -
innar með
átta stig eftir
fjóra leiki en fjögur efstu
lið deildarkeppninnar fara
í úrslitakeppni eftir að
deildarkeppninni lýkur.
Síðast þegar Dagný spil-
aði með Portland Thorns
varð liðið bandarískur
meistari, árið 2017, en það
var fyrsti meistaratitill
Dagnýjar sem atvinnu-
manns í Bandaríkjunum.
Hún varð áður háskóla-
meistari með Florida
State háskólanum árið
2015.
„Það er algjörlega frábær tilfinn-
ing að vera komin í það gott líkam-
legt form að geta spilað heilan leik
og það er líka geggjað að vera búin
að skora mitt fyrsta mark í mjög
langan tíma. Ég myndi segja að ég
væri komin í svona 85% form og það
vantar mjög lítið upp á til þess að ég
verði komin í mitt besta form,“ segir
Dagný um leikinn um helgina.
„Minn helsti styrkur sem íþrótta-
manns var líkamlegur styrkur og
úthald og það er því mikil-
vægt fyrir mig að komast
aftur á þann stað að geta
hlaupið fram og til baka
allan leikinn og látið til
mín taka í návígjum.
Þ e s s a s t u n d i n a
þarf ég svolítið að
velja hlaupin og
vera klók og ég
hlak ka til að
komast í mitt
besta form á
næstunni. Ég
hef svo sem
ekki sett mér
neinn tíma-
ramma í þeim
efnum en ég
f inn verulegan mun
á mér á svona tveggja
vikna fresti. Mér finnst
líklegt að ég verði komin
í mitt besta form í lands-
leikjaglugganum í byrjun
júní,“ segir landsliðssóknar-
tengiliðurinn enn fremur.
„Við erum klárlega með
lið sem getur farið alla leið og
unnið titilinn eins og síðast þegar
ég var hérna. Við erum reyndar
með þó nokkuð marga landsliðs-
menn sem verða í burtu á meðan
á heimsmeistaramótinu stendur í
sumar og það mun reyna verulega
á okkur á þeim tímapunkti. Við
erum með flesta landsliðsmenn að
ég held þannig að þetta bitnar mest
á okkur en ég held að við séum með
nógu mikla breidd til þess að takast
á við það,“ segir hún um framhaldið
hjá Portland Thorns.
„Ég er svo mjög spennt fyrir því
að koma til móts við landsliðið í
byrjun júní og spila æfingaleikina
þar. Það var mjög gott fyrir mig að
fá nokkrar mínútur í leikjunum í
Algarve og kynnast Jóni Þóri. Ég er
mjög spennt fyrir því að vinna með
honum og hefja undankeppnina
næsta haust. Ég held að það sé mjög
hollt fyrir liðið og þá kannski sér-
staklega fyrir mig að fá nýtt blóð í
brúna.
Freyr [Alexandersson] hefði
pottþétt náð áfram góðum árangri
með liðið, það er ekki það. Hann er
hins vegar einn af þremur íslensku
meistaraf lokksþjálfurunum sem
hafa þjálfað mig og mér finnst
spennandi að fá nýjar áherslur og
aðra rödd,“ segir hún um komandi
verkefni með landsliðinu. – hó
Nálgast sitt fyrra form
Dagný Brynjarsdóttir lék í gær sinn fyrsta heila leik í eitt og hálft ár en hún
skoraði eitt marka Portland Thorns í 3-1 sigri liðsins gegn Orlando Pride.
leiktíð og Liverpool 89 en næsta lið
þar á eftir í markaskorun er Arse-
nal sem skoraði 73 mörk í deild-
inni í vetur. Því er ljóst að þessi lið
sköruðu fram úr og önnur lið þurfa
að spýta verulega í lófana í sumar
ætli þau að veita þeim samkeppni á
næsta keppnistímabili.
Staða mála hvað varðar þau lið
sem berjast um að komast í Meist-
aradeild Evrópu á næstu leiktíð
breyttist ekki í lokaumferðinni en
markalaust jafntefli Chelsea gegn
Leicester City kom ekki að sök og
liðið hafnaði í þriðja sæti þar sem
Tottenham Hotspur gerði sömu-
leiðis jafntefli á móti Gylfa Þór Sig-
urðssyni og félögum hans hjá Ever-
ton. Tottenham Hotspur hafnaði í
fjórða sæti deildarinnar.
Stoðsending Gylfa Þórs í þeim
leik var sú sjötta í deildinni á leik-
tíðinni en auk þess að leggja upp
þau mörk fyrir félaga sína skoraði
hann sjálfur 13 mörk. Chelsea hafði
fyrir lokaumferðina tryggt sér sæti í
Meistaradeild Evrópu.
Sigur Arsenal gegn Jóhanni Berg
Guðmundssyni og samherjum hans
hjá Burnley dugði ekki til þess að
koma liðinu upp í þriðja eða fjórða
sætið og þarf Arsenal þar af leiðandi
að hafa betur þegar liðið mætir
Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildar-
innar til þess að næla sér í fimmta
og síðasta sætið sem England getur
fengið í Meistaradeildinni á næstu
leiktíð. Jóhann Berg lagði líkt og
Gylfi Þór upp mark í tapinu gegn
Arsenal og þeir félagarnir gáfu því
upp jafn margar stoðsendingar
á samherja sína eða sex talsins.
Ófarir Manchester United héldu
svo áfram en liðið laut í lægra haldi
fyrir föllnu liði Cardiff City í leik
liðanna á Old Trafford. Aron Einar
Gunnarsson fékk því góðan endi
á farsælum ferli sínum hjá velska
liðinu en hann er á leið til Heimis
Hallgrímssonar og lærisveina hans
hjá katarska liðinu Al Arabi á næstu
leiktíð. Aron Einar stýrði víkinga-
klappi með stuðningsmönnum Car-
diff City eftir leikinn og kvaddi þá
með viðeigandi hætti.
Það er hins vegar ljóst að það er
mikil vinna fram undan hjá Ole
Gunnar Solskjær hjá Manchester
United við það að búa til lið sem
getur farið í hæstu hæðir á nýjan
leik. Liðið hafnaði í sjötta sæti deild-
arinnar og leikur þar af leiðandi í
Evrópudeildinni á næsta keppnis-
tímabili.
Það getur haft áhrif á sumar-
kaup félagsins að liðið leiki ekki í
Meistaradeildinni en djúpir vasar
liðsins munu þó líklega verða til
þess að félagið geti áfram fengið til
sín frambærilega leikmenn. Líklegt
er að hreinsun muni fara fram í leik-
mannahópnum á næstu vikum en
nú þegar hefur verið tilkynnt um
að Ander Herrera og Antonio Val-
encia muni hverfa á braut í sumar.
Ole Gunnar hefur gefið það út að
hann muni breyta um stefnu í
félagaskiptum sínum og líklegt að
horfið verði frá því að fá til sín rán-
dýra leikmenn sem hafa litlu skilað
fyrir liðið undanfarnar leiktíðir og
horft til þess að fá frekar unga og
upprennandi leikmenn.
hjorvaro@frettabladid.is
sínum gegn Brighton í gær. Manchester varði titil sinn. NORDICPHOTOS/GETTY
Það er algjörlega
frábær tilfinning að
vera komin í það gott
líkamlegt form að geta
spilað heilan leik.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
A
-0
1
B
C
2
2
F
A
-0
0
8
0
2
2
F
9
-F
F
4
4
2
2
F
9
-F
E
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K