Fréttablaðið - 13.05.2019, Qupperneq 38
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hreinn Bjarnason
kaupmaður,
Laugarnesvegi 87, Reykjavík,
lést á Landakoti miðvikudaginn 1. maí.
Útför hans fer fram frá Áskirkju,
miðvikudaginn 15. maí klukkan 13.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Anna B. Agnarsdóttir
Lilja Hreinsdóttir Guðlaugur Þór Þórarinsson
Björk Hreinsdóttir Björn G. Aðalsteinsson
Þóranna Hrönn, Gunnar Már, Elín Margrét,
Anna María og Bjarki Valdimar
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þuríður R.H. Sigfúsdóttir
Halldórs
lést miðvikudaginn 8. maí
á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Hjallatúni, Vík í Mýrdal.
Jóhannes St. Brandsson
Sigfús Jóhannesson Theresa A. O’Brien
Guðrún Jóhannesdóttir Þ. Daði Halldórsson
Stefán H. Jóhannesson Árný Lúthersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Reimar Charlesson
framkvæmdastjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Hafnarfirði föstudaginn 10. maí.
Útför hans verður auglýst síðar.
Björg Hjálmarsdóttir
Heiða Reimarsdóttir Magnús Karlsson
Kristín Helga Reimarsdóttir
Linda Reimarsdóttir
Sigurlína Halldórsdóttir
Sigrún Bergsdóttir Tony Arcone
Óskar Bergsson Jóhanna Björnsdóttir
Lára Gyða Bergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Einarsdóttir
áður til heimilis að Flókagötu 1,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 1. maí á
hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík.
Hún verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju,
þriðjudaginn 14. maí klukkan 13.00.
Fríða Bjarnadóttir Tómas Zoëga
Anton Bjarnason Fanney Hauksdóttir
Bjarni Bjarnason Kristín Jónsdóttir
stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Merkisatburðir
1846 Bandaríkin lýsa yfir stríði gegn Mexíkó sem lauk
með sigri þeirra fyrrnefndu í febrúar 1848. Með sigrinum
fengu Bandaríkin óskoruð umráð yfir Texas og tóku yfir
Kaliforníu, Nevada og Utah auk hluta fleiri fylkja.
1888 Þrælahald er lagt af með lögum í Brasilíu.
1894 Ásgeir Ásgeirsson, annar forseti lýðveldisins, fædd-
ist á þessum degi í Kóranesi á Mýrum. Hann var forseti frá
1952 til 1968.
1947 Alþingi samþykkir lög sem færa Sauðárkróki kaup-
staðarréttindi.
1961 Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Dennis
Rodman fæddist á þessum degi. Hann varð fimm sinnum
NBA-meistari með Detroit Pistons og Chicago Bulls.
1981 Jóhannesi Páli páfa öðrum, er sýnt banatilræði
á Péturstorginu í Róm. Mehmet Ali Agca hæfði páfann
fjórum skotum en páfinn lifði árásina af.
1995 Hin breska Alison Hargreaves verður fyrsta konan
til að komast á topp Everestfjalls án súrefniskúts og að-
stoðar Sjerpa.
2011 Tvær sprengjur springa í Charsadda-héraði í
Pakistan með þeim afleiðingum að 98 láta lífið og 140
særast. Þetta verður þá fyrsta kvöldið í sumar. Við leggjum af stað frá Hlemmi klukkan 18 og hjólum að Höfða og förum þaðan niður að sjó. Svo tökum við strandlengj-
una að höfninni og alveg út á Granda
og endum út við Þúfu,“ segir Sesselja
Traustadóttir, framkvæmdastýra Hjóla-
færni og einn skipuleggjendanna.
Sesselja segir að þetta sé verkefni sem
hafi verið að þroskast en Árni Davíðs-
son, formaður Landssamtaka hjólreiða-
manna, hefur leitt hjólaferðir á veturna
á laugardögum í mörg ár.
„Við vildum fá aðeins meira líf í þetta
og fórum að leita að samstarfsaðilum.
Okkur datt í hug að gera eitthvað á
fullveldisafmælinu 1. desember,“ segir
Sesselja.
Hugmynd hafi kviknað um að skoða
listaverkin í borginni og í kjölfarið var
haft samband við Listasafn Reykja-
víkur sem tók vel í hugmyndina.
„Við hjóluðum um bæinn í nístings-
kulda með risastóran hóp, á okkar
mælikvarða, og skoðuðum helstu þjóð-
frelsishetjurnar.“
Önnur ferð var svo skipulögð á
Barnamenningarhátíð í vetur þegar til
stóð að hjóla um Breiðholtið.
„Þá fengum við aftur skelfilegt veður
og það varð lítið úr þessu. Nú er hins
vegar góð spá og við vonumst eftir
góðri mætingu. Þetta er hentugur tími
því Hjólað í vinnuna var að hefjast og
margir að koma sér af stað. Á Hlemmi
er síðan þessi fíni hjólastandur þar sem
þú getur pumpað í dekkin og dyttað
aðeins að hjólinu áður en lagt er af
stað,“ segir Sesselja.
Markús Þór Andrésson, deildarstjóri
sýninga og miðlunar hjá listasafninu,
verður með í för og mun miðla af fróð-
leik sínum um listaverk borgarinnar.
„Þetta er líka ein leið til að fatta hvað
það er sumt sem hentar sérlega vel að
gera á hjóli. Það er ekki hægt að gera
þetta á bíl og tæki rosalega langan tíma
gangandi.“
Hjólafærni er fræðasetur um sam-
gönguhjólreiðar og en hugmyndin var
fyrst kynnt á Íslandi árið 2007.
„Við erum með mörg verkefni í
gangi sem snúa að því að stuðla að og
hvetja til aukinna samgönguhjólreiða.
Við gefum líka út íslenska hjólreiða-
kortið og erum með vefsíðu tileinkaða
almenningssamgöngum,“ segir Sesselja.
Þegar blaðamaður ræddi við Sesselju
var hún í óðaönn að standsetja vinnu-
stofu þar sem hælisleitendum er boðið
að koma og gera upp hjólin sín.
Þar að auki stendur Hjólafærni fyrir
verkefninu Hjólað óháð aldri þar sem
komið er með farþegahjól fyrir íbúa á
hjúkrunarheimilum.
„Svo vinnum við með hjólavottun
vinnustaða en það er í tengslum við
heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
um að gera betur og hvetja fólk til þess
að velja annað en einkabílinn til að
ferðast.“ sighvatur@frettabladid.is
Hjólað um strandlengju
borgarinnar í kvöld
Listasafn Reykjavíkur, Landssamtök hjólreiðamanna og Hjólafærni standa í dag fyrir
hjólaleiðsögn um strandlengjuna í höfuðborginni. Þessir aðilar ætla að hafa með sér
samstarf um eina hjólaleiðsögn í mánuði í sumar og verður riðið á vaðið í kvöld.
Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra Hjólafærni, vonast eftir góðri þátttöku í hjólaleiðsögn um borgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þetta er hentugur tími
því Hjólað í vinnuna
var að hefjast og margir að
koma sér af stað. Á Hlemmi er
síðan þessi fíni hjólastandur
þar sem þú getur pumpað í
dekkin og dyttað aðeins að
hjólinu.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
A
-0
6
A
C
2
2
F
A
-0
5
7
0
2
2
F
A
-0
4
3
4
2
2
F
A
-0
2
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K