Mosfellingur - 14.03.2019, Page 12

Mosfellingur - 14.03.2019, Page 12
 - Stærsti auglýsinga- og fréttamiðill í Mosfellsbæ12 Íslenska ullin er einstök Íslenskt sauðfé hefur gefið Íslendingum skjólmikla ull sem náttúran hefur þróað eftir veðri og vindum í meira en 1000 ár. Opið alla daga kl. 11-21 Þú finnur okkur hjá Atlantsolíu Mosfellsbæ Nýtt bílalúga Mosfellingurinn Eyrún Linda Gunnarsdótt- ir löggiltur fótaaðgerðafræðingur útskrifað- ist með hæstu einkunn frá Keili í janúar. Í kjölfarið opnaði hún fótaaðgerðastofuna Heilir fætur í verslunarkjarnanum í Hvera- fold í Grafarvogi. „Samkvæmt Félagi íslenskra fótaaðgerða- fræðinga eru helstu störf fótaaðgerðafræð- inga fyrst og fremst að viðhalda og upplýsa almenning um heilbrigði fóta. Þeir greina og meðhöndla algeng fótavandamál eins og sveppasýkingar, vörtur, líkþorn, inngrónar táneglur og siggmyndun. Einnig bjóða þeir upp á sérsmíðuð innlegg og hlífðar- meðferðir sem ætlað er að létta á hinum ýmsu svæðum fótanna og þannig draga úr verkjum eða meinamyndunum,“ segir Eyrún Linda. Allir gildir fyrir fótaaðgerð „Ég tel að fótaumhirða sé mjög mikilvæg, sér í lagi hjá fólki með sykursýki, taugasjúkdóma, gikt, húðsjúkdóma, íþróttameiðsli eða sem einfaldlega á erfitt með að sinna fótunum sjálft. Svo eru auðvitað allir velkomnir sem vilja gera vel við sig. Hægt er að fjárfesta í gjafabréfi á stofunni sem er að margra mati mjög sniðug gjöf fyrir þá sem eiga allt. Opið er á stof- unni frá 9 á morgnana til 16 á daginn eða eftir samkomulagi og hægt er að bóka utan opnunartíma.“ Við eigum bara eitt sett af fótum „Full meðferð í fótaaðgerð felur í sér fótabað, klipptar neglur og þynningu ef þess þarf ásamt snyrt- ingu niður með hliðum nagla. Einn- ig er sigg minnkað, líkþorn fjarlægð séu þau til staðar og fótanudd með góðu fótakremi í lokin. Allir eru gildir fyrir fótaaðgerð hvort sem um er að ræða börn, ungl- inga, ungt fólk eða eldra. Við erum bara með eitt sett af fótum sem þarf að huga vel að,“ segir Eyrún Lind að lokum en hægt er að nálgast allar upplýsingar um stofuna á facebook síðunni Heilir fætur – fótaað- gerðastofa. Eyrún Linda opnar eigin stofu • Útskrifuð með hæstu einkunn Nauðsynlegt fyrir alla að huga vel að fótunum SPENNANDI SUMARSTÖRF HJÁ MOSFELLSBÆ 2019 UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 23. MARS NÆSTKOMANDI Sótt er um störfin í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar — www.mos.is/ibuagatt. Nánari upplýsingar um störf, starfssvið, hæfniskröfur, laun og vinnutímabil er að finna á www.mos.is. Einnig er hægt að hringja í Þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525 6700 milli kl. 8 og 16. Þeir sem eiga lögheimili í Mosfellsbæ ganga fyrir. Opið fyrir umsóknir til og með 23. mars næstkomandi. STÖRFIN: • Yfirflokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 23 ára á árinu) • Flokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 20 ára á árinu) • Aðstoðarflokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (18-20 ára) • Flokksstjóri í Þjónustustöð /garðyrkjudeild (lágmarksaldur 20 ára árinu) • Almenn störf í Þjónustustöð /garðyrkjudeild (lágmarksaldur 17 ára á árinu) • Þjónustustörf og sundlaugar- gæsla íþróttamiðstöðvum (lágmarksaldur 20 ára á árinu) • Starf í íþrótta- og tómstunda- skóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 17 ára á árinu) • Yfirumsjón með sumarstarfi fyrir fötluð börn (lágmarksaldur 23 ára á árinu) • Aðstoð við fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 18 ára á árinu) FREKARI UPPLÝSINGAR Á WWW.MOS.IS

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.