Mosfellingur - 14.03.2019, Síða 14
- Dreift frítt í Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós14
MEÐ APPINU EÐA Á NETINU!
Þú getur flýtt fyrir og einfaldað pöntunarferlið
með því að nota appið og vefinn. Þar getur þú
pantað, greitt fyrirfram og fylgst með pöntuninni.
DOMINO’S APPDOMINOS.IS
www.palssonco.is
Náðu lengra
Við aðstoðum stjórnendur við skipulagningu
fjármála og verðmætasköpun
Íþróttaskóli barnanna hefur verið starfrækt-
ur að Varmá síðan árið 1992 og er það Svava
Ýr Baldvinsdóttir sem stýrir skólanum og
hefur gert frá upphafi.
Svava Ýr er íþróttakennari að mennt, hún
hefur þjálfað handbolta hjá Aftureldingu
um árabil og starfað sem einn af öflugustu
sjálfboðaliðum félagsins til margra ára.
Íþróttaskólinn fer fram á laugardagsmorgn-
um og er ætlaður 3, 4 og 5 ára börnum en
námskeiðin standa yfir í 12 vikur bæði að
hausti og vori.
Frá upphafi hefur verið mikil ásókn í skól-
ann og oft hafa færri komist að en viljað.
Skemmtileg og heilbrigð samvera
„Ég hef stýrt íþróttaskólanum í 27 ár
og hef alltaf jafn gaman af því. Með mér á
þessu tímabili hefur starfað fjöldinn allur
af frábæru, metnaðarfullu og skemmtilegu
fólki. Ég hef ekki töluna á þeim fjölda barna
sem hefur sótt skólann en það er gaman að
segja frá því að það er ekki óalgengt að fólk
sem var í íþróttaskólanum sem krakkar er
að koma með sín börn, sem hlýtur að vera
hrós,“ segir Svava hlæjandi.
Íþróttaskólinn hefur það að markmiði
að efla bæði hreyfi- og félagsþroska, kynna
reglur íþróttahússins og stuðla að skemmti-
legri og heilbrigðari samveru á milli barna
og foreldra.
„Tímarnir eru mjög fjölbreyttir og kynni
ég markvisst allar þær íþróttagreinar sem
Afturelding býður upp á. Börnin öðlast góð-
an grunn fyrir áframhaldandi íþróttaiðkun
og ég legg mikla áherslu á að kenna jákvæð
samskipti, samvinnu og held góðum aga.
Svo legg ég auðvitað áherslu á að foreldr-
ar taki vikan þátt og leiki sér með börnun-
um í tímunum.“
Forvarnargildi hreyfingar er mikið
„Uppbygging tímana er alltaf sú sama,
upphitun, aðalþáttur og slökun. Ég fer inn
á margt og reyni að tengja almenna fræðslu
inn í leikinn bæði hvað varðar líkamann,
almenn samskipti og tillitssemi og aga svo
eitthvað sé nefnt. Það eru allir sammála um
að forvarnargildi hreyfingar er mikið og ég
er stolt af íþróttaskólanum og því starfi sem
þar fer fram.
Íþróttaskólinn er öllum opinn og þar
ríkir alltaf gleði og kærleikur,“ segir Svava
Ýr að lokum og tekur fram hversu gefandi
og mikil forréttindi það séu að fá að vinna
með börnunum og foreldrum þeirra.
Svava Ýr Baldvinsdóttir hefur stýrt Íþróttaskóla barnanna í 27 ár • Mikið fjör á laugardagsmorgnum í íþróttahúsinu
Forréttindi að vinna með börnum
Nánari upplýsingar má finna
á heimasíðu Aftureldingar,
www.afturelding.is, eða á Facebook.
íþróttaskóli barnanna
Svava ÝR eR SkólaStjóRi
íþRóttaSkóla baRnanna