Mosfellingur - 14.03.2019, Side 30

Mosfellingur - 14.03.2019, Side 30
Lægri skattur á hoLLustu? Ég get ekki hægt að hugsa um matsölustaðina í Mosfellsbæ. Líklega vegna þess að ég er á flakki um heiminn og upplifi sterkt hvað umhverfið hefur mikil áhrif á heilsufar íbúa. Ég hef farið í hverfi þar sem mikil leitun var að hollum munnbita. Nánast allt sem hægt var að kaupa í þeim var bæði ódýrt og óhollt. Og fólkið sem rölti um þessi hverfi endurspeglaði vöruframboðið. Allt of þungt og óheilbrigt að sjá. Ég hef líka verið í hverfum þar sem hollustan er í fyrirrúmi. Og verðið mannsæmandi. Fólk sem býr í þannig hverfum lítur öðruvísi út. Hreyfir sig öðru- vísi. Þetta skiptir máli. Mjög miklu. Að fólki standi til boða hollur og góður matur á verði sem það ræður við. Ég hef líka farið inn í búðir sem bara moldríkir hafa efni á að versla í. Flottar búðir með hollar og góðar vörur, maður lifandi. En það er ekki leiðin, að hollustan sé bara fyrir þá sem eiga sand af seðlum og að þeir sem búa ekki svo vel verði að sætta sig við óhollustu. Það leiðir bara til enn meiri ójöfnuðar í samfélögum. En hvað er hægt að gera, hvernig fáum við holla og ekki of dýra matsölustaði í Mosfellsbæ? Getum við prófað nýjar leiðir til þess að fá slíka staði í bæjarfélagið okkar? Leiðir sem ekki hafa verið farnar áður. Ættum við kannski að bjóða hollustustöðum lægri leigu, lægri fasteignagjöld, skattaafslátt eða eitthvað annað sem skiptir máli fyrir reksturinn? Þetta er gert á ýmsum stöðum í heiminum, af hverju ekki í Mosfellsbæ? Hvað segir þú, kæri lesandi? Lumar þú á einhverjum hug- myndum? Ef svo, máttu endilega senda mér línu á gudjon@ njottuferdalagsins. is og ég skal koma þeim á framfæri. Minni svo alla á að taka eftir litlu hlutunum í lífinu, ekki æða í gegnum það í stresskasti. Hamingju – og heilsukveðjur! heiLsumoLar gaua - Aðsendar greinar30 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Kæru Mosfellingar! Dagana 7.–21. er vefur samráðs- verkefnisins Okkar Mosó opinn fyrir tillögum íbúa. Með þátttöku í verkefninu geta bæjarbúar haft áhrif á forgangsröðun og úthlut- un fjármagns til smærri nýfram- kvæmda- og viðhaldsverkefna í Mosfellsbæ. Í ár er gert ráð fyrir 35 milljónum króna í framkvæmdirnar og hækkar fjármagnið um 10 milljónir króna milli ára en í mál- efnasamningi Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna var samþykkt að setja meira fjár- magn í lýðræðisverkefnið Okkar Mosó. Verkefnið byggir á hugmyndum um umræðulýðræði, þátttökulýðræði og þátt- tökufjárhagsáætlunargerð og því er ætlað að virkja aðkomu almennings að ákvarð- anatöku við framkvæmdir sem snerta nær- umhverfi sitt. Verkefnið gekk vonum framar árið 2017 en 14% íbúa nýttu kosningarétt sinn. Í ár stefnum við á að gera betur og vonumst eftir 20% kjörsókn. Fyrsta skref verkefnisins er áðurnefnd hugmyndasöfnun en allir íbúar Mosfellsbæjar 16 ára og eldri geta komið með tillögur á því stigi. Skora ég því á íbúa að skila inn hugmyndum á vefnum https://okkar-moso.betraisland.is en Mosfellsbær verður allur eitt svæði bæði í hugmyndasöfnun og kosningu. Árið 2017 komu margar skemmtilegar hugmyndir frá bæjarbúum og urðu 10 þeirra að veruleika, til dæmis fuglaskoðun- artígur meðfram Leirvoginum, blakvöllur á Stekkjarflöt og vatnsbrunnar og loftpumpur á hjólastígum bæjarins. Tökum öll þátt og gerum góðan bæ enn betri. Una Hildardóttir formaður lýðræðis- og mannréttindanefndar Mosfellsbæjar. Nýtum kosningarétt okkar www.fastmos.is Sími: 586 8080 Örugg og góð þjónusta

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.