Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 8
LAND ROVER Discovery 5 SE Nýskr. 5/2017, ekinn 48 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 10.890.000 kr. Rnr. 420016. JAGUAR F-PACE PORTFOLIO Nýskr. 12/2017, ekinn 26 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 8.990.000 kr. Rnr. 420065. BMW 640 D Grand Coupe Nýskr. 5/2014, ekinn 23 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 7.990.000 kr. Rnr. 420044. RANGE ROVER EVOQUE HSE Nýskr. 10/2016, ekinn 16 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.890.000 kr. Rnr. 400181. JAGUAR - LAND ROVER Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík 525 6500 / jaguarlandrover.is Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla. Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag. NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6 LAND ROVER Discovery Sport HSE Nýskr. 7/2015, ekinn 46 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 5.690.000. kr. Rnr. 145166. RANGE ROVER VELAR SDV6 Nýskr. 9/2017, ekinn 15 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 14.990.000 kr. Rnr. 420083. RANGE ROVER SPORT Nýskr. 5/2017, ekinn 61 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 10.900.000 kr. Rnr. 103855. RANGE ROVER SPORT HSE Dynamic Nýskr. 3/2017, ekinn 30 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 14.490.000 kr. Rnr. 420077. E N N E M M / S ÍA / N M 9 3 9 7 9 J a g u a r n o t a ð ir 5 x 2 0 1 5 m a í SPÁNN Þeir fimm Katalónar sem réttað er yfir um þessar mundir fyrir uppreisn, uppreisnaráróður og aðra glæpi og náðu kjöri á spænska þingið í lok apríl fá að fara úr fang­ elsi til þess að sækja innsetningar­ athöfn þann 21. maí. Svo úrskurðaði hæstiréttur Spánar í gær. Kata­ lónarnir þurfa hins vegar að mæta aftur í gæsluvarðhald að athöfn lokinni en þeir hafa verið á bak við lás og slá í meira en ár. Katalónarnir sem um ræðir eru fyrrverandi ráðherrarnir Oriol Junqueras, Raül Romeva, Jordi Turull og Josep Rull ásamt aðgerða­ sinnanum Jordi Sanchez. Þeir eru, auk sjö annarra, ákærðir fyrir ýmsa glæpi í tengslum við þjóðarat­ kvæðagreiðslu og yfirlýsingu Kata­ lóna um sjálfstæði haustið 2017. Sækjendur krefjast mislangra fangelsisdóma yfir ákærðu. Þyngstu mögulegu refsingar krefst lög­ maður öfgaflokksins Vox, allt að 74 ára fyrir meðal annars skipulagða glæpastarfsemi. Ríkissaksóknari krefst allt að 12 ára fyrir uppreisnar­ áróður og saksóknari dómsmála­ ráðuneytisins allt að 25 ára fyrir uppreisn. Lögmenn fimmenninganna fóru fram á það síðasta miðvikudag að hinir nýkjörnu þingmenn yrðu leystir úr haldi svo þeir gætu sinnt þessu nýja starfi og að réttarhöld­ unum yrði frestað þar til hæsti­ réttur fengi leyfi frá þinginu til að halda réttarhöldum áfram. Báru fyrir sig nýfengna þinghelgi. Á þetta féllst hæstiréttur ekki. Dómstóllinn hafði áður hafnað kröfum um að öll tólf ákærðu yrðu leyst úr haldi. Þessar hafn­ anir eru til komnar þar sem dóm­ arar telja að hætta sé á að ákærðu f lýi land. Sú afstaða grundvallast á því að Carles Puigdemont, for­ seti héraðsstjórnarinnar haustið 2017, og aðrir ráðherrar f lúðu til Belgíu skömmu áður en ákærur voru gefnar út. Sanchez, Rull og Turull hafna því alfarið að stíga til hliðar og ætla sér að halda sætum sínum á þingi, að því er heimildarmaður innan fram­ boðs þeirra, Sameinuð fyrir Kata­ lóníu (JxCat), sagði við Reuters í gær. Landskjörstjórn færði fyrrnefnd­ um Junqueras einnig slæmar fréttir í gær. Þessi fyrrverandi varaforseti Katalóníuhéraðs leiðir Evrópu þings­ framboð átta f lokka sem berjast fyrir sjálfstæði frá Spáni í Evrópu­ þingskosningum sem fara fram þann 26. maí. Kjörstjórn í Barcelona hafði gefið leyfi fyrir því að Junqueras og Toni Comín, fyrrverandi ráðherra sem er í sjálfskipaðri útlegð í Belgíu, fengju að taka þátt í sjónvarpskapp­ ræðum sem fram fóru í gærkvöld. Þessu mótmæltu fangelsisyfirvöld á þeim grundvelli að það myndi raska starfsemi fangelsisins að koma upp myndsímtalsbúnaði fyrir Junque­ ras og ákvað landskjörstjórn því að meina honum að taka þátt í kapp­ ræðunum. thorgnyr@frettabladid.is Nýkjörnir þingmenn áfram í fangelsi Deilt við dómarann Réttarhöldin í Madríd halda áfram. Þar máluðu vitni mynd af störfum spænsku lögreglunnar. Sækjendur og verjendur hafa frá því fyrir réttarhöld deilt um beitingu ofbeldis í kringum sjálfstæðisatkvæðagreiðsluna. Verjendur hafa sagt sakborn­ inga ekki hafa staðið fyrir neinu slíku og þar með sé ekki hægt að sakfella fyrir uppreisn eða uppreisnaráróður heldur hafi spænska lögreglan staðið fyrir eina ofbeldinu í kringum kosningarnar. Sækjendur hafa hins vegar haldið því fram að ákærðu hafi kynt undir ofbeldi af hálfu almennra borgara. Skemmtikrafturinn Jordi Pesarrodona sagði lögreglu hafa gengið í skrokk á sér á kjördag. Spænskir lögregluþjónar hafi barið hann í klofið með kylfum. Til illdeilna kom á milli Benet Salellas, verjanda aðgerðasinn­ ans Jordis Cuixart, og Manuel Marchena dómara þegar heim­ spekingurinn Marina Garcés gaf vitnisburð. Marchena stöðvaði Garcés þegar hún kallaði atkvæðagreiðsluna „magnaða“ og sagði tímasóun að hlusta á persónulegar skoðanir hennar. Salellas mótmæltu þessu og sagði nauðsynlegt að hlýða á skoðanir vitna rétt eins og dómarar hlustuðu á skoðanir lögregluþjóna. Ákærðir Katalónar, ný­ kjörnir á spænska þingið, fá að sækja innsetningar­ athöfn en þurfa svo að mæta aftur í fangelsi. Hæstiréttur hafnar kröfu um að réttarhöldum verði frestað þar til þingið gefur samþykki á grundvelli nýfeng­ innar þinghelgi. Deilt við dómarann í Madríd. Oriol Junqueras, nýkjörinn þingmaður, í dómsal í febrúar ásamt öðrum sakborningum. NORDICPHOTOS/AFP 1 5 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F F -5 3 4 0 2 2 F F -5 2 0 4 2 2 F F -5 0 C 8 2 2 F F -4 F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.