Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 5 . M A Í 2 0 1 9 Fréttablaðið í dag SKOÐUN Ásmundur Einar Daðason skrifar um alþjóðadag fjölskyldunnar. 10 SPORT Yfirburðir Mercedes Benz eru algjörir í Formúlu 1. 13 MENNING Mikilvægt að fara með list sína út fyrir landsteinana, segir Brynhildur Björnsdóttir. 18 LÍFIÐ Barþjónar landsins taka þátt í keppninni um besta bar- þjón Íslands. 22 PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK l  MARKAÐURINN *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Eurovisionskraut og búningar Finndu okkur á Nautaborgarar 4x90 gr m/brauði 699KR/PK ÁÐUR: 998 KR/PK FRÁBÆRIR Í EUROVISION VEISLUNA! -30% HVALVEIÐAR Af þeim sem tóku afstöðu eru 38,2 prósent fylgjandi banni við hvalveiðum en 36,3 pró- sent eru því andvíg. Um fjórðungur er hvorki fylgjandi né andvígur. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið og fréttablaðið.is. Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í febrúar síðastliðnum reglugerð sem heimilar veiðar á hrefnu og langreyði til ársins 2023. „Mér f innst þetta vera mjög áhugaverðar niðurstöður. Við sjáum þarna ákveðinn kynslóðamun en þetta er í takt við það sem maður hefur fundið,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Þorgerður Katrín hefur lagt fram tillögu á Alþingi um að gerð verði könnun á viðhorfi almennings í helstu viðskiptalöndum Íslands til áframhaldandi hvalveiða. „Ég vona að þessi vanhugsaða ákvörðun Kristjáns Þórs undir for- ystu ríkisstjórnar Vinstri grænna verði ekki til þess að það verði varanlegur orðsporsskaði af þessu,“ segir Þorgerður Katrín. Langmestur stuðningur við að hvalveiðar verði bannaðar mælist í yngsta aldurshópnum, 69 prósent þeirra sem eru á aldrinum 18-24 ára eru fylgjandi banni en aðeins tíu prósent því andvíg. Þá styðja tölu- vert f leiri í aldurshópnum 25-34 ára bann við hvalveiðum en eru því andvíg. Í öllum öðrum aldurshópum eru andstæðingar banns við hvalveið- um hins vegar f leiri en stuðnings- menn. Mesta andstaðan við bannið mælist í elstu aldurshópunum. Um helmingur þeirra sem eru eldri en 55 ára er andvígur banni en 28 pró- sent fylgjandi. „Unga fólkið skynjar þetta. Það skynjar hjartslátt samtímans og vill ekki þessar dýrapíningar sem ríkis- stjórnin er að standa fyrir. Það hefði þurft að segja mér þetta tvisvar og þrisvar að hvalveiðar myndu hefjast aftur undir forystu Vinstri grænna,“ segir Þorgerður Katrín. Konur eru mun líklegri til að styðja bann við hvalveiðum en karl- ar. 45 prósent kvenna eru hlynnt banni við hvalveiðum en 22 prósent andvíg. Um þriðjungur kvenna er hins vegar hvorki hlynntur né and- vígur banninu. Helmingur karla er andvígur banni við hvalveiðum, tæpur þriðjungur er fylgjandi banni og tæpur fimmtungur er hvorki hlynntur né andvígur. Þá er stuðningur við hvalveiði- bann talsvert meiri á höfuðborgar- svæðinu en á landsbyggðinni. Könnun Zenter rannsókna var netkönnun framkvæmd 10. til 13. maí síðastliðinn. Alls voru tvö þúsund manns í úrtakinu og var svarhlutfall 50 prósent. Af þeim sem svöruðu tóku tæp 96 prósent afstöðu til spurningarinnar. – sar Unga fólkið vill banna hvalveiðar Íslendingar eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort banna eigi hvalveiðar. Yfirgnæfandi meirihluti ungs fólks er hlynntur banni. Formaður Viðreisnar vonar að veiðarnar skaði ekki orðspor Íslands. FERÐAÞJÓNUSTA Ferðaþjónustan finnur fyrir áhrifunum af falli WOW air. Framkvæmdastjóri Kynnisferða segir samdráttinn í apríl nema 34 prósentum milli ára. Apríl hafi ekki verið jafn þungur fyrir rútufyrir- tæki í um átta ár. Framkvæmda- stjóri fjárfestingafélagsins Eldeyjar segir að ferðaþjónustan sé orðin kaupendamarkaður. Stjórnendur fyrirtækja í greininni séu tilbúnir að ræða samvinnu og samruna. Þá var aðsókn í ísgöngin Into the Glacier í Langjökli um sextíu pró- sentum minni á fyrsta fjórðungi ársins en áætlanir Into the Glacier höfðu gert ráð fyrir samkvæmt heimildum Markaðarins. Óvíst er hvort kaup Arctic Adventures á Into the Glacier muni ganga eftir. – þfh / sjá Markaðinn Róðurinn þyngri í ferðaþjónustu n Hlynnt/ur 38,2% n Andvíg/ur 36,3% n Hvorki né 25,5% ✿ Könnun Hversu hlynnt/ur eða andvíg/ur ert þú því að hvalveiðar verði bannaðar við Ísland? Halldór Fjöllistahópurinn Hatari, hinir andkapítalísku fulltrúar Íslands í Eurovision, buðu upp á mikla f lugeldasýn- ingu á sviðinu í Tel Avív í gær. Þeir komust áfram á lokakvöldið og er það í fyrsta skipti í fjögur ár sem Ísland tekur þátt í úrslitum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Allt samkvæmt áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP 1 5 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F F -2 B C 0 2 2 F F -2 A 8 4 2 2 F F -2 9 4 8 2 2 F F -2 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.