Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 34
ÞETTA ER MJÖG GOTT TÆKIFÆRI FYRIR HÓPANA ÞRJÁ TIL AÐ KOMA SÉR OG LIST SINNI Á FRAMFÆRI. Í maí bjóðum við fjölskyldufólk sérstaklega velkomið og veitum 25% afslátt af hefðbundnum ferðum Ævintýraleg fjölskylduferð Í Raufarhólshelli Komið og njótið þessa stórkostlega nátturufyrirbæris í öruggu umhverfi með leiðsögn. Til að nýta sér þetta tækifæri þarf að bóka á netinu og nota afsláttarkóðann hér að neðan. Börn 11 ára og yngri fá frítt inn! Kóði: Fjolskylda19 Bókanir og nánari upplýsingar www.thelavatunnel.is Aðeins 35 mín. frá Reykjavík Þrjár íslenskar sýningar munu taka þátt í Brigh­ton Fringe sem er ein stærsta jaðarlistahátíð Bretlands. Sýningarnar voru allar á Reykjavík Fringe Festival síðastliðið sumar og voru valdar af Nordic Fringe Net­ work til að taka þátt í Nordic Season sem fer fram í fyrsta sinn í ár á Brig­ hton Fringe hátíðinni. Þessar sýn­ ingar eru kabarettsýningin Ladies and a Gentleman með Dömum og herra, uppistandssýningin I Wouldn’t Date Me Either með Jono Duffy og sýndarveruleikhús­ sýningin A Box in the Desert eftir Huldufugl. Fulltrúar jaðarlista Brynhildur Björnsdóttir er hluti af hópnum Dömur og herra. „Hópur­ inn varð til á námskeiði í Kram­ húsinu hjá Margréti Erlu Maack sem er nú ein af hópnum og þar er einn herra og þess vegna heitum við Dömur og (einn) herra. Sýning okkar samanstendur af stuttum atriðum með ákveðna vísun í kabarettformið og tónlist og dans eru áberandi. Við leggjum áherslu á að fagna líkamanum á jákvæðan og munúðarfullan hátt án þess að ganga yfir mörk eða ögra. Við verðum með tvær sýningar í stóru og f lottu leikhúsi, The Old Market Theatre, þar sem allar íslensku sýningarnar verða. Jonatahan Duffy verður með uppistand á sama stað. Hann er Íslendingum að góðu kunnur og það má segja að hann hafi runnið saman við land og þjóð. Svo er mjög áhugaverð stafræn sýning, A Box in the Desert eftir Huldufugl. Þar er einungis einn áhorfandi sem fer inn í eins konar kassa sem er þó ekki til nema í höfð­ inu á honum. Síðan er hann leiddur í gegnum ákveðnar þrautir þar sem hann þarf að horfast í augu við sjálfan sig. Það er mjög sérstök og spennandi sýning enda seldist upp á hana fyrsta daginn.“ Norræna hátíðin á Brighton Fringe hófst síðastliðinn mánudag og lýkur laugardaginn 18. maí. „Hún er afrakstur samstarfs norrænna jaðarlistahátíða sem Reykjavík Fringe Festival er hluti af. Reykjavík Fringe Festival var haldin í fyrsta skipti í fyrra og tókst gríðarlega vel og verður haldin aftur í byrjun júlí. Það er mikilvægt og skemmtilegt fyrir Norðurlöndin að mæta með fulltrúa sína í jaðarlistum á þessa risastóru hátíð, Brighton Fringe. Þar fá listamenn tækifæri til að kynna sig, sýna sig og sjá aðra og skapa tengsl,“ segir Brynhildur. Hátíðarbragur og stemning Fringe­hátíðir eru þekkt fyrirbæri víða um heim og draga að fjölda ferðamanna, listamanna, bókara, framleiðenda, leikstjóra, blaða­ manna og gesta alls staðar að, svo þetta er mjög gott tækifæri fyrir hópana þrjá til að koma sér og list sinni á framfæri. „Þetta er óskap­ lega góð og skemmtileg reynsla,“ segir Brynhildur. „Fyrir mörgum árum var ég þátttakandi á Edin­ borgar Fringe­hátíðinni og fór þangað í fyrra í nostalgíuferð. Þar er mikill hátíðarbragur og stemn­ ing og áhersla á uppistand, drag, burl esque, kabarett, sirkusatriði og spuna, þessar svo kölluðu jaðar­ listgreinar sem smellpassa kannski ekki inn í þau form sem fyrir eru í leikhúsinu heldur eru oft meira list augnabliksins. Og með slíkar listgreinar eins og aðrar er mikil­ vægt að fá að fara með list sína út fyrir landsteinana og prófa hana á öðrum.“ Mikilvægt að fara með list sína út fyrir landsteinana Þrjár íslenskar sýningar taka þátt í einni stærstu jaðarlista- hátíð Bretlands. Mikilvægt og skemmtilegt fyrir Norðurlöndin að mæta með fulltrúa sína, segir Brynhildur Björnsdóttir. „Listamenn fá tækifæri til að kynna sig, sýna sig og sjá aðra og skapa tengsl,“ segir Brynhildur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Box in the Desert. Það seldist upp á sýninguna fyrsta daginn. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Líð á frettabladid.is allar um fólk, tísku menningu, heilsu og margt eira. Fylgstu með á frettabladid.is/lid 1 5 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 5 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F F -5 8 3 0 2 2 F F -5 6 F 4 2 2 F F -5 5 B 8 2 2 F F -5 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.