Fréttablaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 20
Eurovision-keppnin í ár fer fram í Expo-höllinni í Tel Avív sem hér í Ísrael er kölluð
Ganei HaTaarucha. Hún rúmar um
7.300 manns. Höllin er í norður-
hluta borgarinnar og er íslenski
hópurinn um 25 mínútur að keyra
þangað frá hótelinu. Leiðin er ákaf-
lega falleg, liggur meðfram strand-
lengjunni og í gegnum Yarkon Park.
Það tekur aðeins um 35 mínútur
að hjóla þangað, en hjólreiðar eru
mjög vinsælar hér í Tel Avív.
Borgin hefur gert 70 kílómetra
af hjólastígum og þeim fjölgar
stöðugt. Þá er hægt að leigja sér
rafmagnshlaupahjól sem er nánast
vinsælla en fjölmargir þeysa um
göturnar á þessum hjólum.
2,5
milljónir gesta koma í
höllina á hverju ári.
8
risasalir eru í höllinni.
25
þúsund fermetrar er
höllin að stærð.
Keppnishöllin er hönnuð af
Aryeh Elhanani og var hún vígð
árið 2015. Árið 2010 var gamla
höllin, sem var byggð árið 1959,
rifin og hafist handa við að reisa
nýja. Hér hafa engar smástjörnur
stigið á svið: Iggy Pop, Nine Inch
Nails, Thirty Seconds to Mars, Lady
Gaga, Pitbull, David Guetta, Avicii,
Megadeth, Moby, Suede og síðust
en ekki síst Roxette.
Í lok apríl var Evrópumótið í
júdó haldið í höllinni og nánast
um leið og Eurovision-hurðinni
verður skellt aftur hefst ráðstefnan
Security Israel sem er, miðað við
kynningarmyndir hér í höllinni,
engin grínhátíð. Þar eru byssur og
tölvur og fingraför í forgrunni og
fátt um grín.
Sviðið er hannað af Florian
Wieder en hann kom einnig nálægt
sviðshönnun söngvakeppninnar
árin 2011, 2012, 2015, 2017 og 2018.
Þetta er einhvers konar demantur
með áhorfendasvæði fyrir framan.
Í höllinni eru átta salir og 20 ráð-
stefnusalir. Blaðamannaherbergið
er gríðarlega stórt og þar er fínasta
stemning og stuð.
Veðrið í Tel Avív hefur verið með
besta móti. Um 25 gráður mæla
snjallsímarnir en það er eins og
hitinn sé um 50 gráður þegar sólin
hellir geislum sínum yfir okkur.
Loftkælingin í höllinni er keyrð á
fullu og kvarta blaðamenn sáran
yfir kulda – sem er hálf öfugsnúið.
Vinnuaðstaða fyrir fjölmiðla-
menn er til fyrirmyndar. Hér er
góð nettenging og margir metrar
af framlengingarsnúrum sem er
mikilvægt. Hér er hægt að fá vatn
ókeypis en fyrir bjór og mat þarf að
borga sem flestir gera með glöðu
geði enda er maturinn hérna í Tel
Avív algjörlega til fyrirmyndar.
Ingólfur
Grétarsson,
sérlegur út-
sendari Frétta-
blaðsins, tyllir
sér á trébekk
í höllinni með
einn ískaldan
ísraelskan bjór
sem slekkur
allan þorsta í
hitanum í Tel
Avív. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/BENEDIKT
Þjónustuborðið þar sem sjálfboðaliðar eru hjálpsamir við gesti og gangandi.
Ingólfur mætir til vinnu. Á skjánum sést Hatari á sviðinu í keppnishöllinni.
Tel Avív hefur tekið gestum opnum örmum og er borgin í sannkölluðu sól-
skinsskapi. Heimamenn rétta vitlausum blaðamönnum hjálparhönd.
SKRIFA FRÁ TEL AVIV
EUROVISION
Benedikt Bóas
benediktboas@frettabladid.is
Ingólfur Grétarsson
ingolfurg@frettabladid.is
SJÁVARBARINN FAGNAR
12 ÁRA AFMÆLI
Í tilefni afmælisins er nú tilboð á hádegishlaðborðinu
og býðst það á sama verði og við opnunina fyrir tólf árum.
Innifalið er:
Sjávarréttasúpa
dagsins, heitir og
kaldir fiskréttir,
kjötréttur, salat-
bar, smáréttir,
kaffi og kökur.
Sjávarbarinn | Grandagarði 9 | sjavarbarinn.is
AÐEIN
S
1690
.-
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . M A Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
1
5
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
F
-4
9
6
0
2
2
F
F
-4
8
2
4
2
2
F
F
-4
6
E
8
2
2
F
F
-4
5
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K