Morgunblaðið - 11.01.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.01.2019, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar Bækur Bókaveizla Hjá Þorvaldi í Kólaportinu 30% afsláttur af bókum í janúar Opið laugardag og sunnudag kl. 11-17 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Félagsfundur Almennur félagsfundur Vbf. Þróttar verður haldinn í húsi félagsins, Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 24. janúar n.k. kl. 20.00. Sjórnin Tilboð/Útboð Skútustaðahreppur Breyting á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 Söfnun skólps, hreinsun og nýting á Hólasandi Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 26. september 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn Skútustaðahrepps leggur til að breyting verði gerð á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 þannig að gert verði ráð fyrir aðstöðu fyrir söfnun salernisskólps í lokaðan geymslutank á Hólasandi og nýtingu þess til uppgræðslu á sandinum. Fyrirhuguð aðalskipulagsbreyting nær til aðstöðu fyrir söfnunar- og geymslutank með tilheyrandi búnaði á Hólasandi. Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni frá og með fimmtudeginum 10. janúar 2018 til og með fimmtudeginum 21. febrúar 2018. Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Skútustaðhrepps: http://www.skutustadahreppur.is/ undir ,,Skipulagsauglýsingar“. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 21. febrúar 2018. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir. Guðjón Vésteinsson Skipulagsfulltrúi Tilkynningar Nýskráningar vegna greiðslna vegna útlána á bókasöfnum Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 með síðari breytingum og reglur nr. 323/2008. Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á sérstökum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu, https://rsi.is/bokasafnagreidslur /umsoknareydublad/ Umsóknarfrestur er til 31. janúar. Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa skilað skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur. Ný verk eru sjálfkrafa færð á skrá höfundar. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Bíó í miðrými kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30-15.20. Gönguferð kl. 9.30. Söngfuglarnir kl. 13. Bók- menntaklúbbur kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Innipútt opið. Hádegismatur kl. 11.40- 12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, velkomin. S. 535-2700. Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15. Dalbraut18-20 Stólaleikfimi með Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist, ef óskað er. Stólajóga byrjar fimmtudaginn 17. janúar kl. 11. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13. Gleðigjafarnir kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíómyndin Diana kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju kl. 9-10, botsía kl. 10.15. Hádegis- matur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs). Myndlistarnám- skeið hjá Margréti Zóphoníasdóttur. Zumbadansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13-13.50, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, Hæðargarðsbíó kl. 14. Allir velkomnir. Nánari upp. í síma 411-2790. Korpúlfar Sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, Bridgehópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Vöfflukaffi frá kl. 14.30 til 15.30 í dag í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingó kl. 14, bókasafnshópurinn kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln- um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Nk. þriðju- dag. 15. janúar kl. 13 koma nemendur úr 5. bekk Mýrarhúsaskóla og spila með okkur bingó. Allir velkomnir. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Dansað sunnudagskvöld 13. janúar kl. 20-23. Hljóm- sveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. ZUMBA Gold, byrjun 14. janúar kl. 9.30. Bjóðum nýja iðkendur velkomna í skemmtilegan hóp. ENN LAUST PLÁSS STERK OG LIÐUG, leikfiminámskeið fyrir dömur og herra byrjar 14. janúar kl. 11.30. Vesturgata 7 Sungið við flygilinn frá kl. 13-14 með Gylfa Gunnars- syni. Kaffi kl. 14-14.30. 200 mílur með morgun- nu sé rusl úti á götu sem er ekki sjaldan. Allar ferðirnar sem við fórum saman í til Vöðlavíkur eru ógleym- anlegar. Þar fékk ég að sitja undir stýri, hanga aftan á bílnum á vara- dekkinu á meðan þú keyrðir yfir ár og sanda, vaða í sjónum og tína svo rekavið sem við kveiktum svo upp í varðeldi með. Þar var nestið svo borðað, eða pylsur grillaðar. Það var nú ekki hættulaust að hanga aftan á bílnum en það gerði það svo spennandi. Oft var maður skít- hræddur með þér. Eins og þegar ég var að gefa Vigdísi brauð í hest- húsinu og fór með lúkurnar of langt upp í hana sem varð til þess að puttinn á mér var næstum því bit- inn af. Þú reddaðir því með að binda pokann utan af brauðinu ut- an um puttann á mér! Ekki má gleyma þegar við vorum að rölta niður Hólmanesið og ég rúllaði nið- ur alla hlíðina með mörg hundruð kílóa grjót á eftir mér sem ein- hverra hluta vegna fór ekki yfir mig. Atvikin eru óteljandi enda varstu algerlega óþreytandi með okkur strákana. Það voru líka ferðir sem þú dróst okkur í sem okkur þótti alls ekki spennandi. Þegar maður lítur til baka þá gáfu þær manni helling, allaballaferðirnar með Hjörleifi Guttormssyni og gamla fólkinu. Maður komst ekki hjá þeim af því afi Ölver sagði að við ættum að fara. En maður fór víða í þessum ferðum og ég er alveg viss um að maður væri ekki búinn að sjá svona mikið af Austurlandinu ef maður hefði aldrei farið í þessar blessuðu allaballaferðir. Ekki má gleyma öll- um þessum helgum sem maður eyddi með þér í að gróðursetja tré. Það fannst okkur ekki spennandi en þetta kenndi manni margt. Allt sem þú gerðir, allt sem þú áttir og allt sem þú klæddir þig í þótti manni töff. Við Bóas héngum t.d. tímunum saman við að fara í gegnum skápana þína, mátandi frystihússloppa, hatta, jakka og húfur svo fátt eitt sé nefnt. Allir jepparnir sem þú áttir fannst manni líka svakalega flottir. Það sem gerði þá líka að þínum var að þegar maður setti miðstöðina í gang fékk maður vægt kjaftshögg frá harðfisksmylsnu sem miðstöðin blés í andlitið á manni! Talandi um harðfiskinn þá veit ég ekki hversu mörgum stundum maður eyddi með þér í eldhúskróknum borðandi harðfisksmylsnu með skeið og vænni klípu af smjöri, almennileg máltíð það. Þökk sé þér þá eru bara góðar minningar sem hellast yfir mann þegar maður á ekkert nema mylsnu af harðfisk eftir í pokanum. Sakna þín elsku afi. Andri Freyr Viðarsson. Það var blístrað í útiganginum og þá vissum við bræðurnir að afi Ölver væri kominn í heimsókn. Og hann sótti okkur heim í Reyðar- fjörðinn stundum nokkrum sinnum í viku öll okkar æsku- og unglings- ár. Þessi glæsilegi og uppátækja- sami maður var hinn fullkomni afi; endalaus ævintýri sem hann bauð manni upp á sem og tækifæri til að vaxa og verða að manni. Það var nánast ekkert sem hann leyfði manni ekki að taka þátt með sér í. Einnig var hann hlýr, fyndinn, stríðinn og fylginn sér. Afi var mér alltaf mikill innblást- ur og lærifaðir. Hann studdi mig og aðra í svo mörgu. Gaf mér flautur, nótnabækur og mætti á tónleika sem ég spilaði á. Heima hjá okkur bað hann mig að leika fyrir sig lög, hann gætti þess að lestri mínum og skrift miðaði áfram og reyndi að kenna mér að reikna. Það var líkt og hann byggi yfir fordómaleysi. Má vera að hann hafi haft einhverja eins og við öll, en hann gætti þess að hafa slíkar pæl- ingar aldrei uppi við okkur krakk- ana. Það var einhvern veginn eins og allt væri gott eða skiljanlegt og fjölbreytileiki mannlífsins væri eitthvað sem við ættum öll að virða og baða okkur upp úr. Það opnaði huga minn mikið. Ég kunni líka vel að meta þegar hann stal manni yfir á Eskifjörð til að taka til hendinni í hesthúsinu eða í heyskap. Þannig var það allt árið um kring. Stundum vantaði hann bara einhvern með sér í reið- túr. Og líka, ef hann var að keyra firðina vegna fiskmatsvinnu sinn- ar þá var manni rænt líka. Það var stoppað á ýmsum bryggjum og við ýmsar fiskvinnslur og drepið á bílnum. „Ekki fara langt, Birkir minn.“ Svo fékk ég að valsa þarna um allt, skoða og tala við ókunnuga. „Þetta er strákurinn hans Ölvers“ og þar með var það ákveðið. Oft vildi maður bara vera nálægt honum og þessu fólki til að hlusta á það tala. Hann átti vini alls staðar. Hann var maður augnabliksins. Stundum kom hann heim til okkar með litlum fyrirvara og tilkynnti að við værum að fara í náttúruna. Sækið hlýjar peysur og vatnsheld- an skóbúnað. Það má engan tíma missa. „En afi, Baldur er að leika við okkur...“ Ekkert mál, tökum hann bara með! Þannig að oft voru annarra manna börn, sem hann var kannski að sjá í fyrsta skipti, komin í svaðilför með okkur. Hon- um fannst það fullkomlega eðli- legt. Öll ferðalögin í Vöðlavík, Krossanes, hálendið, firði og dali Austurlands og víðar. Vöðlavíkur- ferðirnar voru samt bestar. Þá fór oft stór hluti fjölskyldunnar með eða vinir okkar bræðra. Sögur sagðar, matar notið á gamla mát- ann og fyrir okkur kynntir ýmsir töfrar svæðisins og við áttum allt- af að fylgjast vel með dýrunum, hlusta á þau. Vera út í veðrinu. Fanga fisk. Læra nöfn á plöntum og grjóti af ýmsu tagi. Örnefni og kennileiti með nöfn, það yrðum við að læra. Alltaf fengum við að keyra jeppana hans og djöflast í talstöðinni. Fullorðinn ákvað ég að eyða sumrinu 2009 heima hjá afa. Það var dýrmætur tími líka. Ekki löngu síðar fór hreystin sem hann var frægur fyrir að fjara út. Það er mikill sjónarsviptir að afa, fyrir fjölskyldu hans og Austfirðinga alla. Takk fyrir allt, elsku hjartans afi. Birkir Fjalar Viðarsson. Genginn til hinztu hvílu er góð- ur drengur og gegnheill. Þegar ellin sækir hart að mönnum verð- ur hvíldin býsna kær. Fáein fá- tækleg þakkarorð flyt ég í dag. Mynd hans Ölvers er ljóslifandi í muna mér, síðustu samfundir voru eins og oft áður ljómandi góðir, við gengum sömu þjóðmála- götuna og glöddumst yfir sam- fylgdinni. Það var alltaf hressandi að hitta þennan vaska dreng og fá að eiga við hann orð. Það var raunar býsna oft meðan ég var að vasast í þjóðmálunum. Ekki vantaði orð- kynngina, ef því var að skipta, ein- arður í orðum, ötull í verkum. Hann gat verið gagnrýninn en sanngjarn samt, slíkir liðsmenn voru ómetanlegir, því „vinur er sá er til vamms segir“. En hann sýndi manni líka einlæga vináttu og hlýju enda var hún honum svo eðlislæg. Það var líka alltaf gott að finna handtak hans, bæði verm- andi og hressandi svo sannarlega. Ölver var um árabil í forystu- sveit eskfirzkra sósíalista og hann var einlægur fylgjandi Vinstri- grænna, alltaf vel til vinstri. Hann var afar vinsæll meðal vinnu- félaga, Skafti mágur minn bar þar órækast vitni og hans dómi var alltaf hægt að treysta. Ölver var maður verka og vinnu, röskur og verklaginn mjög, honum sýndur trúnaður og traustið brást aldrei. Ég kveð Ölver, minn góða fé- laga, fyrir hans gjöfulu fylgd ár- anna, það er gott að eiga slíkan fé- laga sem bæði lofar það sem vel er gert og liggur ekki á skoðun sinni ef miður þykir, hreinskilni hans var mér hugumkær. Megi hann hvíla í friði eftir annasaman dag. Við Hanna sendum afkomend- um hans okkar innilegustu sam- úðarkveðjur við fráfall mikils öðlings. Helgi Seljan. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.