Morgunblaðið - 11.01.2019, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
ÚTSALAOkkar frábæra
50%
AFSLÁTTUR
af öllum vörum
Ég hlakka til að eiga langa helgi með systrum mínum og mökumokkar í Glasgow en þangað ætlum við meðal annars til aðhalda upp á afmælið mitt. Það er alltaf gaman að skreppa
öðru hverju út fyrir landsteinana, í sól eða borg, og skapa góðar
minningar,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
sem er 47 ára í dag.
Íris tók við starfi bæjarstjóra síðasta sumar. Fyrstu mánuðina í
starfi segir hún hafa verið annasama enda margt nýtt að læra. „Gerð
fjárhagsáætlunar tók sinn tíma og eins er alhliða hagsmunagæsla fyr-
ir bæinn gagnvart ríkisvaldinu stór hluti af starfinu. Þar vega heil-
brigðis- og samgöngumálin þyngst. Svo styttist til dæmis í að hér
verði opnað nýtt sjávardýrasafn þar sem tveir mjaldrar frá Kína
verða í aðalhlutverki,“ segir Íris, sem var grunnskólakennari um
langt árabil. Þá var hún formaður ÍBV 2015-2018.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum. Það er líka býsna
merkilegt hvað við stöndum okkur vel í íþróttum í ekki stærra bæjar-
félagi. ÍBV á lið í efstu deild karla og kvenna bæði í handbolta og fót-
bolta og bæjarlífið í Eyjum snýst raunar talsvert um íþróttirnar og
starfið sem þeim tengist. Störfin sem ég hef fyrst og fremst sinnt síð-
ustu árin – kennslan, forysta í íþróttafélagi og nú stjórnmálin – eru
allt verkefni sem ganga út á mikil samskipti við fólk og að reyna að
finna góðar lausnir sem eru í þágu fjöldans,“ segir Íris sem er gift Ey-
steini Gunnarssyni og eiga þau þrjú börn samtals. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Bæjarstjóri Bæjarlífið snýst talsvert um íþróttir, segir Íris.
Finna góðar lausnir
í þágu fjöldans
Íris Róbertsdóttir er 47 ára í dag
K
ristín Einarsdóttir
fæddist 11. janúar
1949 í húsi við Kára-
stíg í Reykjavík en
ólst upp í Keflavík.
„Ég var í sveit í Efri-Hrepp í
Skorradalshreppi hjá Guðmundi
föðurbróður mínum og konu hans
Gyðu Bergþórsdóttur en þau voru
nýtekin við búinu af ömmu og afa.“
Kristín tók landspróf frá Gagn-
fræðaskólanum í Keflavík, stúdents-
próf frá Menntaskólanum á Laugar-
vatni (1969), BS í líffræði frá HÍ
(1975), cand. real. í lífeðlisfræði frá
Háskólanum í Osló (1979) og MS í
viðskiptafræði frá HÍ (2002 og
2017).
Hún starfaði við kennslu og vís-
indastörf í HÍ þangað til hún var
kjörin á þing fyrir Kvennalistann
(Reykjavíkurkjördæmi) árið 1987 og
Kristín Einarsdóttir, lífeðlisfræðingur og fv. alþm. – 70 ára
Fjölskyldan Kristín, Kristján Már, börn, tengdabörn og barnabörn stödd í Úthlíð 2014.
Hefur alltaf verið í
skemmtilegum störfum
Að Kvíum í Jökulfjörðum Kristín ásamt félögum í gönguhópi sem hefur
ferðast saman innanlands á hverju ári frá 1993. Hér í ferð frá 2017.
Ísafjörður Auður Kristjánsdóttir
fæddist 12. apríl 2018 kl. 7.58 á
Ísafirði. Hún vó 3.885 g og var 52
cm að lengd. Foreldrar hennar eru
Hólmfríður Bóasdóttir og Krist-
ján Óskar Ásvaldsson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.