Morgunblaðið - 11.01.2019, Side 10
Svona er að vera í 10. bekk Heimild: Rannsóknin Heilsa og lífskjör skólanema á Íslandi
70,5% segjast finna fyrir nokkru eðamiklu álagi vegna skólanámsins
65,4% finnst kennurunumvera annt um sig
39,1%
finnur fyrir depurð
vikulega eða oftar
38% eiga í erfiðleik-
um með svefn vikulega
eða oftar
2,9% eru lagðir í eineltivikulega eða oftar
8,8% hafa neyttkannabisefna12% hafa tekiðtóbak í vörina
35,5% hafa reyktrafrettur 29,4%hafa drukkið áfengi
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Rúmur þriðjungur nemenda í 10. bekk
grunnskólans hefur reykt rafrettur,
12% þeirra hafa notað tóbak í vörina,
30% hafa drukkið áfengi og 13% orðið
mjög drukkin. Um 9% hafa reykt
kannabis. Meirihluti krakkanna finnur
fyrir væntumþykju frá kennurum sín-
um og yfir 70% segjast finna fyrir tals-
verðu álagi vegna skólanámsins.
Þetta er meðal þess sem fram kem-
ur í niðurstöðum nýrrar rannsóknar
um heilsu og lífskjör skólanema á Ís-
landi. Hún er gerð á vegum Rannsókn-
arstofu í tómstundafræðum við Há-
skóla Íslands og er
íslenskur hluti al-
þjóðlega verkefn-
isins Health be-
haviour in
school-aged child-
ren (HBSC) sem
unnið er að til-
stuðlan Alþjóða-
heilbrigðisstofn-
unarinnar, WHO.
Rannsakaðir voru
hagir grunnskóla-
nemenda í 6., 8. og 10. bekk og spurt
um þætti eins og vímuefnaneyslu, líð-
an, mataræði, hreyfingu og kynlíf.
Ársæll Már Arnarson, prófessor á
Menntavísindasviði Háskóla Íslands,
hafði umsjón með rannsókninni. Hann
segir að margt standi upp úr þegar
niðurstöðurnar séu skoðaðar. „Það er
augljóst að líðan unglinga er verri
núna en hún hefur nokkurn tímann
verið áður. Þróunin er ekki í rétta átt.“
Svipuð vanlíðan hjá fullorðnum
Ársæll segir að líklega séu margir
þættir sem skýri þetta. „Hugsanlega
er þetta streitan í samfélaginu, við
sjáum mikil merki um vanlíðan hjá
fullorðnu fólki sem kemur út sem kuln-
un, kvíði, streita og þunglyndi. Líðan
krakkanna er líklega svipuð, en birt-
ingarmyndin er önnur. Í þessu sam-
bandi skulum við líka hafa í huga að
auðvitað voru líka til kvíðnir krakkar
fyrir einhverjum áratugum. En það
var lítið verið að skoða það og krakkar
höfðu heldur ekki sömu tækifæri til að
tjá sig um líðan sína og krakkar í dag. Í
dag fá börn og unglingar meira svig-
rúm til að tjá sig um líðan sína,“ segir
Ársæll og bætir því við að það sé góð
þróun.
Í rannsókninni kemur m.a. í ljós að
eftir því sem nemendurnir eldast
borða þeir síður morgunmat. Næstum
því einn af hverjum fimm 10. bekk-
ingum borðar ekkert á morgnana, en
hlutfallið er helmingi lægra í 6. bekk.
Neysla á orkudrykkjum eykst talsvert
með aldri unglinganna og um fjórð-
ungur nemenda í 10. bekk drekkur
slíka drykki einu sinni eða oftar í viku.
Munur á milli landshluta
Rúm 7% nemenda í 6. bekk hafa
neytt áfengis, um 14% nemenda í 8.
bekk og 29,4% í 10. bekk. Hærra hlut-
fall 10. bekkinga á Reykjanesi hefur
notað kannabisefni en jafnaldrar
þeirra annars staðar á landinu, lands-
meðaltalið er 8,8% en á Reykjanesi er
það 11%. 2,3% segjast hafa notað efnin
oftar en 30 sinnum. Um 4.200 nem-
endur stunda nám í 10. bekk og því má
álykta að hátt í 100 nemendur á síðasta
ári grunnskóla séu í alvarlegri kanna-
bisneyslu, sé staðan svipuð í ár og hún
var í fyrra. Spurður um þann mun sem
er á milli landshluta segir Ársæll ýmis-
legt koma þar til. Sums staðar sé
ástæðan einfaldlega eðlileg sveifla, þar
séu færri krakkar á þessum tiltekna
aldri og hver og einn vegi þá meira en í
stærri landshlutum. „En við höfum séð
tiltekna tilhneigingu til að höfuðborg-
arsvæðið stendur betur en lands-
byggðin að mörgu leyti,“ segir hann.
Í niðurstöðunum kemur fram að
nemendur í 10. bekk á Norðurlandi
vestra eru fyrri til að hafa samfarir en
jafnaldrar þeirra annars staðar á land-
inu, hlutfall þeirra sem svöruðu játandi
spurningunni um hvort þeir hefðu haft
samfarir er 26,1% yfir landið allt en
35,8% á Norðvesturlandi. Tveir af
hverjum þremur sögðust hafa notað
smokka til getnaðarvarna og notkun
þeirra var ekki mismunandi eftir
landshlutum.
Depurð og einmanaleiki
Spurt var um hversu oft ungling-
arnir hefðu fundið fyrir depurð á síð-
ustu sex mánuðum. 30,9% nemenda í
6. bekk höfðu fundið fyrir depurð viku-
lega eða oftar, 29,8% í 8. bekk og 39,1%
í 10. bekk.
Þegar spurt var um einmanaleika
sögðust um 13% 6. bekkinga vera oft
eða mjög oft einmana, svipað hlutfall 8.
bekkinga og rúm 17% 10. bekkinga.
Einnig var spurt um svefn. Um 41%
nemenda í 6. bekk sagðist finna fyrir
svefnörðugleikum vikulega eða oftar,
hlutfallið var 34% í 8. bekk og tæp 38%
í 10. bekk.
Ársæll segir sérstaka ástæðu til að
hafa áhyggjur af svefnmynstri barna
og unglinga. „Krakkar eru alltaf að
sofa minna og minna. Þetta er einn af
þessum stóru þáttum sem hafa verið
að breytast mikið undanfarin ár og er
orðið verulegt vandamál,“ segir Ár-
sæll. Hann segir svefn skipta miklu
máli varðandi líðan og að hann hafi
áhrif á aðra þætti sem valda vanlíðan
eins og t.d. óhóflega notkun samfélags-
miðla, sjónvarpsáhorf og tölvunotkun.
Besta kynslóð sögunnar
Samkvæmt rannsókninni dregur úr
tíðni eineltis með auknum aldri. 77,3%
6. bekkinga höfðu aldrei verið lögð í
einelti undanfarna tvo mánuði. Hlut-
fallið var 86,3% hjá 8. bekkingum og
88,9% hjá nemendum í 10. bekk. Rúm
6% nemenda í 6. bekk voru lögð í ein-
elti einu sinni í viku eða oftar, 3,4% í 8.
bekk og 2,9% í 10. bekk. Spurður hvort
þetta hlutfall nemenda í 6. bekk sé
ekki býsna hátt svarar Ársæll játandi.
„Eitt tilvik væri of mikið. En tölurnar
fyrir eineltið eru talsvert lægri hér á
landi en í öðrum löndum sem taka þátt
í rannsókninni, þannig að við komum
vel út í alþjóðlegum samanburði. Við
höfum líka verið með tiltölulega litla
áfengisdrykkju unglinga miðað við
önnur lönd. En rafretturnar eru að
sækja í sig veðrið hérna og við erum
orðin býsna há í þeim samanburði.“
Hvað segir rannsóknin okkur um
það hvernig er að vera unglingur á Ís-
landi í dag? „Hún sýnir okkur að því
fylgja áskoranir, mikið álag og mikið
áreiti. Hún sýnir okkur líka að það eru
gerðar talsvert miklar kröfur til ung-
linga. Ég er þeirrar skoðunar að þetta
sé besta kynslóðin sem við höfum haft,
þetta eru yfirhöfuð góðir og vel heppn-
aðir krakkar og þau standa fyrri kyn-
slóðum að mörgu leyti framar. En þau
standa frammi fyrir miklum áskor-
unum.“
Rannsóknin er gerð á fjögurra ára
fresti, var fyrst gerð árið 2006 og síð-
ast í fyrra og um 44 lönd tóku þá þátt í
henni. WHO mun síðan gefa út skýrslu
í vor þar sem niðurstöður allra land-
anna verða bornar saman.
Krefjandi að vera unglingur í dag
Ný rannsókn á heilsu og líðan grunnskólanemenda Líðan unglinga mælist verri nú en áður Þriðj-
ungur 10. bekkinga hefur drukkið áfengi og reykt rafrettur, einn af hverjum tíu hefur neytt kannabisefna
Morgunblaðið/ÞÖK
Unglingar „Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé besta kynslóðin sem við höf-
um haft,“ segir Ársæll Már Arnarson, prófessor við HÍ, um ungmenni í dag.Ársæll Már
Arnarson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019
Regína Sjöfn Sveinsdóttir, nemandi í 10. bekk í Vatns-
endaskóla í Kópavogi, segir að niðurstöður rannsókn-
arinnar gefi að mörgu leyti rétta mynd af því hvernig sé
að vera í 10. bekk í dag. Sumt komi þó á óvart, eins og t.d.
að hátt í þriðjungur nemenda í 10. bekk hafi neytt áfeng-
is. „Ég hefði haldið að það væru færri,“ segir Regína.
„Mín tilfinning er að margir bíði með að drekka áfengi
a.m.k. þangað til þeir klára grunnskólann.“
Hvað tölur um kannabisneyslu varðar segist Regína
telja að þær gætu vel staðist og það sama gildi um álag í
námi og svefnerfiðleika. Margir unglingar finni fyrir miklu
álagi sem m.a. megi rekja til mikils heimanáms. „Margir vinir mínir tala um
að þeir eigi erfitt með svefn. Svo tók ég eftir því að um 39% krakka í 10.
bekk segjast finna fyrir depurð í hverri viku. Ég hefði haldið að þessi tala
væri hærri, en auðvitað er gott að hún er það ekki,“ segir Regína.
Að mörgu leyti rétt mynd
NEMANDI Í 10. BEKK RÝNDI Í NIÐURSTÖÐURNAR
Regína Sjöfn
Sveinsdóttir
15%
afsláttur
15%
afsláttur
ofnar ryksugur
20%
afsláttur
Gerið góð kaup!
15-50% afsláttur
af gæðavörum ORMSSON
janúar
dagar
lágmúla 8
SÍmI 530 2800
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
15%
afsláttur