Morgunblaðið - 11.01.2019, Side 11
Myndu renna blint í
sjóinn án rannsókna
Nokkur stór samtök launþega og
atvinnurekenda í sjávarútvegi hafa
skorað á stjórnvöld að endurskoða
hið fyrsta fyrirhugaðan niðurskurð
á fjárframlagi til Hafrannsókna-
stofnunar. Miklu meiri heildar-
hagsmunir séu fólgnir í því að
styðja við og efla rannsóknir en að
stefna þeim í voða.
Í áskorun frá Sjómanna-
sambandi Íslands, VM - Félagi
vélstjóra og málmtæknimanna,
Félagi skipstjórnarmanna og Sam-
tökum fyrirtækja í sjávarútvegi er
bent á að sá árangur sem náðst
hefur í fiskveiðistjórnun á Íslands-
miðum grundvallist á rannsóknum.
„Án þeirra myndu menn renna
blint í sjóinn, í bókstaflegri merk-
ingu.“
Fylgi lögum um veiðigjald
Í áskoruninni segir meðal ann-
ars: „Skerðing fjármuna vekur
ekki síst furðu í ljósi þess að ís-
lenskur sjávarútvegur í heild sinni
greiðir tugi milljarða til hins op-
inbera á ári hverju. Veiðigjaldið,
eitt og sér, nam hátt í 11,5 millj-
örðum króna í fyrra. Lögum sam-
kvæmt er gjaldinu meðal annars
ætlað að standa undir kostnaði
ríkisins við rannsóknir, stjórn, eft-
irlit og umsjón með fiskveiðum og
fiskvinnslu. Það er miður að lög-
gjafinn fylgi ekki þeirri reglu sem
hann sjálfur hefur sett.“
Þá er rifjað upp að á sérstökum
hátíðarfundi Alþingis í sumar var
samþykkt tillaga til þingsályktun-
ar um að láta smíða hafrannsókna-
skip. Tekið er undir það sem segir
í greinargerð með ályktuninni:
„Meginforsenda þess að Íslend-
ingar geti tekist á við þær breyt-
ingar sem eiga sér nú stað á um-
hverfi hafsins og vistkerfi þess
eru viðamiklar haf- og fiskirann-
sóknir, þ.m.t. reglulegar stofn-
mælingar á helstu nytjastofnum.“
aij@mbl.is
Áskorun á stjórnvöld frá samtökum í sjávarútvegi
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019
Verð frá 94.999
25% afsláttur af aukakönnum
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem
er. Búa til heita súpu
og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Byrjaðu árið með stæl
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ascent serían frá Vitamix
Söfnum í neyðarmatarsjóð til
matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp
Íslands fyrir þá fjölmörgu sem
lægstu framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Guð blessi ykkur öll
www.apotekarinn.is
- lægra verð
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsog , p ín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
stöflur orða lástur. Inniheldur nikót
*
* 15% afsláttur af öllu lyfjatyggigúmmí, öllum styrkleikum
og pakkningarstærðum. Afslátturinn gildir út janúar 2019.
Ný vefsíða
www.Nicotinell.is
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, seg-
ist ekki enn hafa fengið á sitt borð
tillögur forstjóra
Hafrannsókna-
stofnunar um
hvernig stofnun-
in muni bregðast
við kröfu stjórn-
valda um hag-
ræðingu. Hann
segist telja að
koma megi í veg
fyrir að tillögur
um uppsagnir og
að leggja þurfi öðru rannsókna-
skipi stofnunarinnar nái fram að
ganga.
„Ég óskaði eftir hugmyndum
forstjóra í desember, um mögu-
legar leiðir til að mæta þeirri hag-
ræðingarkröfu sem komið hefði
fram,“ sagði Kristján Þór í samtali
við 200 mílur í gær. „Það var
skömmu fyrir jól og við höfum ein-
faldlega ekki getað farið almenni-
lega yfir málið ennþá. Ég hef ekki
enn fengið þær inn á mitt borð.“
Aðspurður sagðist Kristján Þór
ekki vilja tjá sig um væntanlegar
uppsagnir stofnunarinnar. „Ekki
fyrr en við höfum farið yfir þær
hugmyndir sem forstjórinn leggur
upp við ráðuneytið, og með hvaða
hætti það verði gert. Þess vegna vil
ég ekki tjá mig um það að sinni.
Ég tel þó að við höfum alla mögu-
leika á því að koma í veg fyrir að
þessar ýtrustu hugmyndir gangi
eftir,“ sagði hann og bætir við:
„Það hefur verið unnið að lausn
þessa máls síðastliðnar vikur og ég
vonast eftir niðurstöðu í þeirri
vinnu á allra næstu dögum.“
Ekki boðleg fjármögnunarleið
Ráðherrann benti á að töluverð-
ur hluti, eða nokkur hundruð millj-
ónir króna, af fjármögnun
Hafrannsóknastofnunar, hefði und-
anfarin ár fengist með fjárframlagi
úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins.
Stærstur hluti þess niðurskurðar
sem blasi við stofnuninni nú sé
vegna þess að tekjur úr sjóðnum
hafi dregist verulega saman á síð-
astliðnum árum.
„Um er að ræða fjármuni sem
fást vegna upptöku ólögmæts sjáv-
arafla. Í mínum huga er það ekki
boðlegt fyrirkomulag að stofnunin
sé háð slíkri fjármögnun heldur
þyrfti stofnunin að vera fjármögn-
uð með allt öðrum og ábyrgari
hætti. Það er meðal annars breyt-
ing á því fyrirkomulagi sem orðið
hefur núna og kallar á að við setj-
umst yfir þetta og skoðum málið í
stærra samhengi. Það er það sem
við erum að gera og ég er vongóð-
ur um að á næstu dögum munum
við finna leiðir til að Hafrann-
sóknastofnun geti áfram sinnt sínu
mikilvæga hlutverki með forsvar-
anlegum hætti. Annað kemur ekki
til greina í mínum huga.“
Engin ákvörðun
enn verið tekin
Í sameiginlegri yfirlýsingu Sjó-
mannasambands Íslands, Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, Félags
skipstjórnarmanna og VM - Félags
vélstjóra og málmtæknimanna, sem
birt var í gær, var bent á að krafa
um hagræðingu og niðurskurð hjá
Hafrannsóknastofnun rímaði illa
við þau sjónarmið sem fram hefðu
komið í þingsályktun þeirri sem
gerð var í sumar, í tengslum við
smíði á nýju hafrannsóknaskipi.
„Ég tek undir það sem þar kem-
ur fram, um mikilvægi rannsókna.
En ég ítreka það enn og aftur að
það hefur engin ákvörðun enn þá
verið tekin í þessum efnum. En
þau sjónarmið sem fram koma í yf-
irlýsingu félaganna – ég tek undir
þau.“
Telur að ekki þurfi
ýtrustu aðgerðir
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, sagðist ekki hafa fengið tillögur forstjóra Hafró
Kristján Þór
Júlíusson