Morgunblaðið - 11.01.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.01.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Bamix töfrasproti Verð 33.900 kr. Vegagerðin afhendi hann rekstrar- félaginu í framhaldinu og skipið komi til landsins tveimur vikum síð- ar. Þurfa skipið til þjálfunar Guðbjartur segir að fyrirtækið þurfi einhvern tíma til að þjálfa ann- að starfsfólk og sigla því til Land- eyjahafnar og Þorlákshafnar til að fá reynslu af aðstæðum í öllum höfn- um. Ef ekkert kemur upp á og skipið verður afhent í lok febrúar ætti það að koma til landsins um miðjan mars. Þá hefur rekstrarfélagið hálf- an mánuð til að sinna þessum und- irbúningi. Ekki er búið að ráða allt starfs- fólk. Guðbjartur Ellert reiknar með að gengið verði frá því á næstu vik- um. Tekur hann fram að ráðningar ráðist af því hvenær fólkið geti hafið vinnu við þau verkefni sem það er ráðið til. helgi@mbl.is ingar frá skipasmíðastöðinni að Herjólfur verði afhentur úti í Pól- landi í febrúar. Gert er ráð fyrir að Starfsmenn skipasmíðastöðvarinnar Crist í Gdynia í Póllandi vinna við frágang á nýja Herjólfi. Stefnt er að því að skipið verði afhent Vegagerð- inni í næsta mánuði og allar áætlanir rekstraraðilans miða að því að hann hefji siglingar 30. mars. Guðbjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarfélags Herj- ólfs sem Vestmannaeyjabær stend- ur á bak við, segir að undirbúningur fyrir reksturinn gangi samkvæmt áætlun. Skipstjórnarmaður og vél- stjóri eru úti í Póllandi til að fylgjast með smíði skipsins og skipstjóri er hér heima í vinnu við annan undir- búning. Segir Guðbjartur að prófa eigi skipið úti á sjó í fjórðu viku janúar. Þá verði allur búnaður skipsins próf- aður. Það fari eftir niðurstöðu þess hvort ráðast þurfi í frekari lagfær- ingar. Enn er unnið að innréttingum í skipinu og uppsetningu búnaðar. Vegagerðin hefur þær upplýs- Ljósmynd/Svanur Gunnsteinsson Grænn, hvítur, blár Landfestar Herjólfs verða leystar í Gdynia í þarnæstu viku vegna prófana á skipinu á sjó. Herjólfur prófaður á sjó í lok janúar  Ferjan afhent í febrúar og hefur siglingar 30. mars Ljósmynd/Vegagerðin Inni Enn er eftir að ganga frá ýms- um hlutum um borð í skipinu. Áhugi á fjallaverkefnum Ferða- félags Íslands hefur undanfarið sleg- ið fyrri met. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ, segir að met- aðsókn hafi verið á kynningarkvöld vegna þessara verkefna og í kjölfar- ið sé orðið uppselt í nokkur þeirra. Verkefnin eru af ýmsum toga og fjöllin gera ólíkar kröfur um getu- stig. Nöfn þeirra segja talsvert um hvers er krafist en þau eru m.a. Fyrsta skrefið, Alla leið, Þrautseig- ur, Fótfrár og Léttfeti. Öll eru verk- efnin að fara í gang núna í upphafi árs, en sum þeirra taka nánast allt árið. Páll segir að fjölmennast sé í ald- urshópnum 40-55 ára, en fólk sé bæði eldra og yngra. Hann segir að konur séu í greinilegum meirihluta. „Við höfum ekki séð meiri áhuga í fjallaverkefnum Ferðafélagsins frá því að við fórum af stað fyrir um tíu árum. Við teljum að þetta sé merki um vaxandi áhuga fólks á útivist og hreyfingu úti í náttúrunni. Fjórir kynningarfundir hafa verið haldnir og hafa um 1.200 manns sótt þá. Sal- urinn okkar í Mörkinni tekur um 300 manns í sæti og þangað hafa komið nokkuð á fjórða hundrað þegar mest hefur verið, þannig að hvert sæti hefur verið skipað og rúmlega það,“ segir Páll. Hann segir að góð tíð að undan- förnu eigi eflaust þátt í að fólk fari almennt út að ganga, en á sama tíma sakni ákveðinn hópur vetrarins á fjöllum sárlega. aij@mbl.is Metaðsókn er í fjallaverkefni FÍ  Konur í greinilegum meirihluta Morgunblaðið/RAX Á fjöllum Glaðlegir göngumenn á leið á Hvannadalshnúk. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við myndum með þessari breyt- ingu fá meiri morgunbirtu sex vik- um lengur en nú er, en hún er mik- ilvægasti þátturinn í að stilla líkamsklukkuna okkar,“ segir Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og dokt- or við læknadeild Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að á samráðsgátt stjórnvalda má nú skila umsögn um þá tillögu að færa staðartíma Íslands nær sólartíma miðað við hnattræna legu landsins. Var opnað fyrir umsagnir í gær og hafa nú þegar fjölmargar borist. Starfshópur skipaður af heil- brigðisráðherra skilaði í lok janúar 2018 greinargerð um ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til sam- ræmis við gang sólar. Er í grein- argerð bent á að niðurstöður vís- indarannsókna sýna fram á nei- kvæðar heilsu- farslegar afleið- ingar þess að miða við of fljóta klukku, líkt og nú er gert hér á landi. Ákvörðun um of fljóta klukku á Íslandi var á sín- um tíma fyrst og fremst tekin með efnahags- og viðskiptahagsmuni að leiðarljósi. Neikvæðar heilsufars- legar afleiðingar þessa eru margar og tengjast meðal annars of stutt- um svefni. „Fjölmargar nýlegar rannsóknir sýna að stuttur svefn eykur líkur á ýmsum sjúkdómum, svo sem offitu, sykursýki og hjarta- og æðasjúk- dómum en einnig lakari framleiðni, m.a. námsárangri skólanemenda,“ segir í greinargerð, en rannsóknir sýna að Íslendingar fara seinna að sofa en margar aðrar þjóðir. Ungmenni eru viðkvæmust Erla segir það mikilvægt, eink- um fyrir unglinga og þá sem yngri eru, að stilla klukkuna rétt af. „Þetta virðist bitna mest á þess- um hópi, þau eru með seinkaða dægursveiflu frá náttúrunnar hendi. Og þessi hópur á oft mjög erfitt með að vakna á veturna til að sækja skóla og eru með mikið af melatónín í blóðinu, sem kalla má „myrkurhormón“ og veldur syfju og stuðlar að svefni.“ Þeir valkostir sem til umræðu eru á samráðsgáttinni eru þrír; óbreytt staða, klukkunni seinkað um eina klukkustund og óbreytt klukka en að skólar og fyrirtæki hefji starfsemi seinna á morgnana. Hægt er að skila umsókn um til- lögurnar til 10. mars næstkom- andi. Morgunbirtan er okkur mikilvægust  Hægt að skila áliti sínu á breyttri klukku hér á landi Erla Björnsdóttir Um helmingur Íslendinga eða 51-52% eru hlynnt því að Ágúst Ólafur Ágústsson, al- þingismaður Samfylkingarinn- ar, segi af sér. 31- 32% eru í meðal- lagi hlynnt/and- víg afsögn hans og um 17% andvíg. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnun- ar Maskínu (maskina.is). Athygli vekur að í hópi stuðnings- manna Samfylkingarinnar, sem tóku þátt í könnuninni, voru 48,3% hlynnt því að Ágúst Ólafur segði af sér, 25,2% voru í meðallagi hlynnt því en 26,5% voru því andvíg. Þannig voru hlutfallslega fleiri Samfylkingar- menn hlynntir því að hann segði af sér en stuðningsmenn Miðflokksins (36,8%), Viðreisnar (37,8%) og VG (46%). Kjósendur Framsóknarflokks og Pírata voru hlynntastir afsögn Ágústs Ólafs (66-67%) en kjósendur Miðflokksins andvígastir (45,8%). Af stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokks voru 50,4% hlynnt afsögn Ágústs. Fram kemur í könnuninni að svo virðist sem andstaða við afsögn þing- mannsins aukist með hækkandi aldri svarenda. Þeir sem lokið hafa fram- haldsskólaprófi eða iðnmenntun voru hlynntastir afsögn Ágústs Ólafs (58,8%) og háskólamenntaðir and- vígastir (19,3%). Íslendingar með heimilistekjur lægri en 550 þúsund voru hlynntastir því að hann segði af sér eða um 60%. Tekjuhæsti hópur- inn var andvígastur afsögn hans (25,5%). Ágúst Ólafur greindi frá því í byrj- un desember að hann ætlaði í tveggja mánaða leyfi eftir áminning- ar sem hann fékk frá trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar vegna kynferðis- legrar áreitni í garð konu í miðbæ Reykjavíkur. Svarendur voru 817 og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks dreginn með tilviljun úr þjóð- skrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á 18 ára og eldri. Gögn- in eru vegin með tilliti til kyns, ald- urs og búsetu. Könnunin fór fram 14.-28. desember 2018. gudni@mbl.is Helmingur vill af- sögn Ágústs Ólafs  48,3% Samfylkingarfólks vilja afsögn Ágúst Ólafur Ágústsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.