Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 6. J A N Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  13. tölublað  107. árgangur  HORFIR OFAN Í SVÖRÐINN OG Á ÞAÐ SMÁA ALGJÖR DRAUMABYRJUN AÐ ÞORA AÐ TALA UM TILFINNINGAR GDRN HOPPAÐI INN UM GLUGGANN 33 NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN 12MINNINGAR UM JÖRÐ 30 Hátækni Starfsemi gagnavera er vaxandi.  Samtök iðnaðarins (SI) og Sam- tök atvinnulífsins (SA) „leggja áherslu á að ráðist verði í fjárhags- lega endurskipulagningu á Farice og telja mikilvægt að lagður verði grunnur að nýjum sæstreng fyrr en gert er ráð fyrir þar sem staða gagnatenginga við útlönd dregur úr samkeppnishæfni gagnaversiðn- aðar“. Kemur þetta fram í sameig- inlegri umsögn samtakanna um til- lögu að fjarskiptaáætlun sem nú er til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Vilja þau hraða lagningu sæ- strengs til Evrópu þar sem líkur séu á því að bilanatíðni núverandi gagnastrengja aukist eftir örfá ár og eru stjórnvöld hvött til að hafa forystu í málinu. »2 SI og SA vilja hraða lagningu nýs sæ- strengs til Evrópu Kerfið offjármagnað » Ragnar spyr hvort iðgjöld í lífeyrissjóðakerfið séu orðin of há ef lífeyrisréttindin eru yfir 100% af meðalævitekjum. » Það meðaltal bendi til að kerfið sé „offjármagnað“. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, kallar eftir „gagngerum breyt- ingum“ á íslenska lífeyriskerfinu. Kerfið sé dýrt fyrir fyrirtækin og geti jafnvel haldið niðri launum. Verkalýðsfélögin séu reiðubúin að skoða lækkun iðgjalda gegn því að laun verði hækkuð í samningunum. VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness hafa sem kunnugt er vísað kjaradeilunni til ríkissáttasemjara. Ragnar Þór segir ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða hafa ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir félaga í VR. „Sé litið á ávöxtunarkröfuna á hagkerfið út frá innlendum eignum lífeyrissjóðanna eru þær á fimmta þúsund milljarðar og hærri en lands- framleiðslan. Lífeyrissjóðirnir taka því bróðurpartinn af hagvextinum til sín í kröfu á ávöxtun sjóðakerfisins. Það er meðal annars gert með því að halda uppi vaxtakostnaði almenn- ings af húsnæðislánum og með því að halda uppi álagningu í smásölu- fyrirtækjum sem lífeyrissjóðirnir eiga. Þetta gerist líka með því að lækka kaupgjaldið,“ segir hann. Stokki upp lífeyriskerfið  Formaður VR er reiðubúinn að skoða lægri iðgjöld ef launin verða hækkuð  VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness vilji gagngerar breytingar á kerfinu MVilja stokka upp … »14 AFP Bretland Samningurinn felldur. Breska þingið kolfelldi í gær samn- ing sem Theresa May, forsætisráð- herra Bretlands, gerði við Evrópu- sambandið (ESB) um útgöngu Breta úr sambandinu. Samningurinn var felldur með 230 atkvæða mun, 432 þingmenn greiddu atkvæði gegn samningnum en 202 studdu hann. „Það var ljóst frá því að ESB og Bretar kláruðu þennan samning að það yrði á brattann að sækja fyrir Theresu May. Það hefði komið mjög á óvart hefði samningurinn farið í gegn,“ sagði Guð- laugur Þór Þórð- arson utanríkis- ráðherra. Hann sagði málið ekki síður snúa að ESB en Bretum. „Nú getur eng- inn sagt að það sé lítið mál að ganga í Evrópusam- bandið því það sé ekkert mál að ganga úr því aftur. Jafnvel þótt sam- þykkt sé í lýðræðislegri atkvæða- greiðslu að ganga út þá er það mjög snúið,“ sagði Guðlaugur. Hann sagði að samstarf Evrópu- ríkja væri margvíslegt, t.d. í ESB, EFTA, EES, Schengen, NATO og víðar. Vildi þjóð draga sig út úr ein- hverjum af þessum samstarfsverk- efnum væri æskilegt að það gengi greiðlega og raskaði ekki frjálsum viðskiptum og góðum samskiptum. Guðlaugur sagði að áframhaldandi góð samskipti við Bretland hefðu verið forgangsmál í íslenska stjórn- kerfinu síðan Bretar tóku ákvörðun um að yfirgefa ESB. „Við höfum gert ráð fyrir margs konar sviðs- myndum. Ein þeirra er að Bretar fari úr ESB án samnings. Þessi nið- urstaða kemur okkur ekki í opna skjöldu.“ Hann sagði að það væri forgangsmál að eiga áfram góð sam- skipti við Bretland. „Þetta er annað mikilvægasta viðskiptaland okkar á eftir Bandaríkjunum. Það er afskap- lega mikilvægt að við eigum áfram góð viðskipti og samstarf við Breta eins og við höfum lengi átt.“ »17, 18 Ljóst að það er snúið mál að ganga úr ESB Guðlaugur Þór Þórðarson  Breska þingið kolfelldi útgöngusamninginn við ESB í gær Ártúnsbrekka er vinsæl hjá fjölskyldufólki þegar snjór lætur sjá sig á höfuðborgarsvæðinu. Þessi ungi drengur var í hópi þeirra sem í gær mættu til að njóta útiverunnar og var hann að sjálfsögðu vel útbúinn og með hjálm á höfði. Þá kann að verða opnað í Bláfjöllum eftir helgi. »6 Skíða- og brettafólk lék sér í borgarlandinu Morgunblaðið/Eggert  Upphafskvóti loðnu hefur ekki verið gefinn út og leiðangur sem er að ljúka gefur ekki ástæðu til sérstakrar bjart- sýni. Geir Zoëga, skipstjóri á grænlenska upp- sjávarskipinu Polar Amaroq, segir hana munu skila sér. „Loðnan spáir ekkert í dagsetn- ingar, hún spáir bara í skilyrðin. Hún kemur, það er bara spurning um hvar og hvenær,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Að sögn Geirs eru skilyrðin í hafinu sí- breytileg og hagar loðnan sér í samræmi við það. »11 Loðnan kemur þeg- ar skilyrðin eru rétt Veiði Menn hafa trú á vertíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.