Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 6

Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Stólar Erum á facebook Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Ami Grace Manning Elton Cato Highrock Sierra Kelsey Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Morgunblaðið er, eins og jafnan áður, langvinsælasti titillinn árið 2108 á vefnum timarit.is þar sem safnað hef- ur verið saman tæplega 1.200 titlum af prentuðum blöðum og tímaritum frá upphafi. Hægt er að lesa alla ár- ganga Morgunblaðsins frá stofnun 1913 fram á seinni ár. Á hverju ári bætist nýr árgangur við. 27,3% þeirra sem heimsóttu tima- rit.is á árinu 2018 fóru inn á Morg- unblaðið. Þetta er aukning frá árinu 2017, þegar sambærileg tala var 25,4%. Næstvinsælasti titillinn í fyrra var Dagblaðið-Vísir(DV) og síðan komu Tíminn, sem kom út árin 1917- 1996, og Vísir. Fréttablaðið er í 5. sæti, sjónarmun á undan Þjóðviljan- um, sem kom út 1936-1992. Landsbókasafnið-Háskólabóka- safn hannaði og rekur jafnframt vef- inn timarit.is. Heimsóknir síðustu ár- in hafa verið fremur stöðugar og fer smám saman fjölgandi. Árið 2018 voru skráðar 1.257.203 heimsóknir og fjölgaði um rúmlega 90 þúsund milli ára. Flettingar voru 12.451.727. Þar af voru flettingar á Morgunblaðinu 3.398.932 og heimsóttar voru 1.187.620 blaðsíður. Blöðin og tímaritin á timarit.is hafa að geyma, auk almenns fréttaefnis og auglýsinga, mikið efni á sviði bók- mennta, sagnfræði, ættfræði, þjóðlífs, menningar, atvinnuvega og viðskipta. Jafnt og þétt bætast við safnið fleiri titlar. Þeir eru nú 1.181 og bættust 42 nýir við í fyrra. Vefurinn timarit.is er einstakur í sinni röð í heiminum. Sambærilegir gagnagrunnar eru engir jafn víðtæk- ir. Þá er allt efnið í opnum og ókeypis aðgangi. Mikið er um að fræðimenn og skólafólk noti vefinn við rannsókn- ir og ritgerðasmíð. Þá leita menn að ýmsu persónulegu efni og sér til fróð- leiks og skemmtunar. Á vefnum eru einnig blöð og tíma- rit frá Færeyjum og Grænlandi. Er það efni sett inn í samstarfi við lands- bókasöfn landanna. Grænlenskt blað, Atuagagdliutit, er á lista yfir mest sóttu blöðin, í 7. sæti. Morgunblaðið langoft- ast skoðað á timarit.is Mest sóttu titlarnir á timarit.is 2018 Heimild: Landsbókasafn Íslands Þúsundir síðna Titill á timarit.is Flettingar alls Pr. síðu Þúsundir Hlutfall Morgunblaðið 1.188 2,9 3.399 27,3% DV 414 2,6 1.079 8,7% Tíminn 244 2,2 548 4,4% Vísir 214 2,2 469 3,8% Fréttablaðið 335 1,2 387 3,1% Þjóðviljinn 198 1,9 378 3,0% Atuagagdliutit 90 3,5 316 2,5% Lesbók Mbl. 56 4,6 259 2,1% Dagur 78 3,2 252 2,0% Alþýðublaðið 180 1,3 235 1,9% Aðrir titlar Heildarfjöldi titla á timarit.is: 1.181 Samtals flettingar 2018 12.451.727  Tæplega 1.200 titlar eru aðgengi- legir á vefnum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sjálfsíkveikja í haugum er þekkt og geta slíkir haugar verið af ýmsum stærðum og gerðum. Getum hefur verið leitt að því að upptök elds á urðunarstaðnum í Álfsnesi um helgina séu vegna sjálfsíkveikju. Mögulega hafi hún orðið vegna hitnunar í leifum af flugeldum eða skotkökum með púðurleifum. Einn- ig er talið hugsanlegt að liþíum hafi lekið út úr skemmdri eða opinni raf- hlöðu og komist í vatn og súrefni sem hafi leitt til elds. Ekki hefur verið staðfest hver upptök eldsins voru. Björn Karlsson, forstjóri Mann- virkjastofnunar, segir að sjálfs- íkveikja á urðunarstöðum sé ekki óalgeng. Haugurinn sé þá nægjan- lega stór til að vera einangrandi, en samt það óþéttur að súrefni komist inn í hann. Hiti geti myndast inni í miðjum haugnum og við efnahvörf geti myndast glóð. Sambærilegt við hlöðubruna Slíkur glóðarbruni geti vaxið hægt og rólega og að lokum komist upp á yfirborðið og orðið að logandi eldi. Oft sé erfitt að ráða niðurlög- um hans þar sem hann geti verið djúpt í haugnum og menn þurfi að grafa sig niður í glóðina. Björn líkir þessu við hlöðubruna sem voru algengir á árum áður þeg- ar hiti varð í heyi í hlöðu og endaði með eldi. Einnig geti orðið hiti í blautum olíutuskum í hrúgu, sem hafi t.d. verið notaðar til að bera á hús eða pall, og eldur geti kviknað í þeim við efnahvörf. Eru í farsímum og rafrettum Björn Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segir að lítill bruni sem hafi orðið í Álfsnesi 2014 verði ekki skýrður með öðru en leka úr liþíumrafhlöðu. Erlendis séu þær ein algengasta orsökin á eldsvoðum í úrgangi. Slíkar rafhlöður er meðal annars að finna í farsímum og raf- rettum. Ef rafhlaða opnist eða brotni í meðförum hjá Sorpu og vökvi kom- ist í snertingu við súrefni og vatn í haugnum geti orðið sjálfsíkveikja. Rafhlöðum á að farga í spilliefna- gáma á endurvinnslustöðvum, en eigi að síður sjáist talsvert af raf- hlöðum í úrganginum. Hann segist telja ólíklegt að log- andi flugeldur hafi valdið brunanum á urðunarstaðnum. Þar lauk slökkvistörfum á mánudagskvöld og fór starfsemi í gang í Álfsnesi í gærmorgun. Sjálfsíkveikja þekkt í haugum  Liþíumrafhlöður eru ein algengasta orsök eldsvoða í úrgangi erlendis Morgunblaðið/Hari Eldur í Álfsnesi Mikinn svartan reyk lagði um tíma frá eldinum í dekkjakurlinu á urðunarstaðnum. „Við fengum mikið af snjó í gær sem við unnum úr í nótt þar sem hægt var,“ sagði Einar Bjarnason, rekstr- arstjóri í Bláfjöllum, í gær. Hann var bjartsýnn á opnun skíðasvæðisins í næstu viku. Mikil lausamjöll er á svæðinu, en starfsfólk Bláfjalla hefur troðið snjó- inn og myndað rastir í brekkurnar til að festa hann betur. Þá átti líka að hvessa í gærkvöldi og það gæti bætt stöðuna talsvert, að sögn Einars í gær. „Við erum að vinna að því að safna snjó og svo á að snjóa aftur um helgina. Þá er vonandi að við getum opnað í næstu viku,“ sagði Einar. Ljósmyndari Morgunblaðsins fór á staðinn í gær og tók nokkrar myndir af undirbúningi skíðavertíð- arinnar í Bláfjöllum. thorgerdur@mbl.isMorgunblaðið/Kristinn Magnússon Gæti opnast í næstu viku Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru vegna banaslyss sem átti sér stað á Reykja- nesbraut í febrúar 2017. Taldi lög- regla manninn hafa ekið án nægi- legrar tillitssemi og varúðar og of hratt miðað við aðstæður. Var hann einnig sagður ófær um að stjórna ökutækinu vegna veikinda, en hann glímdi við gáttatif og hafði hitt lækni vegna þess. Í ákæru sagði að maðurinn hefði fengið aðsvif við aksturinn, ekið yfir á öfugan vegarhelming og sveigt svo aftur yfir á réttan vegarhelming þar sem bílarnir tveir rákust saman eftir að ökumaður hins ökutækisins hafði sveigt yfir á rangan helming til að forðast árekstur. Kona sem var farþegi í þeim bíl lést en öku- maðurinn hlaut rifbeinsbrot og áverka á kvið. Sýknaður af ákæru eftir banaslys

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.