Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. janúar 2019, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 7. janúar 2019 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. janúar 2019, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. janúar 2019 Tollstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Menntamálaráðuneytið hefur heim- ilað Keili – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs að fara af stað með nýja námsleið til stúdentsprófs. Er það í fyrsta sinn frá stofnun Keilis árið 2007 sem það er gert. Námið er 200 framhaldsskólaein- inga námsleið með áherslu á tölvu- leikjagerð. Um er að ræða tilrauna- verkefni og geta 40 nemendur hafið nám í haust. Keilir tekur þátt í Erasmus +-verkefni um sama efni og er í samstarfi við erlenda skóla sem hafa reynslu af slíkri kennslu að sögn Hjálmars Árnasonar, fram- kvæmdastjóra Keilis. „Nýjar aðferðir náms til stúdents- prófs með áherslu á tölvuleikjagerð eru svar við kalli ungs fólks um að mennta sig á eigin forsendum en ekki kerfisins þar sem hinn fróði standi á kassa og messi yfir nem- endum. Hvatning nemenda á að koma innan frá en ekki utan frá,“ segir Hjálmar, sem vonast til þess að námið komi til móts við þá nemendur sem finna sig ekki í hefðbundna skólakerfinu en slíkt eigi sérstaklega við um drengi í framhaldsnámi. Hjálmar segir að markmið náms- ins sé að skila þaðan nemendum sem hafi þroska og getu til að afla sér upplýsinga í hraða upplýsingasam- félagsins, meta þær á gagnrýninn hátt, vera frjó í hugsun og geta unnið með öðrum. Hjálmar segir að í framtíðarspám atvinnulífsins sé litið til þessara eig- inleika. Tölvuleikjaiðnaðurinn velti nú meira fé en bæði kvikmynda- og tónlistariðnaðurinn og búist sé við meiri vexti. Á Íslandi séu tekjur af leikjaiðnaði nær eingöngu í formi út- flutnings og skortur sé á vel mennt- uðu innlendu starfsfólki. „Námið er vendinám þar sem námsgreinar eru kenndar í lotum. Í náminu eru engir fastir kennslu- tímar eða stofur. Nemendur eru virkir og kennarar til staðar sem leiðbeinendur í gegnum netið og á föstum viðverutímum. Nemendur leita sér sjálfir þekkingar, vinna saman í hópum og aðstoða hver ann- an,“ segir Hjálmar en hluti námsins fer fram í fyrirtækjum sem tengjast leikjagerð og skapandi hugsun. Áhersla sé lögð á náin tengsl við at- vinnulífið, tölvuleikjaframleiðendur á Íslandi og IGI – samtök leikja- framleiðenda á Íslandi, sem veiti fag- lega ráðgjöf við gæðastjórnun og framkvæmd námsins. Hjálmar segir Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins hafa staðið að baki Keili í baráttunni fyrir námsbrautinni sem verið hefur í bígerð í langan tíma. Hann fagnar því að Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra skuli hafa afgreitt málið en hún sé fjórði menntamálaráðherrann sem að því kemur. Stúdentspróf í tölvuleikjagerð  Fyrsta stúdentsbraut Keilis  Engar kennslustofur eða fastir tímar  Hvatning nemenda á að koma innan frá en ekki utan frá  Tölvuleikjaiðnaðurinn veltir meira en kvikmynda- og tónlistariðnaðurinn Hjálmar Árnason, fram- kvæmdastjóri Keilis, segir mikinn áhuga hafa skapast á námi til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð, sem hefst í haust á Keili. „Mér sýnist á öllu að það verði lúxusvandamál hjá okkur að velja hvaða nemendur við tökum inn. Líkt og í öðru námi í Keili koma þeir einir til greina sem lokið hafa grunn- skólanámi og geta sannfært okkur í persónulegu viðtali um að þeir hafi áhuga á nám- inu.“ Áhugi á nám- inu skilyrði ÁHUGAVERT NÁM Ljósmynd/Keilir Keilir Námi í tölvuleikjagerð er ætlað að koma til móts við þá sem flosnað hafa upp úr námi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Reiknað er með að búnaðarstofa verði hluti af atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytinu sjálfu, ekki undirstofnun ráðuneytisins, eftir flutning hennar frá Matvælastofnun. Undirbúningur flutningsins er haf- inn, meðal annars með vinnu við frumvarp þar að lútandi. Búnaðarstofa er stofnuð utan um verkefni sem áður voru hjá Bænda- samtökum Íslands og þar áður hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins og snúa að greiðslu styrkja ríkisins til bænda og ýmis önnur verk sem tengjast framkvæmd búvörusamn- inga, auk söfnunar upplýsinga fyrir hagskýrslur. Gera öflugri einingu „Tilgangurinn er að styrkja land- búnaðarhluta ráðuneytisins og gera að öflugri einingu en nú er,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. „Ég geri ráð fyrir því að við getum samhæft stefnumótun og framkvæmd stefnu stjórnvalda í landbúnaðarmálum með því að hafa þessa starfseiningu inni í ráðuneytinu. Þá verði hægt að ein- falda stjórnsýslu og framkvæmd bú- vörusamninga og nýta starfskraftana betur,“ segir Kristján Þór. Tveir lykilmenn á skrifstofu land- búnaðarmála létu af störfum á síð- asta ári, meðal annars skrif- stofustjórinn. Kristján Þór hætti við ráðningu nýs skrifstofustjóra í haust þótt 23 hefðu sótt um og ráðning- arferlið væri langt komið og ákvað að færa skrifstofuna undir skrif- stofustjóra alþjóðamála. Sætti þessi ákvörðun nokkurri gagnrýni í land- búnaðargeiranum, menn þar töldu að gamla landbúnaðarráðuneytið væri í skötulíki innan atvinnuvega- ráðuneytisins. Morgunblaðið/Eggert Landbúnaður Fátt fólk er eftir í landbúnaðarhluta atvinnuvegaráðuneyt- isins. Ráðherra hyggst styrkja stjórnsýsluna með búnaðarstofu. Búnaðarstofa renn- ur inn í ráðuneytið Búnaðarstofa » Sex starfsmenn eru hjá búnaðarstofu Matvælastofn- unar. » Stofan er með starfsstöð í Hafnarfirði, ásamt markaðs- stofu Mast, en ekki á Selfossi þar sem aðalskrifstofur Mat- vælastofnunar eru. » Framleiðsluráð landbún- aðarins sem var stofnun á veg- um Stéttarsambands bænda annaðist framleiðslumál land- búnaðarins á sínum tíma og síðar Bændasamtök Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.