Morgunblaðið - 16.01.2019, Page 15

Morgunblaðið - 16.01.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 GLÆNÝ LÍNUÝSASALTFISKHNAKKAR Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 ÞORSKHNAKKAR GLÆNÝ LÚÐA Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn N FRÁ NÝLÖGUÐ HUMARSÚPA Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þó að margt sé vel gert í öldrunar- þjónustu þá er víða pottur brotinn. Eldra fólk glímir við fjölmarga sjúk- dóma og þarf margvísleg úrræði. Það er ekki nóg að fjölga hjúkrunarheim- ilum og efla heimaþjónustu, það þarf að sam- hæfa þjónustuna betur,“ segir Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrun- arlækninga á Landspítalanum og prófessor við læknadeild HÍ. Hann hefur í að- sendum greinum í Morgunblaðinu að undanförnu vakið athygli á nokkrum þáttum þar sem hann telur að þurfi að gera betur varðandi þjónustu við aldraða. Um 1.000 látist í bið eftir hjúkrunarrými Fram kom með myndrænum hætti í Morgunblaðinu í gær að á árunum 2014-2018 hefðu um 700 aldraðir ein- staklingar, sem komnir voru með færni- og heilsumat fyrir hjúkrunar- rými, látist áður en þeir komust að á hjúkrunarheimili. Pálmi segir að mið- að við þessar upplýsingar hafi um 1.000 manns látist frá árinu 2011 sem komnir voru með færni- og heilsumat, eða síðan líknardeildinni á Landakoti var lokað. Líknardeildin þjónaði fólki með mjög skerta lifun en um 100 aldr- aðir einstaklingar fengu þar þjónustu árlega. Meðallifun var um einn mán- uður. „Þegar líknardeildinni á Landakoti var lokað var talað um mótvægis- aðgerðir, bæði að fjölgað yrði rýmum á líknardeild í Kópavogi og leitað eftir öðrum leiðum. Tilfellið er að þetta hefur ekki gengið eftir og fjölgun rýma í Kópavogi verið óveruleg ef einhver,“ segir Pálmi og telur að fjölga þurfi líknarrýmum aldraðra. Ný eining á Vífilsstöðum? Hann segir líknarþjónustuna mik- ilvæga; hún taki ekki aðeins á ein- kennum einstaklingsins heldur taki einnig á móti fjölskyldunni allri. Þannig sé þjónusta líknardeildarinn- ar í Kópavogi en þar sé ekki verið að stækka það úrræði. „Því tel ég eðlilegt að útbúa aðra líknareiningu. Sú eining gæti til dæm- is verið á jarðhæðinni á Vífilsstöðum, nú eða á nýja hjúkrunarheimilinu á Seltjarnarnesi. Það væri þá sérhæfð eining sem tæki á móti fólki með mjög skertar ævilíkur. Slík rými þyrftu að vera að lágmarki 10 en líklega væri betra að þau væru 15 miðað við fyrir- liggjandi tölur. Þjónustumódelið og mönnun og fjármögnun þyrfti að taka mið af líknardeildinni í Kópavogi svo að slík eining stæði undir nafni. Þetta er til þess að gera lítil hárbeitt aðgerð sem myndi skila mörgum verulega auknum lífsgæðum á síðustu dögum lífsins. Að mínu mati ætti heilbrigðis- ráðherra að beita sér fyrir þessari lausn nú þegar,“ segir Pálmi. Hann segir að núna sé litið framhjá skamm- tímalífshorfum fólks og sótt um færni- og heilsumat fyrir þá sem séu nærri andláti eins og hvern annan sem lokið hafi sérhæfðri dvöl á legu- deild Landspítala. Vissulega þurfi fólk nærri andláti góða umönnun og því ekki forsendur fyrir matsnefnd að hafna ósk um færni- og heilsumat. „Það skín hins vegar í gegnum margar umsóknir, þetta tvær til þrjár á viku, að fólkið á mjög takmarkaðan tíma eftir ólifaðan. Sem dæmi má nefna fólk með illkynja sjúkdóm og meinvörp í þremur líffærum eða þá lokastig hjartabilunar eða lungna- sjúkdóm. Á bráðasjúkrahúsi er jafn- vel einn mánuður talinn langur legu- tími og þar sem líknarrými eru ekki fáanleg er lögð áhersla á mikilvægi þess að sækja um hjúkrunarheimili og að tilnefna að minnsta kosti þrjá til fjóra valkosti um hjúkrunarheimili. Þessi umræða trompar þá og ýtir til hliðar annarri og mikilvægari um- ræðu um það hver staða sjúkdóms er, hverjar horfurnar eru, hver ættu að vera meðferðarmarkmið í slíkri stöðu og að sennilega væri hrein líknar- þjónusta það sem ætti við fremur en almennt rými á hjúkrunarheimili,“ segir Pálmi. Hann bætir við að ef fólk færist síð- an frá sérhæfðum deildum Landspít- alans í biðrými eftir hjúkrunarheimili annars staðar, þá hafi umræðan um skertar lífslíkur ekki átt sér stað og nýir fagaðilar komnir að málum í stað þeirra sem höfðu haft skilning og tíma til að taka umræðuna um horfur og meðferðarkosti og bestu næstu skref. Fagnar áformum landlæknis Pálmi fagnar orðum landlæknis í Morgunblaðinu í gær um að til standi að endurvekja lífsskrána með rafræn- um hætti. Það sé rétt hjá landlækni að málið sé stórt og þurfi að undirbúa það víða, m.a. gagnvart heilsugæsl- unni og sjúkrahúsum, en einnig með samfélagsumræðu. „Þetta er breytanleg skráning sem er lifandi og ínáanleg allan sólar- hringinn af þar til bærum aðilum. Auk þess að fólk skrái óskir sínar beint, um meðferð en einnig mál- svara, ætti einnig að vera tækifæri til þess að tengja við lífsskrána skrán- ingu sjúkrahússins á meðferðarmark- miðum einstaklinga þegar hún liggur fyrir,“ segir Pálmi og tekur sem dæmi einstakling með útbreitt krabbamein sem myndi biðjast undan endurlífgun eða gjörgæslumeðferð við hjarta- stoppi eða öðrum alvarlegum veikind- um. „Ef sá einstaklingur veikist skyndi- lega heima, til dæmis að hjartað stoppar, er hjálplegt að þessar upp- lýsingar liggi strax fyrir við komu sjúkraflutningamanna, því þá er hægt að virða óskir einstaklingsins, ekki aðeins á sjúkrahúsinu heldur einnig heima.“ Pottur brotinn í öldrunarþjónustu  Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum vill fjölga líknarrýmum fyrir aldraða  Samhæfa þurfi þjónustuna betur  Opna mætti líknareiningu á Vífilsstöðum eða á nýju heimili á Seltjarnarnesi Morgunblaðið/Ómar Aldraðir Yfirlæknir á Landspítala bendir á ýmsa agnúa í öldrunarþjónustu. Pálmi V. Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.